Guðmundur Gíslason segir upp forstjórastöðu

Guðmundur Gíslason, forstjóri Ice Fish farm, hefur ákveðið að láta …
Guðmundur Gíslason, forstjóri Ice Fish farm, hefur ákveðið að láta af störfum, en hann mun taka að sér nýtt hlutverk innan samstæðunnar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Guðmundur Gíslason hefur óskað eftir því við stjórn Ice Fish Farm að láta af störfum sem æðsti stjórnandi fiskeldisfyrirtækisins sem starfrækt er á Austfjörðum. Hann mun í framhaldinu taka að sér nýtt hlutverk innan samstærðunnar og vinna að skipulagningu sölu afurða.

Þetta kemur fram í tilkynningu til norsku kauphallarinnar.

Guðmundur hefur verið í leiðtogahlutverki hjá fyrirtækinu um langt skeið og gegndi stöðu stjórnarformanns Fiskeldis Austfjarða ehf. áður en það sameinaðist Löxum ehf. undir merkjum Ice Fish Farm, en stærstu hluthafar sameinaðs félags eru norska eignarhaldsfélagið Måsøval Eiendom og Ísfélag hf.

„Það hefur verið ótrúlegt ferðalag með frábærum samstarfsmönnum að vera forstjóri Ice Fish á tíma mikils vaxtar og uppbyggingu nýrrar og sjálfbærrar atvinnugreinar á Íslandi undanfarin 12 ár. Ég hlakka mikið til að halda áfram að starfa fyrir og styðja félagið í framtíðinni með því að halda áfram að þróa markaði fyrir Ice Fish Farm,“ er haft eftir Guðmundi í tilkynningunni.

„Guðmundur hefur verið sannur frumkvöðull og leiðtogi Ice Fish frá árinu 2012 á tímabili þar sem fyrirtækið hefur farið frá því að vera á hugmyndastigi yfir í að verða lykilaðili í nýjum sjálfbærum íslenskum iðnaði. Ég er mjög þakklátur fyrir það sem hann hefur lagt af mörkum og hlakka til áframhaldandi samstarfs okkar á komandi árum,“ segir Asle Rønning, stjórnarformaður Ice Fish Farm.

Stjórn félagsins hefur þegar hafið störf við að finna arftaka Guðmundar og er áætlað að leitin muni taka nokkra mánuði, en Guðmundur mun gegna starfi forstjóra þar til nýr forstjóri tekur við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.7.24 Stína SH 91 Grásleppunet
Grásleppa 277 kg
Samtals 277 kg
27.7.24 Andri SH 450 Grásleppunet
Grásleppa 852 kg
Samtals 852 kg
27.7.24 Sendlingur ÍS 415 Sjóstöng
Þorskur 372 kg
Samtals 372 kg
27.7.24 Álft ÍS 413 Sjóstöng
Þorskur 239 kg
Samtals 239 kg
26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.7.24 Stína SH 91 Grásleppunet
Grásleppa 277 kg
Samtals 277 kg
27.7.24 Andri SH 450 Grásleppunet
Grásleppa 852 kg
Samtals 852 kg
27.7.24 Sendlingur ÍS 415 Sjóstöng
Þorskur 372 kg
Samtals 372 kg
27.7.24 Álft ÍS 413 Sjóstöng
Þorskur 239 kg
Samtals 239 kg
26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg

Skoða allar landanir »