„Samstaða er meðal strandveiðisjómanna að gefa eftir 4 veiðidaga á yfirstandandi vertíð gegn því að tryggðar verði veiðar í 11 daga í hverjum mánuði; maí til ágúst,“ segir í yfirlýsingu fundar strandveiðisjómanna sem haldinn var á Patreksfirði 27. maí síðastliðinn.
Þar segir að fundurinn hafi verið haldinn í tilefni af frumsýningu myndarinnar Skuld á kvikmyndahátíðinni Skjaldborg. Fundurinn var afar vel sóttur og eindrægni meðal fundarmanna, að því er segir í yfirlýsingunni. Gestir fundarins voru forystumenn Landssambands smábátaeigenda og Strandveiðifélags Íslands.
„Fundurinn skorar á hæstvirtan matvælaráðherra, Atvinnuveganefnd Alþingis og þingheim allan að tryggja strandveiðar á yfirstandandi sumri þannig að jafnmargir veiðidagar verði í öllum landshlutum.“
Þá lýsir fundurinn yfir „þakklæti sínu til þjóðarinnar fyrir þann stuðning sem hún hefur sýnt strandveiðum og fram kom í skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands. Atvinnugrein þar sem þrír fjórðu hlutar þjóðarinnar vilja að verði efld, á ekkert annað skilið en viðunandi starfsskilyrði.“
Fyrir Alþingi liggur frumvarp Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra um svæðisskiptingu strandveiða. Tillagan er umdeild meðal strandveiðisjómanna sem hafa í áraraðir krafist að veiðunum verði tryggðar veiðiheimildir sem gerir hverjum bát kleift að veiða í 12 daga á mánuði út veiðitímabilið maí til ágúst.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 25.3.25 | 575,09 kr/kg |
Þorskur, slægður | 25.3.25 | 690,32 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 25.3.25 | 321,65 kr/kg |
Ýsa, slægð | 25.3.25 | 225,56 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 25.3.25 | 210,93 kr/kg |
Ufsi, slægður | 25.3.25 | 245,78 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 19.3.25 | 11,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 17.3.25 | 188,00 kr/kg |
Gullkarfi | 25.3.25 | 287,14 kr/kg |
25.3.25 Fanney EA 48 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 4.393 kg |
Ýsa | 43 kg |
Steinbítur | 39 kg |
Samtals | 4.475 kg |
25.3.25 Geir ÞH 150 Dragnót | |
---|---|
Skarkoli | 5.092 kg |
Steinbítur | 2.182 kg |
Þorskur | 449 kg |
Ýsa | 364 kg |
Sandkoli | 83 kg |
Samtals | 8.170 kg |
25.3.25 Hafrafell SU 65 Lína | |
---|---|
Ýsa | 1.062 kg |
Steinbítur | 564 kg |
Langa | 218 kg |
Þorskur | 17 kg |
Ufsi | 17 kg |
Keila | 16 kg |
Samtals | 1.894 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 25.3.25 | 575,09 kr/kg |
Þorskur, slægður | 25.3.25 | 690,32 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 25.3.25 | 321,65 kr/kg |
Ýsa, slægð | 25.3.25 | 225,56 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 25.3.25 | 210,93 kr/kg |
Ufsi, slægður | 25.3.25 | 245,78 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 19.3.25 | 11,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 17.3.25 | 188,00 kr/kg |
Gullkarfi | 25.3.25 | 287,14 kr/kg |
25.3.25 Fanney EA 48 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 4.393 kg |
Ýsa | 43 kg |
Steinbítur | 39 kg |
Samtals | 4.475 kg |
25.3.25 Geir ÞH 150 Dragnót | |
---|---|
Skarkoli | 5.092 kg |
Steinbítur | 2.182 kg |
Þorskur | 449 kg |
Ýsa | 364 kg |
Sandkoli | 83 kg |
Samtals | 8.170 kg |
25.3.25 Hafrafell SU 65 Lína | |
---|---|
Ýsa | 1.062 kg |
Steinbítur | 564 kg |
Langa | 218 kg |
Þorskur | 17 kg |
Ufsi | 17 kg |
Keila | 16 kg |
Samtals | 1.894 kg |