Fór inn á lokað svæði og var handtekin

Frá handtökunni við höfnina.
Frá handtökunni við höfnina. mbl.is/Eggert Johannesson

Mótmælandi sem fór inn á lokaða svæðið við gömlu höfnina í Reykjavík var handtekin nú rétt í þessu. Fjölmiðlafólki hafði verið heimilt að vera á svæðinu, en ekki almenningi.

Konan fór inn á svæði sem lögreglan hafði girt af …
Konan fór inn á svæði sem lögreglan hafði girt af vegna mótmælanna. mbl.is/Eggert Johannesson

Konan hafði farið inn á svæðið til að kalla til kvennanna tveggja sem mótmæla í möstrum hvalveiðiskipa Hvals.

Lögreglan stöðvaði för konunnar.
Lögreglan stöðvaði för konunnar. mbl.is/Eggert Johannesson

Lögreglan stöðvaði för konunnar og ætlaði að færa hana af svæðinu. Þegar hún streittist á móti handtók lögreglan konuna og færði hana í lögreglubifreið.

Samkvæmt blaðamanni mbl.is á svæðinu voru þær Elissa og Anahita, mótmælendurnir sem halda til í mastri skipanna, að kalla niður til stuðningsfólks síns. Hins vegar heyrðist lítið í þeim, þar sem fólkið er í nokkurri fjarlægð. Hingað til hefur einn úr hópi mótmælenda, Micah Garen, fengið að vera inn á svæðinu, en hann er einnig kvikmyndagerðarmaður. Hann var þegar þetta átti sér stað hins vegar ekki á vettvangi. Ákvað þá konan, sem einnig er hluti af Paul Watson-samtökunum, að hlaupa inn á lokaða svæðið til að heyra hvað konurnar voru að segja.

Þegar hún sneri við stöðvaði lögreglan hins vegar för hennar. Samkvæmt blaðamanni veitti konan þá mótspyrnu og sló frá sér, mögulega þannig að slegið hafi verið til lögreglunnar. Var hún því í kjölfarið handtekin og færð í lögreglubíl og síðar keyrð í burtu af vettvangi í lögreglubílnum.

Beint eftir handtökuna hélt lögreglumaður upp í mastur Hvals 8, þar sem Elissa er. Ræddi lögreglumaður við hana í nokkra stund áður en hann kom niður aftur. Virðist lögreglan ætla að halda upp í mastur Hvals 9, þar sem Anahita er. 

Er þetta í annað skiptið í dag sem lögreglan heldur upp í mastur skipanna.

Lögreglan handtók konuna við höfnina í Reykjavík rétt í þessu.
Lögreglan handtók konuna við höfnina í Reykjavík rétt í þessu. mbl.is/Hólmfríður
Lögreglan ætlaði að vísa konunni af vettvangi, en hún streittist …
Lögreglan ætlaði að vísa konunni af vettvangi, en hún streittist á móti og var handtekin. mbl.is/Hólmfríður
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.7.24 399,16 kr/kg
Þorskur, slægður 16.7.24 406,84 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.7.24 367,05 kr/kg
Ýsa, slægð 16.7.24 309,23 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.7.24 151,84 kr/kg
Ufsi, slægður 16.7.24 164,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 16.7.24 349,26 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.7.24 Kristbjörg SH 84 Grásleppunet
Grásleppa 2.708 kg
Samtals 2.708 kg
16.7.24 Lára VI ÍS 112 Handfæri
Þorskur 430 kg
Ufsi 21 kg
Samtals 451 kg
16.7.24 Mar AK 74 Handfæri
Þorskur 752 kg
Karfi 20 kg
Samtals 772 kg
16.7.24 Ingi Rúnar AK 35 Handfæri
Þorskur 770 kg
Samtals 770 kg
16.7.24 Stapavík AK 8 Handfæri
Þorskur 685 kg
Karfi 36 kg
Ufsi 19 kg
Ýsa 16 kg
Samtals 756 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.7.24 399,16 kr/kg
Þorskur, slægður 16.7.24 406,84 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.7.24 367,05 kr/kg
Ýsa, slægð 16.7.24 309,23 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.7.24 151,84 kr/kg
Ufsi, slægður 16.7.24 164,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 16.7.24 349,26 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.7.24 Kristbjörg SH 84 Grásleppunet
Grásleppa 2.708 kg
Samtals 2.708 kg
16.7.24 Lára VI ÍS 112 Handfæri
Þorskur 430 kg
Ufsi 21 kg
Samtals 451 kg
16.7.24 Mar AK 74 Handfæri
Þorskur 752 kg
Karfi 20 kg
Samtals 772 kg
16.7.24 Ingi Rúnar AK 35 Handfæri
Þorskur 770 kg
Samtals 770 kg
16.7.24 Stapavík AK 8 Handfæri
Þorskur 685 kg
Karfi 36 kg
Ufsi 19 kg
Ýsa 16 kg
Samtals 756 kg

Skoða allar landanir »