Farga hátt í milljón eldislöxum

Farga þarf öllum fisk í 12 sjókvíum.
Farga þarf öllum fisk í 12 sjókvíum.

Laxar í nokkrum sjókvíum í Tálknafirði voru meðhöndlaðir í september með lyfjum gegn laxalús en það bar lítinn árangur. Því þurfti að grípa til þess ráðs að farga um það bil milljón löxum sem hefðu ekki þraukað veturinn vegna sára sem myndast vegna ágengni lúsa.

Þetta segir Berglind Helga Bergsdóttir í samtali við mbl.is. RÚV greindi frá í síðustu viku og Heimildin greindi frá í dag.

Arnarlax og Arctic Fish þurfa að farga löxum úr alls tólf sjókvíum. Samkvæmt Berglindi voru um milljón laxar í þessum sjókvíum í byrjun október.

Arnarlax þurfti að farga úr 6 sjókvíum, og er þeirri förgun lokið. Arctic Fish þurfti sömuleiðis að farga úr 6 sjókvíum, búið er að farga úr 2 sjókvíum og er förgun úr þeirri þriðju hafin. Förgun hófst vikuna 16.-22. október.

Alls eru 34 sjókvíar í öllum firðinum og í þeim um það bil 3,5 milljónir fiska samkvæmt talningu frá byrjun október.

Laxarnir hefðu látist af sárum sínum

Um mánaðamótin september-október snarhækkuðu lúsatölur að sögn Berglindar og það þrátt fyrir að búið væri að meðhöndla fiska með lúsalyfjum. Eldri lús virtist verða lyfjunum að bráð en ekki yngri lús.

Ef löxunum hefði ekki verið fargað þá hefðu fiskarnir dáið vegna sára og sýkinga sem koma í kjölfar bita frá laxalúsunum. Fiskurinn er bitinn og í sárið koma svo umhverfisbakteríur sem gera sárin enn umfangsmeiri.

„Það er verið að taka út þá fiska sem geta ekki lifað veturinn af. Það er verið að vinna að því samhliða að ná niður lúsatölum því þegar sjórinn kólnar þá minnkar gróandinn í fisknum,“ segir Berglind og bætir við:

„Það skín bara í höfuðkúpuna á þessum fiskum. Það sem veldur dauðanum er að saltið í sjónum fer í líkama fisksins í gegnum sárin og hann nær ekki að halda jónajafnvægi.“

Lúsavandinn víða

Berglind segir að lúsavandinn sé á fleiri stöðum en í Tálknafirði, eins og til dæmis í Arnarfirði og Dýrafirði. Lúsavandinn sé þó langtum verri í Tálknafirði en á öðrum stöðum

„Það eru sár byrjuð að myndast í Arnarfirði og á öðrum staðsetningum. Það er verið að meðhöndla með lyfjum og lúsameðhöndlunarbát á staðsetningum í Arnarfirði núna,“ segir Berglind.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 20.12.24 534,99 kr/kg
Þorskur, slægður 20.12.24 714,42 kr/kg
Ýsa, óslægð 20.12.24 303,74 kr/kg
Ýsa, slægð 20.12.24 187,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 20.12.24 10,95 kr/kg
Ufsi, slægður 20.12.24 112,85 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 18.12.24 42,00 kr/kg
Djúpkarfi 8.11.24 179,00 kr/kg
Gullkarfi 20.12.24 67,60 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

21.12.24 Kristján HF 100 Lína
Karfi 261 kg
Þorskur 203 kg
Keila 107 kg
Ýsa 37 kg
Samtals 608 kg
21.12.24 Benni ST 5 Landbeitt lína
Þorskur 11.697 kg
Ýsa 99 kg
Steinbítur 45 kg
Keila 4 kg
Samtals 11.845 kg
21.12.24 Björg EA 7 Botnvarpa
Þorskur 103.876 kg
Ýsa 944 kg
Samtals 104.820 kg
20.12.24 Guðmundur í Nesi RE 13 Botnvarpa
Karfi 189.310 kg
Þorskur 103.686 kg
Grálúða 54.139 kg
Gulllax 9.379 kg
Blálanga 7.603 kg
Ufsi 2.610 kg
Hlýri 1.608 kg
Steinbítur 1.339 kg
Ýsa 605 kg
Langa 334 kg
Arnarfjarðarskel 207 kg
Keila 76 kg
Kolmunni 26 kg
Samtals 370.922 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 20.12.24 534,99 kr/kg
Þorskur, slægður 20.12.24 714,42 kr/kg
Ýsa, óslægð 20.12.24 303,74 kr/kg
Ýsa, slægð 20.12.24 187,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 20.12.24 10,95 kr/kg
Ufsi, slægður 20.12.24 112,85 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 18.12.24 42,00 kr/kg
Djúpkarfi 8.11.24 179,00 kr/kg
Gullkarfi 20.12.24 67,60 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

21.12.24 Kristján HF 100 Lína
Karfi 261 kg
Þorskur 203 kg
Keila 107 kg
Ýsa 37 kg
Samtals 608 kg
21.12.24 Benni ST 5 Landbeitt lína
Þorskur 11.697 kg
Ýsa 99 kg
Steinbítur 45 kg
Keila 4 kg
Samtals 11.845 kg
21.12.24 Björg EA 7 Botnvarpa
Þorskur 103.876 kg
Ýsa 944 kg
Samtals 104.820 kg
20.12.24 Guðmundur í Nesi RE 13 Botnvarpa
Karfi 189.310 kg
Þorskur 103.686 kg
Grálúða 54.139 kg
Gulllax 9.379 kg
Blálanga 7.603 kg
Ufsi 2.610 kg
Hlýri 1.608 kg
Steinbítur 1.339 kg
Ýsa 605 kg
Langa 334 kg
Arnarfjarðarskel 207 kg
Keila 76 kg
Kolmunni 26 kg
Samtals 370.922 kg

Skoða allar landanir »

Loka