Kallaðir út vegna reyks í ljósa­vélar­rými

Slökkviliðið fór um borð og athugaði aðstæður.
Slökkviliðið fór um borð og athugaði aðstæður. mbl.is/Guðlaugur Albertsson

Skipverjar í bát Arnarlax, Boggu ljósu, urðu varir við reyk þegar þeir sátu í káetu bátsins fyrr í dag. Slökkvilið Patreksfjarðar, Tálknafjarðar og Bíldudals var kallað út klukkan 13.59.

Engan sakaði og var báturinn dreginn til Tálknafjarðarhafnar.

Í samtali við mbl.is segir Gunnar Sean Eggertsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á Patreksfirði, að enginn eldur hafi verið sjáanlegur í bátnum.

„Við fórum um borð og fórum með hitamyndavélar út um allt og reykræstum bátinn og það var aðallega reykur í ljósavélarrými en enginn sjáanlegur eldur,“ segir Gunnar. Líklegt sé að reykurinn hafi komið frá pústi ljósavélarinnar.

Bogga Ljósa og Oddi
Bogga Ljósa og Oddi mbl.is/Guðlaugur Albertsson

Skipverjar brugðust rétt við

Slökkviliðið á Tálknafirði verður með vakt á svæðinu fram eftir kvöldi til þess að tryggja að enginn eftirábruni verði.

„[Skipverjar] fóru allir í galla og lokuðu öllum lúgum sem á að loka og brugðust rétt við. Það var skip þarna rétt við hliðina á þeim sem kom strax til þeirra og svo var annar stærri þjónustubátur sem er með öfluga slöngu sem sigldi strax á staðinn. Það var ákveðið að draga hann bara strax í land. Þeir drápu náttúrulega á öllu og slógu út rafmagni og öllu saman áður en þeir fóru,“ segir Gunnar.

Bátarnir þrír.
Bátarnir þrír. mbl.is/Guðlaugur Albertsson

Betra að hafa fleiri en færri 

Nokkurn tíma tók að draga bátinn að landi en um klukkan 16.15 var aðgerðum lokið að mestu.

„Það var enginn laus eldur og svo þegar við vorum búnir að reykræsta þá kom ekki meiri reykur,“ segir Gunnar.

Mikið viðbragð var sett af stað vegna útkallsins en Gunnar segir slökkviliðin þrjú vinna sem eitt. Betra sé að hafa fleiri en færri á staðnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.1.25 580,52 kr/kg
Þorskur, slægður 24.1.25 666,71 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.1.25 403,13 kr/kg
Ýsa, slægð 24.1.25 347,30 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.1.25 202,93 kr/kg
Ufsi, slægður 24.1.25 280,64 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.7.23 10,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 24.1.25 220,67 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.1.25 Erling KE 140 Þorskfisknet
Þorskur 3.805 kg
Samtals 3.805 kg
24.1.25 Jóhanna Gísladóttir GK 357 Botnvarpa
Þorskur 24.890 kg
Karfi 15.350 kg
Ýsa 3.583 kg
Ufsi 2.003 kg
Samtals 45.826 kg
24.1.25 Háey I ÞH 295 Lína
Þorskur 695 kg
Steinbítur 158 kg
Keila 110 kg
Ufsi 20 kg
Ýsa 18 kg
Karfi 14 kg
Samtals 1.015 kg
24.1.25 Cuxhaven NC 100 Botnvarpa
Þorskur 203.725 kg
Karfi 29.765 kg
Ufsi 1.326 kg
Hlýri 854 kg
Steinbítur 94 kg
Grálúða 13 kg
Samtals 235.777 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.1.25 580,52 kr/kg
Þorskur, slægður 24.1.25 666,71 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.1.25 403,13 kr/kg
Ýsa, slægð 24.1.25 347,30 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.1.25 202,93 kr/kg
Ufsi, slægður 24.1.25 280,64 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.7.23 10,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 24.1.25 220,67 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.1.25 Erling KE 140 Þorskfisknet
Þorskur 3.805 kg
Samtals 3.805 kg
24.1.25 Jóhanna Gísladóttir GK 357 Botnvarpa
Þorskur 24.890 kg
Karfi 15.350 kg
Ýsa 3.583 kg
Ufsi 2.003 kg
Samtals 45.826 kg
24.1.25 Háey I ÞH 295 Lína
Þorskur 695 kg
Steinbítur 158 kg
Keila 110 kg
Ufsi 20 kg
Ýsa 18 kg
Karfi 14 kg
Samtals 1.015 kg
24.1.25 Cuxhaven NC 100 Botnvarpa
Þorskur 203.725 kg
Karfi 29.765 kg
Ufsi 1.326 kg
Hlýri 854 kg
Steinbítur 94 kg
Grálúða 13 kg
Samtals 235.777 kg

Skoða allar landanir »