Sjö umsóknir um sjókvíaeldi bíða afgreiðslu

Sjö ný rekstrarleyfi um sjókvíeldi bíða afgreiðslu Matvælastofnunar. Einnig liggja …
Sjö ný rekstrarleyfi um sjókvíeldi bíða afgreiðslu Matvælastofnunar. Einnig liggja fyrir stofnunninni átta umsóknir um breytt leyfi. mbl.is/Helgi Bjarnason

Sjö umsóknir um ný rekstrarleyfi fyrir sjókvíaeldi eru til meðferðar hjá Matvælastofnun. Þar af þrjár umsóknir vegna áforma um sjókvíaeldi á Austfjörðum og fjórar á Vestfjörðum. Umsóknirnar eru mislangt komnar.

Þetta kemur fram í umfjöllun Viðskiptablaðsins.

Tillaga að nýju rekstrarleyfi Arctic Fish vegna 5.200 tonna laxeldi í Ísafjarðardjúpi var auglýst í júní, en önnur umsókn vegna eldis í Ísafjarðardjúpi á eftir að fara í gegnum áhættumat vegna siglingaöryggis og á það einnig við um eina umsókn vegna eldis í Seyðisfirði.

Óvissa um afgreiðslu umsókna

Ekki er víst að allar þessar sjö umsóknir fáist afgreiddar á grundvelli gildandi laga þar sem lagabreytinga er að vænta.

í svari við fyrirspurn Viðskiptablaðsins segir deildarstjóri fiskeldisdeildar Matvælastofnunar stofnunina „skoða hvort fjórar af þessum sjö umsóknum um ný rekstrarleyfi til sjókvíaeldis falli utan skurðarpunkts laganna 19. júlí 2019 eða ekki. Falli þær utan skurðpunkts verður þeim umsóknum hafnað. Ef einhver umsókn eru hins vegar innan skurðpunkts þá verður sú umsókn afgreidd“.

Þá hefur Matvælastofnun átta umsóknir til meðferðar er snúa að breytingu á gildandi rekstrarleyfum og er afgreiðsla þeirra einnig sögð háð áhættumati siglingaöryggis. Aðeins er til slíkt mat fyrir þrjú eldissvæði Arctic Fish í Ísafjarðardjúpi og er ekki vitað hvenær verður lokið við gerð áhættumats annarra eldissvæða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 3.6.24 532,06 kr/kg
Þorskur, slægður 3.6.24 415,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 3.6.24 471,44 kr/kg
Ýsa, slægð 3.6.24 329,92 kr/kg
Ufsi, óslægður 3.6.24 227,44 kr/kg
Ufsi, slægður 3.6.24 244,75 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 3.6.24 337,43 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 30.5.24 362,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

3.6.24 Egill ÍS 77 Dragnót
Steinbítur 5.761 kg
Skarkoli 4.480 kg
Þorskur 2.110 kg
Ýsa 152 kg
Sandkoli 100 kg
Samtals 12.603 kg
3.6.24 Hafsvala BA 252 Grásleppunet
Grásleppa 929 kg
Samtals 929 kg
3.6.24 Mardöll BA 37 Handfæri
Þorskur 786 kg
Samtals 786 kg
3.6.24 Fagra Fríða AK 44 Handfæri
Þorskur 169 kg
Ufsi 22 kg
Karfi 3 kg
Ýsa 2 kg
Samtals 196 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 3.6.24 532,06 kr/kg
Þorskur, slægður 3.6.24 415,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 3.6.24 471,44 kr/kg
Ýsa, slægð 3.6.24 329,92 kr/kg
Ufsi, óslægður 3.6.24 227,44 kr/kg
Ufsi, slægður 3.6.24 244,75 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 3.6.24 337,43 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 30.5.24 362,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

3.6.24 Egill ÍS 77 Dragnót
Steinbítur 5.761 kg
Skarkoli 4.480 kg
Þorskur 2.110 kg
Ýsa 152 kg
Sandkoli 100 kg
Samtals 12.603 kg
3.6.24 Hafsvala BA 252 Grásleppunet
Grásleppa 929 kg
Samtals 929 kg
3.6.24 Mardöll BA 37 Handfæri
Þorskur 786 kg
Samtals 786 kg
3.6.24 Fagra Fríða AK 44 Handfæri
Þorskur 169 kg
Ufsi 22 kg
Karfi 3 kg
Ýsa 2 kg
Samtals 196 kg

Skoða allar landanir »