762 milljónir í veiðigjöld þrátt fyrir minni afla

Álagning veiðigjalda nam 762 milljónum króna í maí sem er …
Álagning veiðigjalda nam 762 milljónum króna í maí sem er aðeins minna en í sama mánuði í fyrra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tekjur ríkissjóðs af veiðigjöldum voru í maí síðastliðnum 762,6 milljónir króna sem er um 8% minni tekjur en í sama mánuði á síðasta ári. Var innheimt gjald af rúmlega 194 þúsund tonnum af sjávarfangi í fyrr en aðeins rúm 144 tonnum í sama mánuði í ár. Aflinn sem er til grundvallar gjaldinu dregst því saman um tæpan fjórðung.

Hins vegar hafa tekjur af innheimtu gjaldsins verið verulega hærri aðra mánuði ársins og nema tekjur frá janúar til maí 5.152 milljónum króna sem er 73% meira en fékkst á sama tímabili 2022, en allt síðasta ár voru greiddar 7.889 milljónir í veiðigjöld.

Þetta má lesa úr álagningu veiðigjalda sem birt hefur verið á upplýsingaveitu hins opinbera, Island.is.

Á fyrstu fimm mánuðum ársins greiddu 828 aðilar veiðigjöld en Brim hf. er stærsti staki greiðandi veiðigjalda og hefur félagið greitt 577,5 milljónir króna á tímabilinu. Fimm félög hafa greitt meira en 300 milljónir og eru það Síldarvinnslan hf. sem hefur greitt 528 milljónir, Ísfélag hf. með 442,2 milljónir, Samherji ehf. með 381,7 milljónir og Vinnslustöðin hf. sem greitt hefur 316,8 milljónir króna í veiðigjöld.

Samanlagt hafa tekjur ríkissjóðs af veiðigjöldum þessa fimm félaga sem greitt hafa mest verið 2.246,5 milljónir króna og er það 43,6% af öllum greiddum veiðigjöldum. Þau tíu sem greiddu mest stóðu fyrir 73,7% af innheimtum veiðigjöldum eða 3.798 milljónum króna.

Hlutfall stærstu minnkar

Auk þess að hafa greitt mest í veiðigjöld á fyrstu fimm mánuðum er Brim einnig stærsti staki greiðandi veiðigjalda í maí og greiddi fyrirtækið 77,3 milljónir króna. Greiddi Samherji rúmar 53 milljónir sem er næst hæsta upphæðin í maímánuði, en Síldarvinnslan greiddi 49,8 milljónir, Þorbjörn 39,3 milljónir og FISK Seafood 34,9 milljónir.

Þessi fimm félög greiddu því samanlagt 254 milljónir króna sem eru 33% af álögðum gjöldum. Hlutfallið er minna í maí en fyrir fyrstu fimm mánuði í heild meðal annars vegna þess hve þungt tekjur af loðnuvertíðinni vega í upphafi árs. Einnig fullnýttu lang flestar útgerðir 40% afslátt sem gefinn er af fyrstu 7.867.192 krónunum á fyrsta ársfjórðungi.

Þorskur og loðna skilað jafn miklu

Þorskur skilaði mestum tekjum í ríkissjóð vegna veiðigjalda í maí, alls 378,6 milljónum króna. Næst mestum tekjum skilaði kolmunni og námu álögð veiðigjöld rúmlega 149 milljónum, en þar á eftir fylgir ýsa með rúma 101 milljón.

Veiðar á þorski á fyrstu fimm mánuðum ársins hafa skilað ríkissjóði 1.847,8 milljónum króna vegna veiðigjalds, en þorskaflinn sem til grundvallar álagningarinnar var rúmlega 96 þúsund tonn á tímabilinu. Athygli vekur að veiðigjöld sem lögð eru á loðnu hafi skilað 1.804,6 milljónum króna og er það fyrir tæp 326 þúsund tonn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.7.24 399,16 kr/kg
Þorskur, slægður 16.7.24 406,84 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.7.24 367,05 kr/kg
Ýsa, slægð 16.7.24 309,23 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.7.24 151,84 kr/kg
Ufsi, slægður 16.7.24 164,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 16.7.24 349,26 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.7.24 Kristbjörg SH 84 Grásleppunet
Grásleppa 2.708 kg
Samtals 2.708 kg
16.7.24 Lára VI ÍS 112 Handfæri
Þorskur 430 kg
Ufsi 21 kg
Samtals 451 kg
16.7.24 Mar AK 74 Handfæri
Þorskur 752 kg
Karfi 20 kg
Samtals 772 kg
16.7.24 Ingi Rúnar AK 35 Handfæri
Þorskur 770 kg
Samtals 770 kg
16.7.24 Stapavík AK 8 Handfæri
Þorskur 685 kg
Karfi 36 kg
Ufsi 19 kg
Ýsa 16 kg
Samtals 756 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.7.24 399,16 kr/kg
Þorskur, slægður 16.7.24 406,84 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.7.24 367,05 kr/kg
Ýsa, slægð 16.7.24 309,23 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.7.24 151,84 kr/kg
Ufsi, slægður 16.7.24 164,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 16.7.24 349,26 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.7.24 Kristbjörg SH 84 Grásleppunet
Grásleppa 2.708 kg
Samtals 2.708 kg
16.7.24 Lára VI ÍS 112 Handfæri
Þorskur 430 kg
Ufsi 21 kg
Samtals 451 kg
16.7.24 Mar AK 74 Handfæri
Þorskur 752 kg
Karfi 20 kg
Samtals 772 kg
16.7.24 Ingi Rúnar AK 35 Handfæri
Þorskur 770 kg
Samtals 770 kg
16.7.24 Stapavík AK 8 Handfæri
Þorskur 685 kg
Karfi 36 kg
Ufsi 19 kg
Ýsa 16 kg
Samtals 756 kg

Skoða allar landanir »