Vonar að stjórnarsamstarfinu sé nú lokið

Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness.
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Ég vona að þessu stjórnarsamstarfi sé hér með lokið, þessi ákvörðun er ófyrirgefanleg í mínum huga,“ sagði Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness í samtali við mbl.is, spurður um hvernig hann brygðist við ákvörðun matvælaráðherra um að stöðva veiðar á langreyðum.

„Með þessari ákvörðun er verið að svipta 120 félagsmenn í Verkalýðsfélagi Akraness sem störfuðu á síðustu hvalveiðivertíð miklum tekjum, en meðallaun þeirra sem unnu þar fulla vinnu voru tæpar tvær milljónir króna á mánuði í fyrra sem gerir sex milljónir á vertíðinni,“ sagði Vilhjálmur.

Vilhjálmur segir að fólk hefði gjarnan tekið sér frí frá sinni vinnu til að starfa á vertíðinni og einnig hefðu fjölmargir háskólanemar unnið í hvalnum alla vertíðina og þannig komist hjá því að taka námslán.

„Nú er verið að svipta þetta fólk mjög góðum tekjum fimm mínútum fyrir vertíð,“ sagði Vilhjálmur. Hann nefndi einnig að verkslýðsfélagið hefði leitað til lögfræðings til að láta kanna réttarstöðu sinna félagsmanna sem unnið hefðu í hvalnum og hvort ríkið gæti verið bótaskylt gagnvart þeim með þessari ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra. Hann benti einnig á að bæði Akraneskaupstaður og Hvalfjarðarsveit yrðu af miklum útsvarstekjum vegna þessa og tæpast væri mikil ánægja með þetta mál hjá forsvarsmönnum sveitarfélaganna.

„Ég trúi því ekki að það sé hægt að haga sér með þessum hætti. Í mínum huga þetta er lýðskrum og popúlismi af verstu sort sem þarna er verið að ástunda og er algerlega óboðlegt. Ég trúi því ekki að þessi ákvörðun sé tekin í samráði við hina ríkisstjórnarflokkana. Hvar endar þessi vitleysa?,“ sagði Vilhjálmur Birgisson sem ítrekaði að hann væri mjög ósáttur við þessa ákvörðun ráðherrans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 471,68 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 396,54 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 366,79 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 235,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,94 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,72 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 5.403 kg
Langa 535 kg
Ýsa 442 kg
Keila 336 kg
Steinbítur 155 kg
Karfi 109 kg
Hlýri 62 kg
Samtals 7.042 kg
22.7.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Ýsa 3.160 kg
Þorskur 1.817 kg
Skarkoli 867 kg
Skrápflúra 307 kg
Sandkoli 48 kg
Steinbítur 31 kg
Þykkvalúra 9 kg
Karfi 6 kg
Ufsi 5 kg
Langlúra 3 kg
Samtals 6.253 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 471,68 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 396,54 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 366,79 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 235,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,94 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,72 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 5.403 kg
Langa 535 kg
Ýsa 442 kg
Keila 336 kg
Steinbítur 155 kg
Karfi 109 kg
Hlýri 62 kg
Samtals 7.042 kg
22.7.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Ýsa 3.160 kg
Þorskur 1.817 kg
Skarkoli 867 kg
Skrápflúra 307 kg
Sandkoli 48 kg
Steinbítur 31 kg
Þykkvalúra 9 kg
Karfi 6 kg
Ufsi 5 kg
Langlúra 3 kg
Samtals 6.253 kg

Skoða allar landanir »