Bjarni Sæmundsson strand – 8 komnir frá borði

Rannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson strandaði í Tálknafirði í kvöld. Mynd frá …
Rannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson strandaði í Tálknafirði í kvöld. Mynd frá vettvangi. Ljósmynd/Landsbjörg

Tvö skip slysavarnarfélagsins Landsbjargar hafa nú komið átta frá borði rannsóknarskipsins Bjarna Sæmundssonar sem strandaði í Tálknafirði í kvöld. 20 manns voru um borð í skipinu þegar það strandaði.  

Frá vettvangi í kvöld.
Frá vettvangi í kvöld. Ljósmynd/Landsbjörg

Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni barst tilkynning um að skipið hafi strandað í  Sveinseyri á móti innsiglingunni í Tálknafirði klukkan 21.15 í kvöld.

Tveir bátar og þyrla í viðbragðsstöðu

Tveir bátar á vegum slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Patreksfirði og í Tálknafirði hafa verið ræstir út og er þyrla Landhelgisgæslunnar í viðbragstöðu. 

Ljósmynd/Landsbjörg

Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir veðurskilyrði á svæðinu þokkaleg og að engin slys hafi orðið á fólki. Þá eigi eftir að koma í ljós hvort skipið komist á flot á háflóði sem von er á klukkan 23.30. 

Björgunarsveitir að störfum

Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir björgunarsveitir frá Tálknafirði og Patreksfirði nú starfa á vettvangi. 

Ljósmynd/Landsbjörg

„Þarna er björgunarskipið Vörður 2 frá Patreksfirði og báturinn Njörður frá Tálknafirði. Það voru átta manns ferjaðir í land með Nirði áðan og færðir í íþróttahúsið,“ segir Jón Þór sem bætir við að verið sé að opna fjöldahjálparstöð í íþróttahúsinu

Fréttin verður uppfærð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.7.24 399,16 kr/kg
Þorskur, slægður 16.7.24 406,84 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.7.24 367,05 kr/kg
Ýsa, slægð 16.7.24 309,23 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.7.24 151,84 kr/kg
Ufsi, slægður 16.7.24 164,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 16.7.24 349,26 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.7.24 Ásbjörn RE 51 Handfæri
Þorskur 798 kg
Samtals 798 kg
16.7.24 Skarphéðinn SU 3 Handfæri
Þorskur 701 kg
Karfi 63 kg
Ufsi 10 kg
Samtals 774 kg
16.7.24 Bára HF 78 Handfæri
Þorskur 799 kg
Samtals 799 kg
16.7.24 Viðvík SH 119 Handfæri
Þorskur 289 kg
Ufsi 2 kg
Karfi 2 kg
Samtals 293 kg
16.7.24 Örnólfur AK 63 Handfæri
Þorskur 444 kg
Ufsi 12 kg
Samtals 456 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.7.24 399,16 kr/kg
Þorskur, slægður 16.7.24 406,84 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.7.24 367,05 kr/kg
Ýsa, slægð 16.7.24 309,23 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.7.24 151,84 kr/kg
Ufsi, slægður 16.7.24 164,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 16.7.24 349,26 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.7.24 Ásbjörn RE 51 Handfæri
Þorskur 798 kg
Samtals 798 kg
16.7.24 Skarphéðinn SU 3 Handfæri
Þorskur 701 kg
Karfi 63 kg
Ufsi 10 kg
Samtals 774 kg
16.7.24 Bára HF 78 Handfæri
Þorskur 799 kg
Samtals 799 kg
16.7.24 Viðvík SH 119 Handfæri
Þorskur 289 kg
Ufsi 2 kg
Karfi 2 kg
Samtals 293 kg
16.7.24 Örnólfur AK 63 Handfæri
Þorskur 444 kg
Ufsi 12 kg
Samtals 456 kg

Skoða allar landanir »