„Gríðarleg áhrif á heilsu hafsins“

Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir, yfirmaður rekstrar hjá fyrirtækinu Transition Labs, segir …
Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir, yfirmaður rekstrar hjá fyrirtækinu Transition Labs, segir ekki alla meðvitna um hve mikil áhrif loftslagsbreytingar hafa á lífríki hafsins. Ljósmynd/Aðsend

Samtök um bætta heilsu hafsins voru stofnuð á Hringborði norðurslóða, Arctic Circle, sem haldið var 19. til 21. október í Hörpu. Samtökin fengu nafnið Hafbjörg og eru stofnendur þeirra stofnanir og fyrirtæki sem með einum eða öðrum hætti koma að rannsóknum, þróun eða framgangi haftengdra lausna tengdra sjálfbærni og loftslagsmálum, að því er fram kemur í Morgunblaðinu.

„Öll þekkjum við nokkuð vel til loftslagsbreytinga en færri gera sér grein fyrir því að þær hafa gríðarleg áhrif á heilsu hafsins. Bruni jarðefnaeldsneytis hefur valdið því að magn koltvísýrings í efri lögum hafsins hefur vaxið hröðum skrefum. Þetta veldur hitabylgjum í sjónum, getur mótað hafstrauma, veldur því að stofnar sjávarlífvera færa sig um set og veldur súrnun. Hækkun á hitastigi sjávar á heimsvísu er sambærileg orkunni frá fimm kjarnorkusprengjum á sérhverri sekúndu, allan sólarhringinn, allan ársins hring,“ segir Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir, yfirmaður rekstrar hjá fyrirtækinu Transition Labs, en fyrirtækið er meðal stofnenda Hafbjargar.

Auk Transition Labs eru stofnendur Íslenski sjávarklasinn, Háskóli Íslands, lögfræðistofnun Háskólans í Reykjavík um loftslagsbreytingar og sjálfbærni (CLoCCS), samtökin Carbon to Sea, kolefnisjöfnunarfyrirtækið Running Tide og alþjóðlegi samstarfsvettvangurinn Ocean Visions.

Nánar má lesa um málið í Morgunblaðinu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.7.24 Ari Óskar ÍS 127 Handfæri
Þorskur 1.416 kg
Ufsi 11 kg
Samtals 1.427 kg
27.7.24 Stína SH 91 Grásleppunet
Grásleppa 277 kg
Samtals 277 kg
27.7.24 Andri SH 450 Grásleppunet
Grásleppa 852 kg
Samtals 852 kg
27.7.24 Sendlingur ÍS 415 Sjóstöng
Þorskur 372 kg
Samtals 372 kg
27.7.24 Álft ÍS 413 Sjóstöng
Þorskur 239 kg
Samtals 239 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.7.24 Ari Óskar ÍS 127 Handfæri
Þorskur 1.416 kg
Ufsi 11 kg
Samtals 1.427 kg
27.7.24 Stína SH 91 Grásleppunet
Grásleppa 277 kg
Samtals 277 kg
27.7.24 Andri SH 450 Grásleppunet
Grásleppa 852 kg
Samtals 852 kg
27.7.24 Sendlingur ÍS 415 Sjóstöng
Þorskur 372 kg
Samtals 372 kg
27.7.24 Álft ÍS 413 Sjóstöng
Þorskur 239 kg
Samtals 239 kg

Skoða allar landanir »