Skipulagsstofnun telur afar brýnt að unnið verði ítarlegt mat á áhrifum grunnvatnsvinnslu og fyrirhugaðrar vatnstöku vegna áforma um 20.000 tonna landeldi Thors landeldis í Ölfusi. Veita á öllu frárennsli frá eldinu til sjávar og telur Skipulagsstofnun mikilvægt að í umhverfismatsskýrslu verði grunnástandi vatnshlotsins Stokkseyri að Þorlákshöfn lýst og áhrif framkvæmdarinnar metin og gerð verði grein fyrir vöktun og mögulegum mótvægisaðgerðum.
Þetta kemur fram í áliti Skipulagsstofnunar vegna landeldisstöðvar Thors í Ölfusi fyrir lax, bleikju og regnbogasilung en um er að ræða þriðju stóru landeldisáformin á litlu svæði við Þorlákshöfn. „Þessi áform eru án fordæma og engin reynsla er komin á rekstur landeldisstöðva af þessari stærðargráðu hérlendis,“ segir í áliti Skipulagsstofnunar.
Þar kemur m.a. fram að verði öll áform um fiskeldi við Þorlákshöfn að veruleika megi gera ráð fyrir að um 65.000 l/s af söltum jarðsjó og yfir 3.000 l/s af fersku vatni renni í fiskeldi á svæðinu. „Til að setja þessar tölur í samhengi má benda á að leyfi Vatnsveitu Kópavogs og Orkuveitu Reykjavíkur til grunnvatnsvinnslu í Vatnsendakrikum í Heiðmörk er samtals 650 l/s að jafnaði yfir árið,“ segir í álitinu.
Fjallað er um málið í Morgunblaðinu í dag.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 12.7.24 | 360,64 kr/kg |
Þorskur, slægður | 12.7.24 | 172,00 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 12.7.24 | 309,77 kr/kg |
Ýsa, slægð | 12.7.24 | 117,00 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 12.7.24 | 179,89 kr/kg |
Ufsi, slægður | 12.7.24 | 22,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.6.24 | 304,40 kr/kg |
Gullkarfi | 12.7.24 | 415,86 kr/kg |
Litli karfi | 8.7.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 1.7.24 | 106,00 kr/kg |
13.7.24 Hávella ÍS 426 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 123 kg |
Samtals | 123 kg |
13.7.24 Sendlingur ÍS 415 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 124 kg |
Samtals | 124 kg |
13.7.24 Himbrimi BA 415 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 48 kg |
Samtals | 48 kg |
13.7.24 Álft ÍS 413 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 307 kg |
Samtals | 307 kg |
13.7.24 Hafdís SK 4 Dragnót | |
---|---|
Þorskur | 3.706 kg |
Steinbítur | 3.510 kg |
Ýsa | 1.403 kg |
Skarkoli | 527 kg |
Þykkvalúra | 102 kg |
Sandkoli | 83 kg |
Samtals | 9.331 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 12.7.24 | 360,64 kr/kg |
Þorskur, slægður | 12.7.24 | 172,00 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 12.7.24 | 309,77 kr/kg |
Ýsa, slægð | 12.7.24 | 117,00 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 12.7.24 | 179,89 kr/kg |
Ufsi, slægður | 12.7.24 | 22,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.6.24 | 304,40 kr/kg |
Gullkarfi | 12.7.24 | 415,86 kr/kg |
Litli karfi | 8.7.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 1.7.24 | 106,00 kr/kg |
13.7.24 Hávella ÍS 426 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 123 kg |
Samtals | 123 kg |
13.7.24 Sendlingur ÍS 415 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 124 kg |
Samtals | 124 kg |
13.7.24 Himbrimi BA 415 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 48 kg |
Samtals | 48 kg |
13.7.24 Álft ÍS 413 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 307 kg |
Samtals | 307 kg |
13.7.24 Hafdís SK 4 Dragnót | |
---|---|
Þorskur | 3.706 kg |
Steinbítur | 3.510 kg |
Ýsa | 1.403 kg |
Skarkoli | 527 kg |
Þykkvalúra | 102 kg |
Sandkoli | 83 kg |
Samtals | 9.331 kg |