Þorbjörn kominn með „mun betra frystikerfi“

Mikil ánægja er með nýtt kælikerfi frá Frost.
Mikil ánægja er með nýtt kælikerfi frá Frost. Ljósmynd/Aðsend

Kælismiðjan Frost lauk nýverið við uppsetningu og frágang á frystikerfi í bolfiksvinnslu sjávarútvegsfyrirtækisins Þorbjörns hf. í Grindavík. Nýja kerfið er mun hagkvæmari í rekstri og skapar nýja möguleika í framleiðslu og markaðssetningu, að því er fram kemur í fréttatilkynnignu.

Það var í vetur sem Þorbjörn hf. fól Frosti að hanna og setja upp nýtt frystikerfi í landvinnslu fyrirtækisins í Grindavík. Í lok mars fór Frost í þarfa- og stærðargreiningu á nýju frystikerfi og í framhaldinu var það hannað. Rafhönnun var einnig í höndum Frosts. Síðastliðið sumar var byggt nýtt hús við hlið vinnsluhúss Þorbjörns fyrir vélasal og í hann hefur frystibúnaðinum verið komið fyrir.

„Á heildina litið erum við komnir með mun betra frystikerfi en áður sem er á allan hátt auðveldara að halda við og það keyrir á mun hagkvæmari hátt en gamla kerfið,“ er haft eftur Jóhanni Vigni Gunnarssyni, sem hefur framleiðslu- og markaðsmál Þorbjörns hf. á sinni könnu.

„Áður vorum við með plötufrysta og frystiklefa. Gamla frystikerfið var sett upp á sjöunda áratug síðustu aldar og því var það komið til ára sinna. Kerfið var orðið þungt í viðhaldi og erfitt að fá í það varahluti. Nýlega keyptum við lausfrysti og bættum við kerfið en það var alveg ljóst að við þyrftum að fara í gagngerar endurbætur því það uppfyllti ekki nýjustu reglugerðir. Niðurstaðan var því sú að skipta út gamla kerfinu og setja upp nýtt. Við fengum Frostmenn í verkið og þeir unnu það hratt og vel og allar áætlanir þeirra stóðust. Við endurbættum frystiklefann, klæddum hann með yleiningum og tókum hann í gegn að innan,“ segir Jóhann Vignir.

Þorbjörn hf. hefur gert út frá Grindavík í áraraðir.
Þorbjörn hf. hefur gert út frá Grindavík í áraraðir. mbl.is/Sigurður Bogi

Ánægður með útkomuna

„Það má í stórum dráttum segja að við höfum unnið að þessu frá vormánuðum og fram undir lok október. Frost hannaði kerfið, setti það upp, lagði og tengdi allar lagnir, þar með taldar raflagnir, og setti upp stjórntöflur. Þá voru settir upp nýir frystiblásarar auk þurrkerfis fyrir frystigeymslurnar. Verkinu er lokið og búið er að ræsa kerfið og prófa allan búnað. Gamla kerfið var keyrt á ammoníaki og það sama gildir um þetta nýja kerfi. Þetta var mjög skemmtilegt verkefni og ég tel að tekist hafi að vinna þetta hratt og örugglega. Ég er mjög ánægður með útkomuna,“ segir Bjartmar Egill Harðarson, verkefnastjóri hjá Frost.

Jóhann Vignir segir nýja kerfið uppfylla allar nýjustu reglugerðir, en það gerði gamal kerfið ekki. Þá sé gert ráð fyrir að eftirlit með kerfinu verði mun markvissara og getur Frost fylgst með virkninni allan sólarhringinn þar sem það er nettengt.

Hann segir kerfið bjóða ýmiskonar framleiðslutækifæri. „Lausfrystirinn sem við höfum tengt við nýja kerfið eykur möguleika okkar verulega í framleiðslunni. Meðal annars höfum við nú möguleika á því að frysta léttsöltuð þorskflök og einnig að lausfrysta hefðbundin flök inn á Ameríku- og Evrópumarkað. Þá getum við lausfryst þorskhrogn sem við höfum áður sent fersk frá okkur. Við höfum eingöngu verið í þorskvinnslu en með þessum breytingum horfum við til þess að geta einnig m.a. unnið ufsa, ýsu og karfa. Við erum mjög ánægðir með útkomuna og samstarfið við Frost.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.7.24 Sendlingur ÍS 415 Sjóstöng
Þorskur 372 kg
Samtals 372 kg
27.7.24 Álft ÍS 413 Sjóstöng
Þorskur 239 kg
Samtals 239 kg
26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.7.24 Sendlingur ÍS 415 Sjóstöng
Þorskur 372 kg
Samtals 372 kg
27.7.24 Álft ÍS 413 Sjóstöng
Þorskur 239 kg
Samtals 239 kg
26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg

Skoða allar landanir »