Hermann Nökkvi Gunnarsson
Starfshópur skipaður af Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra hefur frest til 23. ágúst til að skila tillögum um valkosti eða mögulegar lausnir til að fækka frávikum við veiðar á langreyðum. Einnig á hópurinn að meta tillögur sem áður hafa komið fram.
Þetta kemur fram í skipunarbréfi sem var sent á meðlimi hópsins en þar sitja Jón Þrándur Stefánsson sem er starfsmaður hjá matvælaráðuneytinu og formaður hópsins, Ásgerður Snævarr starfsmaður hjá matvælaráðuneytinu, Þóra Jónasdóttir starfsmaður hjá Matvælastofnun og Elín Björg Ragnarsdóttir starfsmaður hjá Fiskistofu.
Tveir meðlimir eru því undirmenn Svandísar og hinir tveir vinna hjá stofnunum sem heyra undir ráðuneyti Svandísar.
Í bréfinu segir að mikilvægt sé að hafa hraðar hendur svo að hægt sé að setja á nýja reglugerð um framhald hvalveiða fyrir 1. september, áður en hvalveiðar geta hafist að nýju.
Komist starfshópurinn að þeirri niðurstöðu á næstu vikum að hægt sé að stunda hvalveiðar sem samræmast lögum um velferð dýra skuli fella á brott reglugerð sem bannaði hvalveiðar tímabundið.
Í skipunarbréfinu er rakið álit fagráðs um velferð dýra og sagt að leggja þurfi aftur spurningar fyrir sérfræðinga um hvort hægt sé að stunda hvalveiðar innan ramma laga um velferð dýra.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 16.7.24 | 399,16 kr/kg |
Þorskur, slægður | 16.7.24 | 406,84 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 16.7.24 | 367,05 kr/kg |
Ýsa, slægð | 16.7.24 | 309,23 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 16.7.24 | 151,84 kr/kg |
Ufsi, slægður | 16.7.24 | 164,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.6.24 | 304,40 kr/kg |
Gullkarfi | 16.7.24 | 349,26 kr/kg |
Litli karfi | 8.7.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 1.7.24 | 106,00 kr/kg |
16.7.24 Ásbjörn RE 51 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 798 kg |
Samtals | 798 kg |
16.7.24 Skarphéðinn SU 3 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 701 kg |
Karfi | 63 kg |
Ufsi | 10 kg |
Samtals | 774 kg |
16.7.24 Bára HF 78 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 799 kg |
Samtals | 799 kg |
16.7.24 Viðvík SH 119 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 289 kg |
Ufsi | 2 kg |
Karfi | 2 kg |
Samtals | 293 kg |
16.7.24 Örnólfur AK 63 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 444 kg |
Ufsi | 12 kg |
Samtals | 456 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 16.7.24 | 399,16 kr/kg |
Þorskur, slægður | 16.7.24 | 406,84 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 16.7.24 | 367,05 kr/kg |
Ýsa, slægð | 16.7.24 | 309,23 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 16.7.24 | 151,84 kr/kg |
Ufsi, slægður | 16.7.24 | 164,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.6.24 | 304,40 kr/kg |
Gullkarfi | 16.7.24 | 349,26 kr/kg |
Litli karfi | 8.7.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 1.7.24 | 106,00 kr/kg |
16.7.24 Ásbjörn RE 51 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 798 kg |
Samtals | 798 kg |
16.7.24 Skarphéðinn SU 3 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 701 kg |
Karfi | 63 kg |
Ufsi | 10 kg |
Samtals | 774 kg |
16.7.24 Bára HF 78 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 799 kg |
Samtals | 799 kg |
16.7.24 Viðvík SH 119 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 289 kg |
Ufsi | 2 kg |
Karfi | 2 kg |
Samtals | 293 kg |
16.7.24 Örnólfur AK 63 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 444 kg |
Ufsi | 12 kg |
Samtals | 456 kg |