Sögðust aldrei hafa séð langreyði

Hvalavinirnir sjást hér hressir í krákuhreiðrum Hvals 8 og Hvals …
Hvalavinirnir sjást hér hressir í krákuhreiðrum Hvals 8 og Hvals 9. mbl.is/Kristinn Magnússon

Hvalveiðibátarnir Hvalur 8 og Hvalur 9 hafa verið í kastljósi fjölmiðla í nær allan dag. Ástæðan er vera tveggja mótmælenda sem klifrað hafa upp í krákuhreiður skipanna í þeim tilgangi að mótmæla veiðum Íslendinga á langreyðum. Hefur m.a. verið bein útsending frá mótmælunum með hljóðupptöku. Á henni heyrðust mótmælendurnir ræða sín á milli um langreyðar og að þeir hafi í raun aldrei séð slíka hvalategund áður.

Þegar annar mótmælandinn spurði hinn hvort hann hafi séð lifandi langreyði var svarið stutt og skýrt: „Nei“. Sagðist þá sá sem spurði ekki heldur hafa séð lifandi langreyði. Bætti svo við að gaman væri að sjá slíka hvalategund einhvern tímann á lífsleiðinni.

Skömmu áður en þetta samtal átti sér stað hrósuðu mótmælendurnir sjálfum sér fyrir úthaldið um borð í skipunum.

Nokkur fjöldi lögreglumanna er enn á vettvangi og fylgist rólegur með því sem fyrir augum ber. Auk þeirra eru fremur fámennur hópur hvalavina viðstaddur. Og sagði einn þeirra ástæðuna fyrir fámenninu vera „leti Íslendinga“. Þeir nenntu ekki að mótmæla annars staðar en heima í stofu.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 471,71 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 396,54 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 366,25 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 235,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,94 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,72 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 5.403 kg
Langa 535 kg
Ýsa 442 kg
Keila 336 kg
Steinbítur 155 kg
Karfi 109 kg
Hlýri 62 kg
Samtals 7.042 kg
22.7.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Ýsa 3.160 kg
Þorskur 1.817 kg
Skarkoli 867 kg
Skrápflúra 307 kg
Sandkoli 48 kg
Steinbítur 31 kg
Þykkvalúra 9 kg
Karfi 6 kg
Ufsi 5 kg
Langlúra 3 kg
Samtals 6.253 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 471,71 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 396,54 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 366,25 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 235,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,94 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,72 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 5.403 kg
Langa 535 kg
Ýsa 442 kg
Keila 336 kg
Steinbítur 155 kg
Karfi 109 kg
Hlýri 62 kg
Samtals 7.042 kg
22.7.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Ýsa 3.160 kg
Þorskur 1.817 kg
Skarkoli 867 kg
Skrápflúra 307 kg
Sandkoli 48 kg
Steinbítur 31 kg
Þykkvalúra 9 kg
Karfi 6 kg
Ufsi 5 kg
Langlúra 3 kg
Samtals 6.253 kg

Skoða allar landanir »