Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og formaður Starfsgreinasambandsins, fagnar því að Hvalur hafi ákveðið að bjóða starfsfólki sínu vinnu yfir sumarið þrátt fyrir að hvalveiðarnar hafi verið bannaðar.
Í færslu sem Vilhjálmur birtir á Facebook-síðu sinni segir hann ljóst að Hvalur sé með þessu að sjá til þess að fyrirtækið hafi starfsfólk þegar hvalveiðibanninu lýkur 1. september næstkomandi. Telur hann ljóst að fyrirtækið stefni að því að hefja veiðar þá.
„Rétt er að geta þess að sú vinna sem er í boði hjá Hval er einungis dagvinna ef ég skil þetta rétt og nema þær launatekjur einungis brot af þeim tekjum ef þetta ólöglega tímabundna hvalveiðibann hefði ekki komið til,“ skrifar hann.
„Það verður fróðlegt að sjá hvort matvælaráðherra [Svandís Svavarsdóttir] ætli að halda áfram að ástunda ógeðfelld stjórnsýsluvinnubrögð og heimila ekki veiðarnar 1. september eins og ráðherrann hefur nú þegar gefið í skyn að hún ætli sér að gera,“ skrifar hann.
Vilhjálmur kveðst sannfærður um að ríkisstjórnarsamstarfið springi verði veiðarnar ekki leyfðar. „Annað er nánast útilokað.“
„Það er alveg ljóst að Hvalur er að undirbúa margra milljarða skaðabótakröfu á hendur ríkinu. Það er bara spurning hversu há hún verður, en það mun væntanlega ráðast á því hvort veiðarnar verða heimilaðar 1. september eða ekki,“ skrifar hann.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.7.24 | 415,50 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.7.24 | 329,49 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.7.24 | 367,45 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.7.24 | 283,57 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.7.24 | 188,83 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.7.24 | 160,58 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.6.24 | 304,40 kr/kg |
Gullkarfi | 18.7.24 | 366,40 kr/kg |
Litli karfi | 8.7.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 1.7.24 | 106,00 kr/kg |
18.7.24 Hafrún HU 12 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 7.462 kg |
Steinbítur | 1.185 kg |
Þorskur | 862 kg |
Skarkoli | 113 kg |
Sandkoli | 109 kg |
Langlúra | 7 kg |
Samtals | 9.738 kg |
18.7.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 3.274 kg |
Þorskur | 1.585 kg |
Skarkoli | 379 kg |
Steinbítur | 77 kg |
Sandkoli | 47 kg |
Langlúra | 31 kg |
Þykkvalúra | 2 kg |
Samtals | 5.395 kg |
18.7.24 Hafborg EA 152 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 9.055 kg |
Þorskur | 1.200 kg |
Steinbítur | 800 kg |
Langlúra | 248 kg |
Sandkoli | 131 kg |
Skarkoli | 107 kg |
Hlýri | 82 kg |
Þykkvalúra | 54 kg |
Samtals | 11.677 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.7.24 | 415,50 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.7.24 | 329,49 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.7.24 | 367,45 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.7.24 | 283,57 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.7.24 | 188,83 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.7.24 | 160,58 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.6.24 | 304,40 kr/kg |
Gullkarfi | 18.7.24 | 366,40 kr/kg |
Litli karfi | 8.7.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 1.7.24 | 106,00 kr/kg |
18.7.24 Hafrún HU 12 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 7.462 kg |
Steinbítur | 1.185 kg |
Þorskur | 862 kg |
Skarkoli | 113 kg |
Sandkoli | 109 kg |
Langlúra | 7 kg |
Samtals | 9.738 kg |
18.7.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 3.274 kg |
Þorskur | 1.585 kg |
Skarkoli | 379 kg |
Steinbítur | 77 kg |
Sandkoli | 47 kg |
Langlúra | 31 kg |
Þykkvalúra | 2 kg |
Samtals | 5.395 kg |
18.7.24 Hafborg EA 152 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 9.055 kg |
Þorskur | 1.200 kg |
Steinbítur | 800 kg |
Langlúra | 248 kg |
Sandkoli | 131 kg |
Skarkoli | 107 kg |
Hlýri | 82 kg |
Þykkvalúra | 54 kg |
Samtals | 11.677 kg |