Lýkur 13,7 milljarða króna fjármögnun

First Water starfrækir seiðaeldisstöð við Hveragerði og áframeldisstöð við Þorlákshöfn.
First Water starfrækir seiðaeldisstöð við Hveragerði og áframeldisstöð við Þorlákshöfn.

Fiskeldisfyrirtækið First Water í Þorlákshöfn, sem starfrækir seiðaeldisstöð við Hveragerði og áframeldisstöð við Þorlákshöfn, hefur lokið 13,7 milljarða króna fjármögnun sem fyrst var sagt frá í júlí sl. 

Í tilkynningu frá félaginu segir að það hafi í byrjun þess mánaðar tilkynnt um lok 82 milljóna evra fjármögnunar eða um 12,3 milljarða króna á þáverandi gengi með nýju hlutafé. Á þeim tíma hafi verið tilkynnt að hluti fjárfesta væri með fyrirvara um samþykki stjórnar. „Í dag lauk þeim hluta og fyrir liggur að fjárfestar komu í heild með samtals 13,7 milljarða króna í hlutafé eða um 94 milljónir evra miðað við gengi EUR/ISK í dag,“ segir í tilkynningunni.

Stoðir áfram stærst

Fjárfestingarfélagið Stoðir er samkvæmt tilkynningunni áfram stærsti hluthafi First Water eftir hlutafjáraukninguna. Framtakssjóðurinn Horn IV ásamt breiðum hópi innlendra og erlendra fjárfesta á borð við lífeyrissjóði og einkafjárfesta koma nýir að félaginu. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans annaðist umsjón hlutafjáraukningarinnar.

Með hlutafjáraukningunni er fjármögnun uppbyggingar fyrsta áfanga landeldisstöðvar First Water tryggð að því er segir í tilkynningunni. „Framleiðslugeta fyrsta áfanga verður um 8 þúsund tonn af laxi á ári en áætlanir félagsins miða við að heildarframleiðsla verði að lokum um 50 þúsund tonn og að uppbyggingu verði lokið árið 2028. Áformað er að skrá First Water á hlutabréfamarkað 2025 og sækja samhliða skráningu aukið fjármagn til áframhaldandi uppbyggingar.“

Eggert Þór Kristófersson.
Eggert Þór Kristófersson.

Ástæða til bjartsýni

Eggert Þór Kristófersson, forstjóri First Water, segir í tilkynningunni að félagið sé með frábært verkefni í höndunum. Það endurspeglist í því að verið sé að ljúka vel heppnaðri hlutafjáraukningu, þrátt fyrir erfiðar markaðsaðstæður. „Það er því full ástæða til bjartsýni og við höldum ótrauð áfram uppbyggingu umhverfisvæns og sjálfbærs laxeldis á landi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.12.24 710,33 kr/kg
Þorskur, slægður 22.12.24 707,99 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.12.24 401,74 kr/kg
Ýsa, slægð 22.12.24 174,32 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.12.24 211,11 kr/kg
Ufsi, slægður 22.12.24 62,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 18.12.24 42,00 kr/kg
Djúpkarfi 8.11.24 179,00 kr/kg
Gullkarfi 22.12.24 140,85 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.12.24 Júlíus Geirmundsson ÍS 270 Botnvarpa
Þorskur 186.991 kg
Ýsa 154.221 kg
Karfi 48.438 kg
Ufsi 9.809 kg
Steinbítur 1.935 kg
Skarkoli 206 kg
Þykkvalúra 151 kg
Langa 92 kg
Samtals 401.843 kg
22.12.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Skarkoli 108 kg
Ýsa 35 kg
Steinbítur 26 kg
Sandkoli 14 kg
Samtals 183 kg
22.12.24 Þorlákur ÍS 15 Dragnót
Skarkoli 773 kg
Þorskur 257 kg
Ýsa 26 kg
Steinbítur 10 kg
Þykkvalúra 8 kg
Karfi 7 kg
Sandkoli 6 kg
Hlýri 5 kg
Samtals 1.092 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.12.24 710,33 kr/kg
Þorskur, slægður 22.12.24 707,99 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.12.24 401,74 kr/kg
Ýsa, slægð 22.12.24 174,32 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.12.24 211,11 kr/kg
Ufsi, slægður 22.12.24 62,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 18.12.24 42,00 kr/kg
Djúpkarfi 8.11.24 179,00 kr/kg
Gullkarfi 22.12.24 140,85 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.12.24 Júlíus Geirmundsson ÍS 270 Botnvarpa
Þorskur 186.991 kg
Ýsa 154.221 kg
Karfi 48.438 kg
Ufsi 9.809 kg
Steinbítur 1.935 kg
Skarkoli 206 kg
Þykkvalúra 151 kg
Langa 92 kg
Samtals 401.843 kg
22.12.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Skarkoli 108 kg
Ýsa 35 kg
Steinbítur 26 kg
Sandkoli 14 kg
Samtals 183 kg
22.12.24 Þorlákur ÍS 15 Dragnót
Skarkoli 773 kg
Þorskur 257 kg
Ýsa 26 kg
Steinbítur 10 kg
Þykkvalúra 8 kg
Karfi 7 kg
Sandkoli 6 kg
Hlýri 5 kg
Samtals 1.092 kg

Skoða allar landanir »