Tveir eldislaxar kunna að hafa fengist í silunganet í Selá í Skjaldfannardal við Ísafjarðadjúp. Guðjón Kr. Guðjónsson, sem veiddi laxana, segist ætla að tilkynna málið og skila fiskunum til Matvælastofnunar.
Hann segir fiskana hafa einkenni sem bendi til þess að þette séu eldislaxar. „Þeir eru frekar slappir – þetta er í silunganeti – og þeir ánetjast voða lítið, eru nánast lausir þegar maður dregur á land. Þannig að baráttuhugurinn er ekki mikill. Síðan eru þeir með tættan sporð, þeir eru ekki með alvöru sporð,“ segir Guðjón.
Hann segist ekki hafa tilfinningu fyrir því hvort eldislax í ánni sé vaxandi vandamál. „Þetta er greinilega að sleppa einhversstaðar frá og maður grunar nágranna sína í Skutulsfirði eða annarstaðar, nóg er af þessu í dag.“
Spurður hvort hann hafi áhyggjur af erfðablöndun á svæðinu svarar Guðjón: „Ég hef ekki vitneskju um það. Ég held það sé ekki holl blöndun ef blöndun á sér stað, en ég veit ekkert hvort þetta sé hrygningarfiskur – er ekki búinn að gera að þeim. Þannig að ég er tiltölulega slakur með þetta ennþá.“
Síðast var tilkynnt um gat á sjókví sem notuð er til eldis á laxi í Ísafjarðardjúpi í febrúar. Gatið uppgötvaðist við reglubundið eftirlit á kví C5 og var framkvæmd bráðabirgðaviðgerð. Samkvæmt upplýsingum Háafells var gatið um tíu sinnum fjórir sentímetrar og á tíu metra dýpi. Í þessari tilteknu kví voru 115.255 laxaseiði sem sett voru í kvínna 5. október 2022. Seiðin voru í febrúar 500 grömm að þyngd að meðaltali.
Ekki er vitað hvort fiskar hafi strokið eða hve margir þeir kunna að vera. ekki er heldur víst, reynast fiskarnir sem Guðjón veiddi í Selá vera eldislaxar, að þeir séu úr kví í Ísafjarðardjúupi.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 22.7.24 | 471,71 kr/kg |
Þorskur, slægður | 22.7.24 | 396,54 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 22.7.24 | 366,25 kr/kg |
Ýsa, slægð | 22.7.24 | 235,69 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 22.7.24 | 246,94 kr/kg |
Ufsi, slægður | 22.7.24 | 223,45 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.6.24 | 304,40 kr/kg |
Gullkarfi | 22.7.24 | 607,72 kr/kg |
Litli karfi | 8.7.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 1.7.24 | 106,00 kr/kg |
22.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Þorskur | 5.403 kg |
Langa | 535 kg |
Ýsa | 442 kg |
Keila | 336 kg |
Steinbítur | 155 kg |
Karfi | 109 kg |
Hlýri | 62 kg |
Samtals | 7.042 kg |
22.7.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 3.160 kg |
Þorskur | 1.817 kg |
Skarkoli | 867 kg |
Skrápflúra | 307 kg |
Sandkoli | 48 kg |
Steinbítur | 31 kg |
Þykkvalúra | 9 kg |
Karfi | 6 kg |
Ufsi | 5 kg |
Langlúra | 3 kg |
Samtals | 6.253 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 22.7.24 | 471,71 kr/kg |
Þorskur, slægður | 22.7.24 | 396,54 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 22.7.24 | 366,25 kr/kg |
Ýsa, slægð | 22.7.24 | 235,69 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 22.7.24 | 246,94 kr/kg |
Ufsi, slægður | 22.7.24 | 223,45 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.6.24 | 304,40 kr/kg |
Gullkarfi | 22.7.24 | 607,72 kr/kg |
Litli karfi | 8.7.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 1.7.24 | 106,00 kr/kg |
22.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Þorskur | 5.403 kg |
Langa | 535 kg |
Ýsa | 442 kg |
Keila | 336 kg |
Steinbítur | 155 kg |
Karfi | 109 kg |
Hlýri | 62 kg |
Samtals | 7.042 kg |
22.7.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 3.160 kg |
Þorskur | 1.817 kg |
Skarkoli | 867 kg |
Skrápflúra | 307 kg |
Sandkoli | 48 kg |
Steinbítur | 31 kg |
Þykkvalúra | 9 kg |
Karfi | 6 kg |
Ufsi | 5 kg |
Langlúra | 3 kg |
Samtals | 6.253 kg |