Tólf manna áhöfn Múlabergs sagt upp

Útgerð Múlabergs SI verður hætt eftir að bilun kom upp …
Útgerð Múlabergs SI verður hætt eftir að bilun kom upp í skipinu. Ekki er talið að það svari kostnaði að gera við það enda skipið 50 ára gamalt. mbl.is/Hafþór

Öllum í tólf manna áhöfn á ísfisktogaranum Múlabergi SI sem Ísfélagið hf. gerir út hefur verið sagt upp störfum. Þetta staðfestir Ólafur Helgi Marteinsson, framkvæmdastjóri útgerðar hjá félaginu, í samtali við 200 mílur.

Hann segir um að ræða einstaklinga sem hafa langan starfsaldur hjá útgerðinni, s.s. hjá Ramma hf. áður en það sameinaðist Ísfélagi Vestmannaeyja hf. „Það er alls óvíst hvort hægt sé að bjóða mönnunum varanleg störf en við erum að gera það sem við getum til að koma þeim fyrir í þeim bátum sem við erum með. Það eru ekki störf sem eru föst í hendi enn sem komið er alla vega.“

Ólafur Helgi Marteinsson, framkvæmdastjóri útgerðar Ísfélagsins hf.
Ólafur Helgi Marteinsson, framkvæmdastjóri útgerðar Ísfélagsins hf. mbl.is/Árni Sæberg

„Þetta kom ekki til af góðu, það kom upp bilun í skipinu og ekki talið svara kostnaði að gera við það. Skipið er ríflega 50 ára gamalt,“ útskýrir Ólafur.

Múlaberg (áður Ólafur Bekkur) hefur síðustu ár verið á rækjuveiðum frá því í mars og út september, en á bolfiskveiðum yfir vetrartímann. Skipið var smíðað í Japan árið 1973 og eitt af þeim tíu sem smíðuð voru fyrir Íslendinga í asíuríkinu og komu til landsins það ár. Aðeins Ljósafell SU sem Loðnuvinnslan hf. gerir út frá Fáskrúðsfirði er eftir af Japanstogurunum í íslenska flotanum.

Að skipið fari úr flota Ísfélagsins mun ekki hafa áhrif á gang veiða að sögn Ólafs þar sem almennt hægi á rækjuveiðum milli september og mars. Það mun þó ekki hafa áhrif á rækjuvinnsluna þar sem talið er að hægt verði að útvega hráefni til vinnslu frá Noregi og Kanada. „Áhrifin eru mest á þessa sem fengu uppsagnarbréf, sem er auðvitað mjög vont, en hefur ekki áhrif á restina af fyrirtækinu.“

Ísfélagið mun fá afhentan nýjan togara í kringum áramótin sem mun bera nafnið Sigurbjörg. Spurður hvort áhöfninni verði borðið störf um borð svarar Ólafur: „Það er bara svo langt í það að við getum ekkert sagt til um það. Það verður bara að hafa sinn gang.“

Skip með langa sögu

„Þetta er skip með sál. Þetta er löng saga,“ var haft eftir Finni Sigurbjörnssyni, skipstjóra á Múlaberginu á Siglufirði, í Fiskifréttum í morgun. Þá hafði áhöfninni ekki borist formleg uppsagnarbréf.

Finnur var fyrst eitt ár á Múlaberginu 1998 og byrjaði svo aftur á því árið 2005 og hefur verið þar allar götur síðan eða 18 ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.7.24 399,16 kr/kg
Þorskur, slægður 16.7.24 406,84 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.7.24 367,05 kr/kg
Ýsa, slægð 16.7.24 309,23 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.7.24 151,84 kr/kg
Ufsi, slægður 16.7.24 164,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 16.7.24 349,26 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.7.24 Kristbjörg SH 84 Grásleppunet
Grásleppa 2.708 kg
Samtals 2.708 kg
16.7.24 Lára VI ÍS 112 Handfæri
Þorskur 430 kg
Ufsi 21 kg
Samtals 451 kg
16.7.24 Mar AK 74 Handfæri
Þorskur 752 kg
Karfi 20 kg
Samtals 772 kg
16.7.24 Ingi Rúnar AK 35 Handfæri
Þorskur 770 kg
Samtals 770 kg
16.7.24 Stapavík AK 8 Handfæri
Þorskur 685 kg
Karfi 36 kg
Ufsi 19 kg
Ýsa 16 kg
Samtals 756 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.7.24 399,16 kr/kg
Þorskur, slægður 16.7.24 406,84 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.7.24 367,05 kr/kg
Ýsa, slægð 16.7.24 309,23 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.7.24 151,84 kr/kg
Ufsi, slægður 16.7.24 164,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 16.7.24 349,26 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.7.24 Kristbjörg SH 84 Grásleppunet
Grásleppa 2.708 kg
Samtals 2.708 kg
16.7.24 Lára VI ÍS 112 Handfæri
Þorskur 430 kg
Ufsi 21 kg
Samtals 451 kg
16.7.24 Mar AK 74 Handfæri
Þorskur 752 kg
Karfi 20 kg
Samtals 772 kg
16.7.24 Ingi Rúnar AK 35 Handfæri
Þorskur 770 kg
Samtals 770 kg
16.7.24 Stapavík AK 8 Handfæri
Þorskur 685 kg
Karfi 36 kg
Ufsi 19 kg
Ýsa 16 kg
Samtals 756 kg

Skoða allar landanir »