Skorar á útgerðarmenn að semja við sjómenn

Guðmundur Helgi Þórarinsson.
Guðmundur Helgi Þórarinsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Guðmundur Helgi Þórarinsson, formaður VM, segir í pistli í sjómannadagsblaði 200 mílna skammarlegt að útgerðarmenn treysti sér ekki til að semja við sjómenn þrátt fyrir að útgerðirnar séu að skila sögulegum hagnaði.

„Ég skora á útgerðarmenn að leggja sig fram við að ná samningum við þessa lykilstarfsmenn sína,“ skrifar hann.

Pistill Guðmundar í heild sinni:

Sú var tíðin að sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur um allt land; útgerð var í öllum bæjum og þorpum hringinn í kringum landið. Allir höfðu tengingu við sjávarútveginn og sjómenn voru hetjur hafsins sem drógu björg í bú. Það er af sem áður var. Nú er svo komið að hátíðahöld vegna sjómannadagsins eru víða ekki nema svipur hjá sjón. Bátarnir eru færri, stærri og afkastameiri, líkt og útgerðirnar sjálfar. Excel-útreikningar ráða för og allt snýst um að hámarka gróðann. Mannlegi hlutinn, sjarminn við veiðarnar, er horfinn.

Nú er að renna upp fjórði sjómannadagurinn síðan kjarasamningar sjómanna og SFS runnu síðast út. Að vísu skrifuðu öll stéttarfélög sjómanna undir nýjan kjarasamning 9. febrúar síðastliðinn, þar sem félögin töldu ekki lengra komist án átaka. Það er skemmst frá því að segja að öll félögin, ef Félag skipstjórnarmanna er undanskilið, felldu samninginn. Það er ótrúlegt að útgerðarmenn, sem margir hverjir reka fyrirtæki sem skila miklum arði ár frá ári, geti ekki náð sáttum við sjómenn sína, þá starfsmenn sem afla verðmætanna.

Sögulegur hagnaður

Hagnaður útgerðarfélaga fer hækkandi ár frá ári. Á síðasta ári nam rekstrarhagnaður Brims fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA hagnaður) ígildi 17 milljarða króna. Hann jókst um rúm 25% á milli ára. Þá nam hagnaður Síldarvinnslunnar á síðasta ári um 10,2 milljörðum króna. Eigið fé samstæðunnar var í lok árs 83 milljarðar króna. Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar, hefur látið hafa eftir sér að árið 2022 sé besta rekstrarár í sögu Síldarvinnslunnar. Árið hafi einkennst af góðum gangi í veiðum og vinnslu.

Það eru ekki bara stóru sjávarútvegsfyrirtækin sem skila góðum hagnaði. Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði hefur aldrei skilað meiri hagnaði en í fyrra; þremur og hálfum milljarði króna. Það er langbesta rekstrarár fyrirtækisins.

Það er skammarlegt að þrátt fyrir allt þetta treysti útgerðarmenn sér ekki til að semja við sjómenn. Ég skora á útgerðarmenn að leggja sig fram við að ná samningum við þessa lykilstarfsmenn sína. Það er nóg til.

Að lokum vil ég óska samningslausum sjómönnum og fjölskyldum þeirra innilega til hamingju með daginn.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 21.1.25 608,58 kr/kg
Þorskur, slægður 21.1.25 681,62 kr/kg
Ýsa, óslægð 21.1.25 383,32 kr/kg
Ýsa, slægð 21.1.25 301,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 21.1.25 261,00 kr/kg
Ufsi, slægður 21.1.25 302,81 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.7.23 10,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 21.1.25 332,43 kr/kg

Fleiri tegundir »

21.1.25 Stormur ST 69 Landbeitt lína
Þorskur 1.524 kg
Ýsa 886 kg
Steinbítur 2 kg
Samtals 2.412 kg
21.1.25 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Ýsa 4.944 kg
Steinbítur 1.881 kg
Þorskur 1.619 kg
Samtals 8.444 kg
21.1.25 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Steinbítur 939 kg
Þorskur 244 kg
Ýsa 205 kg
Langa 118 kg
Hlýri 29 kg
Keila 25 kg
Ufsi 19 kg
Skarkoli 2 kg
Karfi 1 kg
Samtals 1.582 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 21.1.25 608,58 kr/kg
Þorskur, slægður 21.1.25 681,62 kr/kg
Ýsa, óslægð 21.1.25 383,32 kr/kg
Ýsa, slægð 21.1.25 301,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 21.1.25 261,00 kr/kg
Ufsi, slægður 21.1.25 302,81 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.7.23 10,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 21.1.25 332,43 kr/kg

Fleiri tegundir »

21.1.25 Stormur ST 69 Landbeitt lína
Þorskur 1.524 kg
Ýsa 886 kg
Steinbítur 2 kg
Samtals 2.412 kg
21.1.25 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Ýsa 4.944 kg
Steinbítur 1.881 kg
Þorskur 1.619 kg
Samtals 8.444 kg
21.1.25 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Steinbítur 939 kg
Þorskur 244 kg
Ýsa 205 kg
Langa 118 kg
Hlýri 29 kg
Keila 25 kg
Ufsi 19 kg
Skarkoli 2 kg
Karfi 1 kg
Samtals 1.582 kg

Skoða allar landanir »