Lönduðu fjórum langreyðum í dag

Fjórar langreyðar veiddust í gær.
Fjórar langreyðar veiddust í gær. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Það viðraði einstaklega vel til hvalveiða um helgina og hafa veiðar gengið vel. Í gær tókst áhöfnum Hvals hf.  að ná fjórum langreyðum sem komið var með til hafnar í Hvalfirði í dag.

Föstudag síðastliðinn var landað tveimur langreyðum og var það fyrsti afli veiðanna sem byrjuðu óvenju seint vegna tímabundins banns við veiðunum í kjölfar skýrslu Matvælastofnunar um að veiðarnar á síðasta ári, en þá ályktaði stofnunin að framkvæmd veiðanna hefði ekki samræmst markmiðum laga um dýravelferð.

Elín B. Ragnarsdóttir, sviðsstjóri veiðieftirlits hjá Fiskistofu, segir að svo komnu ekki hafa komið upp neitt við framkvæmd veiðanna sem brýtur í bága við þá eftirlitsþætti sem Fiskistofa sinnir, en stofnunin hefur eftirlit með veiðibúnaði og hvort uppfyllt eru skilyrði sem fram koma í veiðileyfi.

Elín bendir þó á að enn sé verið að vinna úr þeim gögnum sem aflað hefur verið og að eftirlit með þeim þáttum er snúa að dýravelferð falli undir verkefni Matvælastofnunar.

Í nýrri reglugerð um tilhögun veiða er gert ráð fyrir að áhafnir hvalveiðibáta þurfi að uppfylla sett skilyrði, meðal annars að hafa sótt námskeið sem hafa hlotið vottun Fiskistofu og Matvælastofnunar. Elín upplýsir að sá liður reglugerðarinnar taki ekki gildi fyrr en 18. september og að unnið sé að því að meta þau námskeið sem áhafnirnar hafa þegar sótt og hvort eitthvað vanti til að uppfylla þau skilyrði sem sett hafa verið. Þeirri vinnu er ekki lokið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 471,71 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 396,54 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 366,25 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 235,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,94 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,72 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 5.403 kg
Langa 535 kg
Ýsa 442 kg
Keila 336 kg
Steinbítur 155 kg
Karfi 109 kg
Hlýri 62 kg
Samtals 7.042 kg
22.7.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Ýsa 3.160 kg
Þorskur 1.817 kg
Skarkoli 867 kg
Skrápflúra 307 kg
Sandkoli 48 kg
Steinbítur 31 kg
Þykkvalúra 9 kg
Karfi 6 kg
Ufsi 5 kg
Langlúra 3 kg
Samtals 6.253 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 471,71 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 396,54 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 366,25 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 235,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,94 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,72 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 5.403 kg
Langa 535 kg
Ýsa 442 kg
Keila 336 kg
Steinbítur 155 kg
Karfi 109 kg
Hlýri 62 kg
Samtals 7.042 kg
22.7.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Ýsa 3.160 kg
Þorskur 1.817 kg
Skarkoli 867 kg
Skrápflúra 307 kg
Sandkoli 48 kg
Steinbítur 31 kg
Þykkvalúra 9 kg
Karfi 6 kg
Ufsi 5 kg
Langlúra 3 kg
Samtals 6.253 kg

Skoða allar landanir »