Kaldar samfélagslegar kveðjur

Langreyð dregin inn í hvalstöðina í Hvalfirði. Í tilkynningu kemur …
Langreyð dregin inn í hvalstöðina í Hvalfirði. Í tilkynningu kemur fram að 150 manns missi vinnuna. mbl.is/Golli

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi segja ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra um að banna veiðar á langreyðum vera samfélagslega kalda kveðju til 150 starfsmanna sem hafi lífviðurværi sitt af veiðunum. Rök um dýravelferð séu byggð á óskilgreindum kröfum um það hvenær dýr þjáist of lengi. 

Þá hafi Svandís sjálf sagt að lagabreytinga sé þörf til að banna veiðarnar. Nú sé hins vegar tekin ákvörðun byggða á tveggja blaðsíðna áliti fagráðs. Eins sé ljóst að deilan um hvalveiðar snúi ekki að sjálfbærri nýtingu heldur því hvað fólki finnst. 

Stjórnvöld verða hins vegar, nú sem fyrr, að horfa til vísindalegra og lagalegra forsendna þegar kemur að veigamiklum ákvörðunum um nýtingu auðlinda, veiða við Ísland, og láta um leið af sínum eigin tilfinningum og pólitísku skammtímahagsmunum,“ segir í tilkynningu frá samtökunum.

Fordæmalaus ákvörðun 

Meðfylgjandi er yfirlýsingin í heild sinni:  

„Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, hefur í dag tekið fyrirvara- og fordæmalausa ákvörðun um stöðvun á veiðum á langreyðum, en vertíð átti að hefjast á morgun. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) gera alvarlegar athugasemdir við þessa stjórnsýslu.

Sagði sjálfur ekki lagalegan grundvöll

Rök ráðherrans lúta að þessu sinni að dýravelferð. Þær aðferðir sem beitt sé við veiðarnar standist ekki óskilgreindar kröfur um velferð dýra, óásættanlega margir hvalir þjáist of lengi. Hvergi kemur fram í lögum hver séu ásættanleg viðmið í þessum efnum þegar kemur að hvalveiðum og álitamál er hvort hvalveiðar falli undir lög um velferð dýra því um þær gilda sérlög. Matvælaráðherra sagði sjálfur fyrir um mánuði síðan að ekki væri lagalegur grundvöllur til að stöðva veiðar á langreyðum og til þyrfti lagabreytingar með aðkomu Alþingis. Nú hefur ráðherranum snúist hugur á grundvelli tveggja blaðsíðna álits fagráðs, sem breytir í engu fyrrgreindum rökum.

Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.

Fela í sér áhættu á dauðastríði 

Veiðar á langreyðum eru eins og aðrar veiðar á villtum dýrum, þær fela í sér áhættu og dauðastríð. Markmið veiða er alltaf að fella dýrið, ef frá eru taldar veiðar til skemmtunar á villtum laxi. Það að fella dýr er ekki alltaf auðvelt – og allra síst á sjó. Leyfishafar hvalveiða hafa hins vegar sýnt vilja í verki til þess að leita leiða til að bæta aðferðir við veiðarnar með athugun á nýrri tækni svo draga megi frekar úr þjáningu dýrsins. Það er vel.

Skeytir ekkert um lífsviðurværi 

Ekki verður heldur framhjá því litið að með ákvörðun sinni skeytir ráðherra engu um lífsviðurværi þeirra ríflega 150 starfsmanna sem hafa atvinnu af umræddum veiðum, auk allra þeirra sem þjónusta starfsemina, beint og óbeint. Hinar samfélagslegu kveðjur eru því kaldar.

Pólitískir skammtímahagsmunir 

Það hefur verið stefna íslenskra stjórnvalda um langa hríð að nýta beri sjávarauðlindir við Ísland – sett hefur verið skýr löggjöf sem tryggir að veiðarnar séu sjálfbærar, byggðar á vísindalegum grunni, lúti eftirliti og séu í samræmi við alþjóðalög. Íslendingar hafa lengi dregið fram lífið með því að nýta þessar auðlindir. Atvinnuréttindi við veiðar eru aukinheldur tryggð í stjórnarskrá. Þegar stjórnvöld hrófla við þessum stjórnarskrárvörðu réttindum þarf mikið að koma til. Meðalhófs þarf að gæta svo fótunum sé ekki kippt undan fólki og velsæld þjóðar í skiptum fyrir pólitíska skammtímahagsmuni.

Það er ljóst að deilan um veiðar á langreyðum snýst ekki lengur um hvað sé forsvaranlegt út frá sjálfbærri nýtingu, heldur hvað fólki finnst. Það getur verið erfitt að takast á um tilfinningar, enda sýnist sitt hverjum, eins og vonlegt er. Stjórnvöld verða hins vegar, nú sem fyrr, að horfa til vísindalegra og lagalegra forsendna þegar kemur að veigamiklum ákvörðunum um nýtingu auðlinda, veiða við Ísland, og láta um leið af sínum eigin tilfinningum og pólitísku skammtímahagsmunum,“ segir í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 471,61 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 396,54 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 366,44 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 235,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,94 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,72 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 5.403 kg
Langa 535 kg
Ýsa 442 kg
Keila 336 kg
Steinbítur 155 kg
Karfi 109 kg
Hlýri 62 kg
Samtals 7.042 kg
22.7.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Ýsa 3.160 kg
Þorskur 1.817 kg
Skarkoli 867 kg
Skrápflúra 307 kg
Sandkoli 48 kg
Steinbítur 31 kg
Þykkvalúra 9 kg
Karfi 6 kg
Ufsi 5 kg
Langlúra 3 kg
Samtals 6.253 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 471,61 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 396,54 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 366,44 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 235,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,94 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,72 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 5.403 kg
Langa 535 kg
Ýsa 442 kg
Keila 336 kg
Steinbítur 155 kg
Karfi 109 kg
Hlýri 62 kg
Samtals 7.042 kg
22.7.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Ýsa 3.160 kg
Þorskur 1.817 kg
Skarkoli 867 kg
Skrápflúra 307 kg
Sandkoli 48 kg
Steinbítur 31 kg
Þykkvalúra 9 kg
Karfi 6 kg
Ufsi 5 kg
Langlúra 3 kg
Samtals 6.253 kg

Skoða allar landanir »