Landa makríl erlendis en erlend skip ekki hér

Ekki liggja fyrir samningar milli strandríkja um makrílveiðar og geta …
Ekki liggja fyrir samningar milli strandríkja um makrílveiðar og geta erlend skip ekki landað afla hér á landi, en íslensk geta landað erlendis. mbl.is/Árni Sæberg

Börkur NK kom til hafnar í Þórshöfn í Færeyjum í gær þar sem skipið landaði 2.100 tonnum af makríl og er það annað skipið sem landar makríl erlendis á vertíðinni, en Margrét EA landaði 1.740 tonnum í Noregi 10. ágúst síðastliðinn.

Engum erlendum skipum hefur verið veitt heimild til að landa makríl hér á landi á vertíðinni þrátt fyrir ósk þess efnis, en heimilt er að veita undanþágu frá ákvæði laga, að því er fram kemur í umfjöllun Morgunblaðsins.

Fjallað var um það á 200 mílum á mbl.is í lok júlí að færeysk stjórnvöld hefðu sent beiðni til íslenskra yfirvalda og óskað eftir því að færeysk uppsjávarskip fengju heimild til að landa makríl hér á landi. Þeirri beiðni var hafnað á meðan sambærileg beiðni Færeyinga í Noregi var samþykkt.

Leitað var til matvælaráðuneytisins og óskað eftir rökstuðningi þeirrar ákvörðunar að neita færeyskum skipum um að landa makríl í íslenskum höfnum. Svar ráðuneytisins við þeirri spurningu er stutt: „Samkvæmt lögum er bönnuð löndun erlendra skipa í íslenskum höfnum á afla úr deilistofnum sem ekki hefur verið gert samkomulag um. Það gildir almennt.“

Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.7.24 399,16 kr/kg
Þorskur, slægður 16.7.24 406,84 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.7.24 367,05 kr/kg
Ýsa, slægð 16.7.24 309,23 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.7.24 151,84 kr/kg
Ufsi, slægður 16.7.24 164,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 16.7.24 349,26 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.7.24 Ásbjörn RE 51 Handfæri
Þorskur 798 kg
Samtals 798 kg
16.7.24 Skarphéðinn SU 3 Handfæri
Þorskur 701 kg
Karfi 63 kg
Ufsi 10 kg
Samtals 774 kg
16.7.24 Bára HF 78 Handfæri
Þorskur 799 kg
Samtals 799 kg
16.7.24 Viðvík SH 119 Handfæri
Þorskur 289 kg
Ufsi 2 kg
Karfi 2 kg
Samtals 293 kg
16.7.24 Örnólfur AK 63 Handfæri
Þorskur 444 kg
Ufsi 12 kg
Samtals 456 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.7.24 399,16 kr/kg
Þorskur, slægður 16.7.24 406,84 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.7.24 367,05 kr/kg
Ýsa, slægð 16.7.24 309,23 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.7.24 151,84 kr/kg
Ufsi, slægður 16.7.24 164,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 16.7.24 349,26 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.7.24 Ásbjörn RE 51 Handfæri
Þorskur 798 kg
Samtals 798 kg
16.7.24 Skarphéðinn SU 3 Handfæri
Þorskur 701 kg
Karfi 63 kg
Ufsi 10 kg
Samtals 774 kg
16.7.24 Bára HF 78 Handfæri
Þorskur 799 kg
Samtals 799 kg
16.7.24 Viðvík SH 119 Handfæri
Þorskur 289 kg
Ufsi 2 kg
Karfi 2 kg
Samtals 293 kg
16.7.24 Örnólfur AK 63 Handfæri
Þorskur 444 kg
Ufsi 12 kg
Samtals 456 kg

Skoða allar landanir »