Svo virðist sem hugmyndir um að beita rafmagni við hvalveiðar séu slegnar út af borðinu við gerð hertra reglna um framkvæmd veiðanna ef marka má tilkynningu sem birt var á vef stjórnarráðsins í dag.
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra tilkynnti að loknum ríkisstjórnarfundi á Egilsstöðum að í nýrri reglugerð um hvalveiðar yrðu skilyrði og eftirlit hert til að mæta niðurstöðum skýrslu Matvælastofnunar um að veiðar síðasta árs hefðu ekki samræmst markmiðum laga um dýravelferð.
Í kjölfar þess að skýrslan kom út í maí var greint frá því að Hvalur hf. hefði verið að þróa endurbætta veiðiaðferð sem hugsuð er sem viðbót við sprengiskutlana. Hefur evrið skoðað að tengja rafmagn við skotlínuna og skutulinn og þannig verði hægt að aflífa hvalinn hratt og örugglega, ef hann drepst ekki við fyrsta skot.
Í tilkynningu sem birt var í dag á vef stjórnarráðsins um væntanlega nýja reglugerð um hvalveiðar segir hins vegar.: „Ráðuneytið vekur athygli á því að í skýrslu starfshópsins kemur fram að ýmsum spurningum sé ósvarað varðandi mögulega virkni og áhrif rafmagns við aflífun og því gerir reglugerðin ekki ráð fyrir notkun á slíkum búnaði.“
Það má því ætla að notkun rafmagns við veiðar á stórhvelum sé ekki að fara að rúmast innan þeirra marka sem ný reglugerð setur.
Um hugmyndir Hvals sagði Matvælastofnun í maí að stofnunin fagni allri framþróun við veiðar sem stuðlað gætu að betri dýravelferð, en benti á að notkun rafmagns til að valda dýrum meðvitunarleysi við aflífun geti verið vandmeðfarin og að hárfín lína geti verið milli þess að valda meðvitundarleysi eða valda meiri þjáningum. Þá telur stofnunin að erfitt sé að meta hvort rafstuðið væri að valda stórhveli meðvitundarleysi nema á þeim væru mælitæki sem staðfestu það.