Hafró lýsir eftir strokulöxum

Lax í teljara í Laugardalsá í Ísafjarðardjúpi 22. ágúst 2023. …
Lax í teljara í Laugardalsá í Ísafjarðardjúpi 22. ágúst 2023. Ytri einkenni geta bent til eldisuppruna. Ljósmynd/NASF

Hafrannsóknarstofnun áréttar mikilvægi þess að laxveiðimenn og veiðiréttareigendur séu vakandi fyrir mögulegum eldiseinkennum á löxum sem þeir veiða.

Í tilkynningu á vef stofnunarinnar segir að áminningin sé gefin út vegna frétta um slysasleppingar laxa úr sjókvíum. 

Laxar sem mögulega eru strokulaxar úr eldi hafa nýlega sést í teljurum í ám hér á landi, til dæmis í Laugardalsá.

Einkennin geta verið mjög misáberandi milli eldislaxa sem fer m.a. eftir því hvenær í lífsferlinum viðkomandi lax slapp úr eldi.

Áríðandi er að löxum með eldiseinkenni sé komið til Hafrannsóknastofnunar til rannsókna.

Skýringarmynd/Hafrannsóknarstofnun

Eldislaxar veiðst í stangveiði

Við vöktun á mögulegum áhrifum eldislaxa á náttúrulega laxastofna eru nokkrir þættir vaktaðir. Nokkrar ár hér á landi eru vaktaðar með fiskteljurum. Fiskteljararnir eru búnir myndavélum sem gefa færi á nákvæmu stofnstærðarmati laxfiska, möguleika á mati á magni lúsa á fiski og greiningum á fiski af eldisuppruna.

Reglubundin söfnun erfðasýna af smáseiðum úr ám er notuð til að fylgjast með mögulegri erfðablöndun. Framkvæmd er erfðagreining á uppruna fiska sem veiðast og taldir eru af eldisuppruna.

Á síðustu árum hafa veiðst eldislaxar í stangveiði í ám hér á landi. Greiningar á erfðaefni seiða í ám hafa sýnt merki um erfðablöndun villtra íslenskra laxa og norskættaðra eldislaxa.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 471,71 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 396,54 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 366,25 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 235,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,94 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,72 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 5.403 kg
Langa 535 kg
Ýsa 442 kg
Keila 336 kg
Steinbítur 155 kg
Karfi 109 kg
Hlýri 62 kg
Samtals 7.042 kg
22.7.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Ýsa 3.160 kg
Þorskur 1.817 kg
Skarkoli 867 kg
Skrápflúra 307 kg
Sandkoli 48 kg
Steinbítur 31 kg
Þykkvalúra 9 kg
Karfi 6 kg
Ufsi 5 kg
Langlúra 3 kg
Samtals 6.253 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 471,71 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 396,54 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 366,25 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 235,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,94 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,72 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 5.403 kg
Langa 535 kg
Ýsa 442 kg
Keila 336 kg
Steinbítur 155 kg
Karfi 109 kg
Hlýri 62 kg
Samtals 7.042 kg
22.7.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Ýsa 3.160 kg
Þorskur 1.817 kg
Skarkoli 867 kg
Skrápflúra 307 kg
Sandkoli 48 kg
Steinbítur 31 kg
Þykkvalúra 9 kg
Karfi 6 kg
Ufsi 5 kg
Langlúra 3 kg
Samtals 6.253 kg

Skoða allar landanir »