Síldarvinnslan kaupir helming í félagi Samherja

Togarar Samherja hafa verið merktir með nafni sölufélagsins Ice Fresh …
Togarar Samherja hafa verið merktir með nafni sölufélagsins Ice Fresh Seafood um nokkurt skeið. Síldarvinnslan mun eignast helmingshlut í sölufélaginu. Ljósmynd/Samherji

Síldarvinnslan hefur gengið frá kaupum á helmingshlut í Ice Fresh Seafood, sölufélags í eigu Samherja hf., og er verðmæti viðskiptanna 32,2 milljónir evra sem er jafnvirði 4,6 milljarða króna. Þar af eru greiddar 10,7 milljónir fyrir kaup á hlutum sem eru í eigu Samherja og svo 21,5 milljónir evra vegna útgáfu nýs hlutafjár í Ice Fresh Seafood.

Verðmæti Ice Fresh Seafood í viðskiptunum er metið 42,9 milljónir evra sem jafngildir 1,76 sinnum bókfært virði eigin fjár þess hinn 31. desember 2022 en heildarvirði Ice Fresh Seafood verður  64,4 milljónir evra eftir hlutafjáraukninguna.

Tilkynnt var um viðræður um mögulega fjárfestingu Síldarvinnslunnar í félaginu í vor.

Kaupir erlend félög úr samstæðu Samherja

Fram kemur í tilkynningu á vef Síldarvinnslunnar að samhliða viðskiptunum mun Ice Fresh Seafood  ganga frá kaupum á eignarhlutum í erlendum sölufélögum sem Síldarvinnslan hefur átt viðskiptasamband við undanfarin ár.

„Um er að ræða helmingshlut í Seagold Ltd. í Bretlandi, 100% eignarhlut í Ice Fresh Seafood SAS í Frakklandi, 67% hlutafjár í Ice Fresh Seafood Spain S.L. og helmingshlut í Aquanor Marketing Inc. í Bandaríkjunum fyrir samtals 13,9 milljónir evra. Verðmæti félaganna fjögurra í þessum viðskiptum er 1,37 sinnum bókfært virði eigin fjár þeirra í árslok 2022. Félögin voru áður hluti af samstæðu Samherja Holding ehf. og unnið hefur verið að viðskiptunum frá því í lok árs 2022.“

Einnig mun Ice Fresh Seafood ganga frá kaupum á helmingshlut í sölufélaginu Cabo Norte S.A. á Spáni af Síldarvinnslunni fyrir 4,9 milljónir evra, jafnvirði 714 milljóna króna. „Virði hlutarins byggir á því að verðmæti Cabo Norte S.A. sé 1,3 sinnum bókfært virði eigin fjár félagsins í lok árs 2022.“

Vék af fundi

Eins og fram hefur komið er Ice Fresh Seafood að fullu í eigu Samherja hf. en það félag er jafnframt eigandi að 30,06% hlut í Síldarvinnslunni hf. Þá er Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður Síldarvinnslunnar hf., forstjóri Samherja hf.

„Með vísan til ákvæða laga og starfsreglna stjórnar þá vék Þorsteinn Már sæti innan stjórnar Síldarvinnslunnar hf. við meðferð málsins og kom ekki að ákvörðunartöku vegna þess,“ segir í tilkynningunni.

Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður Síldarvinnslunnar, vék af fundi við afgreiðslu …
Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður Síldarvinnslunnar, vék af fundi við afgreiðslu kaupa á hlut í félagi Samherja, en hann er forstjóri Samherja. Ljósmynd/Þórhallur Jónsson

Vaxtartækifæri

Fram kemur að velta Ice Fresh Seafood var 337 milljónir evra árið 2022 og velta erlendu sölufélaganna var 194 milljónir evra. Samanlögð velta að teknu tilliti til sölu milli félaga var 485 milljónir evra. Samanlögð EBITDA félaganna var 6,7 milljónir evra leiðrétt fyrir einskiptis kostnaði hjá Ice Fresh Seafood vegna stríðsins í Úkraínu.

