Hvalveiðar heimilaðar með takmörkunum

Alls hafa hvalveiðiskipin komið til Hvalfjarðar með 139 langreyðar á …
Alls hafa hvalveiðiskipin komið til Hvalfjarðar með 139 langreyðar á vertíðinni í fyrra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra mun í dag setja nýja reglugerð sem ætlað er að bæta umgjörð veiða á langreyðum. Með reglugerðinni er brugðist við niðurstöðum eftirlitsskýrslu Matvælastofnunar um veiðar á langreyðum árið 2022, áliti fagráðs um velferð dýra og skýrslu starfshóps um mat á leiðum til að fækka frávikum við veiðarnar.

Þetta segir í tilkynningu á vef stjórnarráðsins.

Þá segir að reglugerðin sem sett verður feli í sér „ítarlegar og hertari kröfur til veiðibúnaðar, veiðiaðferða og aukið eftirlit. Skilyrðin snúa m.a. að þjálfun, fræðslu, veiðibúnaði og veiðiaðferðum.“

Þá munu Matvælastofnun og Fiskistofa vinna saman að eftirliti með veiðunum. Ráðgert er að stofnanirnar sendi ráðuneytinu skýrslu við lok veiðitímabils þar sem dregnar eru saman helstu niðurstöður eftirlits með hvalveiðum 2023.

„Með hliðsjón af fyrirliggjandi gögnum frá Matvælastofnun og fagráði um velferð dýra, var það mat ráðuneytisins að veiðar á langreyðum gætu ekki farið fram í samræmi við kröfur laga um hvalveiðar og laga um velferð dýra. Til að bregðast við framangreindu var farin sú leið að fresta fyrirhuguðu upphafi veiðitímabilsins til 1. september,“ segir um bannið sem sett var á veiðarnar.

Var vonast til að unnt væri að gera úrbætur, en í áliti fagráðs var talið vandséð að unnt væri að gera úrbætur á veiðunum. Með tilliti til hagsmuna veiðileyfishafa var tímarammi frestunar settur eins þröngur og unnt var en sem gæfi jafnframt svigrúm til að leita leiða til að minnka frávik við veiðarnar.

„Starfshópur sérfræðinga skipaður fulltrúum matvælaráðuneytisins, Matvælastofnunar og Fiskistofu var síðan skipaður í júlí 2023. Hópurinn skyldi leggja mat á leiðir til að fækka frávikum við veiðarnar. Starfshópurinn skilaði skýrslu sinni 28. ágúst sl. og er mat hópsins m.a. að mögulegt sé að bæta veiðiaðferðir við veiðar á stórhvelum.“

Á grundvelldi skýrslunnar telur matvælaráðuneytið að forsendur séu til að gera breytingar á veiðiaðferðinni sem geti stuðlað að fækkun frávika við veiðarnar og þar með aukinni dýravelferð.

Fréttin hefur verið uppfærð

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.7.24 415,50 kr/kg
Þorskur, slægður 18.7.24 329,49 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.7.24 367,45 kr/kg
Ýsa, slægð 18.7.24 283,57 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.7.24 188,83 kr/kg
Ufsi, slægður 18.7.24 160,58 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 18.7.24 366,40 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.7.24 Hafrún HU 12 Dragnót
Ýsa 7.462 kg
Steinbítur 1.185 kg
Þorskur 862 kg
Skarkoli 113 kg
Sandkoli 109 kg
Langlúra 7 kg
Samtals 9.738 kg
18.7.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Ýsa 3.274 kg
Þorskur 1.585 kg
Skarkoli 379 kg
Steinbítur 77 kg
Sandkoli 47 kg
Langlúra 31 kg
Þykkvalúra 2 kg
Samtals 5.395 kg
18.7.24 Hafborg EA 152 Dragnót
Ýsa 9.055 kg
Þorskur 1.200 kg
Steinbítur 800 kg
Langlúra 248 kg
Sandkoli 131 kg
Skarkoli 107 kg
Hlýri 82 kg
Þykkvalúra 54 kg
Samtals 11.677 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.7.24 415,50 kr/kg
Þorskur, slægður 18.7.24 329,49 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.7.24 367,45 kr/kg
Ýsa, slægð 18.7.24 283,57 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.7.24 188,83 kr/kg
Ufsi, slægður 18.7.24 160,58 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 18.7.24 366,40 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.7.24 Hafrún HU 12 Dragnót
Ýsa 7.462 kg
Steinbítur 1.185 kg
Þorskur 862 kg
Skarkoli 113 kg
Sandkoli 109 kg
Langlúra 7 kg
Samtals 9.738 kg
18.7.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Ýsa 3.274 kg
Þorskur 1.585 kg
Skarkoli 379 kg
Steinbítur 77 kg
Sandkoli 47 kg
Langlúra 31 kg
Þykkvalúra 2 kg
Samtals 5.395 kg
18.7.24 Hafborg EA 152 Dragnót
Ýsa 9.055 kg
Þorskur 1.200 kg
Steinbítur 800 kg
Langlúra 248 kg
Sandkoli 131 kg
Skarkoli 107 kg
Hlýri 82 kg
Þykkvalúra 54 kg
Samtals 11.677 kg

Skoða allar landanir »