Vonar að mótmælandinn nái að „halda nógu lengi út“

Elissa Biou, mótmælandi sem hefur læst sig í mastri hvalveiðiskips við Reykjavíkurhöfn, er sjálfboðaliði hjá Bretlandsdeild Paul Watson-samtakanna. Hún er hér á vegum Paiakan-verkefnis samtakanna.

Frá þessu segir Imogen Sawyer, samhæfingarstjóri hjá samtökunum, við blaðamann mbl.is. Hún segir að mótmæli Elissu séu þó ekki á vegum samtakanna.

Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá lögreglumann, sem er búinn að klifra upp mastrið, ræða við mótmælandann.

„Við erum hér á Íslandi vegna Paiakan-verkefnisins til þess að skrásetja hvalveiðar hér og til að halda til haga hvað sé gert við hvalina eftir að þeir eru veiddir,“ segir Sawyer.

Tekur hún sem dæmi að kannað sé hversu mörgum skutlum hafi verið skotið í dýrin, hvar þeir hafi lent í þeim og hvort kýrnar hafi verið ófrískar.

„Í grunninn það sem MAST á að vera að gera, en við höfum gert frá árinu 2018,“ segir Sawyer.

Vonar að Svandís endurskoði

„Von mín er að Elissa nái að halda nógu lengi út þarna til þess að skapa umræðu á Íslandi til þess að Svandís muni endurhugsa ákvörðun sína um að leyfa hvalveiðar aftur,“ segir Sawyer.

Hún bendir á að það rétta sem Svandís eigi að gera sé að fara eftir þeim skýrslum sem henni hafi verið afhent síðustu mánuði sem segi að hvalveiðar verði að taka enda.

„Sérfræðingar um dýravernd voru mjög skýrir um það hversu slæmt það er að drepa hvali. Við erum því mjög vonsvikin með ákvörðun Svandísar. Við sjáum að hún er kannski að sýna kænsku en það er ekki í lagi að fórna þessum hvölum til þess að hún geti haldið áfram pólitískum leik sínum.“

Imogen Sawyer er hér á landi á vegum Paiakan-verkefnis Bretlandsdeildar …
Imogen Sawyer er hér á landi á vegum Paiakan-verkefnis Bretlandsdeildar Paul Watson-samtakanna. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 471,71 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 396,54 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 366,25 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 235,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,94 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,72 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 5.403 kg
Langa 535 kg
Ýsa 442 kg
Keila 336 kg
Steinbítur 155 kg
Karfi 109 kg
Hlýri 62 kg
Samtals 7.042 kg
22.7.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Ýsa 3.160 kg
Þorskur 1.817 kg
Skarkoli 867 kg
Skrápflúra 307 kg
Sandkoli 48 kg
Steinbítur 31 kg
Þykkvalúra 9 kg
Karfi 6 kg
Ufsi 5 kg
Langlúra 3 kg
Samtals 6.253 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 471,71 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 396,54 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 366,25 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 235,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,94 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,72 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 5.403 kg
Langa 535 kg
Ýsa 442 kg
Keila 336 kg
Steinbítur 155 kg
Karfi 109 kg
Hlýri 62 kg
Samtals 7.042 kg
22.7.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Ýsa 3.160 kg
Þorskur 1.817 kg
Skarkoli 867 kg
Skrápflúra 307 kg
Sandkoli 48 kg
Steinbítur 31 kg
Þykkvalúra 9 kg
Karfi 6 kg
Ufsi 5 kg
Langlúra 3 kg
Samtals 6.253 kg

Skoða allar landanir »