Er í tilkynningunni bent á að fjárfestingin í sölufélaginu sér í samræmi við stefnu Síldarvinnslunnar um að nýta vaxtartækifæri sem bjóðast og stuðla að aukinni áhættudreifingu og arðsemi í rekstri. „Ice Fresh Seafood er sölufyrirtæki sem býr yfir margra ára reynslu og sérþekkingu við sölu- og markaðssetningu sjávarafurða. Gústaf Baldvinsson er framkvæmdastjóri Ice Fresh Seafood og hefur gegnt því starfi frá stofnun fyrirtækisins í janúar 2007. Sölunet fyrirtækisins nær til yfir 60 landa og á bak við það er áratuga þekking og viðskiptasambönd á helstu mörkuðum fyrir íslenskt sjávarfang.“

Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar.
Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar. Ljósmynd/Samherji

„Fjárfesting í Ice Fresh Seafood er gerð í því skyni að styrkja sölu- og markaðsmál félagsins og er rökrétt framhald af þróun sem hefur átt sér stað innan Síldarvinnslunnar hf. á undanförnum árum og birtist meðal annars í kaupum á Vísi hf. í Grindavík á síðasta ári. Ice Fresh Seafood hefur í mörg ár verið leiðandi í sölu- og markaðssetningu íslenskra sjávarafurða. Með þessum viðskiptum er Síldarvinnslan að komast lengra í virðiskeðju sjávarútvegs og nær neytendum þeirra afurða sem við framleiðum. Í því felast ákveðin sóknartækifæri,“ segir Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar, í tilkynnignunni.

Gunnþór mun greina nánar frá viðskiptunum á fjárfestakynningu í kjölfar birtingar uppgjörs þriðja ársfjórðungs 2023, sem er áætluð 23. nóvember.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.7.24 413,04 kr/kg
Þorskur, slægður 18.7.24 329,49 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.7.24 367,43 kr/kg
Ýsa, slægð 18.7.24 283,57 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.7.24 188,83 kr/kg
Ufsi, slægður 18.7.24 160,58 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 18.7.24 366,40 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.7.24 Hafdís SK 4 Dragnót
Steinbítur 3.512 kg
Þorskur 977 kg
Ýsa 652 kg
Skarkoli 156 kg
Sandkoli 88 kg
Samtals 5.385 kg
18.7.24 Hafrún HU 12 Dragnót
Ýsa 7.462 kg
Steinbítur 1.185 kg
Þorskur 862 kg
Skarkoli 113 kg
Sandkoli 109 kg
Langlúra 7 kg
Samtals 9.738 kg
18.7.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Ýsa 3.274 kg
Þorskur 1.585 kg
Skarkoli 379 kg
Steinbítur 77 kg
Sandkoli 47 kg
Langlúra 31 kg
Þykkvalúra 2 kg
Samtals 5.395 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.7.24 413,04 kr/kg
Þorskur, slægður 18.7.24 329,49 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.7.24 367,43 kr/kg
Ýsa, slægð 18.7.24 283,57 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.7.24 188,83 kr/kg
Ufsi, slægður 18.7.24 160,58 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 18.7.24 366,40 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.7.24 Hafdís SK 4 Dragnót
Steinbítur 3.512 kg
Þorskur 977 kg
Ýsa 652 kg
Skarkoli 156 kg
Sandkoli 88 kg
Samtals 5.385 kg
18.7.24 Hafrún HU 12 Dragnót
Ýsa 7.462 kg
Steinbítur 1.185 kg
Þorskur 862 kg
Skarkoli 113 kg
Sandkoli 109 kg
Langlúra 7 kg
Samtals 9.738 kg
18.7.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Ýsa 3.274 kg
Þorskur 1.585 kg
Skarkoli 379 kg
Steinbítur 77 kg
Sandkoli 47 kg
Langlúra 31 kg
Þykkvalúra 2 kg
Samtals 5.395 kg

Skoða allar landanir »