Jón Halldór Guðmundsson, einn þriggja fulltrúa í heimastjórn Seyðisfjarðar, lagði á fundi stjórnarinnar í síðustu viku fram tillögu um að stöðva væntanlega uppbyggingu fiskeldis í firðinum. Margrét Guðjónsdóttir og Jónína Brynjólfsdóttir felldu tillöguna.
Þetta kemur fram í fundargerð heimastjórnarinnar sem birt hefur verið á vef sveitarfélagsins Múlaþings.
Tillaga Jóns Halldórs gekk út á að heimastjórnin myndi leggja til við sveitarstjórn Múlaþings að sveitarfélagið beiti sér fyrir að strandsvæðisskipulag Austurlands verði fellt úr gildi og gert að nýju. „Á núgildandi strandsvæðisskipulagi, sem staðfest var, er gert ráð fyrir umsvifamiklu fiskeldi í Seyðisfirði, þrátt fyrir margar athugasemdir, sem sumar hverjar benda á svo alvarlega ágalla á skipulaginu hvað fiskeldi í Seyðisfirði varðar, að skipulagið hefði aldrei átt að vera staðfest óbreytt,“ segir í tillögunni.
Var í tillögunni bent á að í skoðanakönnun sem Múlaþing lét gera hafi meirihluti íbúa Seyðisfjarðar sagst vera mótfallin fiskeldi í firðinum, en töluvert var fjallað um mögulegt fiskeldi í Seyðisfirði á síðasta ári.
„Einnig liggur fyrir að eftirlit með fiskeldi á landsvísu tryggir ekki að farið sé að reglum og skilmálum fiskeldis, varðandi svokallaðar slysasleppingar og velferð dýra. Að öllu þessu athuguðu vill Múlaþing að fiskeldi í Seyðisfirði í Strandsvæðiskipulagi Austurlands verði fellt úr skipulaginu við endurskoðun þess,“ segir að lokum í tillögunni.
Sem fyrr segir var tillagan felld með tveimur atkvæðum gegn einu. Við það lagði Jón Halldór fram bókun þar sem hann segir óheppilegt og óviðeigandi að heimastjórnin hafi áður samþykkt beiðni til sveitarstjórnar um að fela sveitarstjóra að afgreiðsla rekstrarleyfisumsóknar vegna fyrirhugaðs laxeldis í Seyðisfirði verði sett í forgang.
„Fyrir liggur að umsókn um laxeldi í Seyðisfirði er í lögbundnu ferli og því afar varhugavert að beita sér fyrir auknum málshraða eða öðru sem leitt gæti til þess að málið verð afgreitt án þess að gætt sé vel að umhverfismálum og reglum um laxeldi í sjó,“ segir í bókuninni.
Nokkrar áhyggjur hafa verið af atvinnuástandinu á Seyðisfirði eftir að Síldarvinnlsan tilkynnti að bolfiskvinnslu félagsins á staðnum yrði lokuð 30. nóvember.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 11.2.25 | 593,81 kr/kg |
Þorskur, slægður | 11.2.25 | 546,56 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 11.2.25 | 381,53 kr/kg |
Ýsa, slægð | 11.2.25 | 356,00 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 11.2.25 | 227,70 kr/kg |
Ufsi, slægður | 11.2.25 | 264,97 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 30.1.25 | 16,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Gullkarfi | 11.2.25 | 407,29 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
11.2.25 Emil NS 5 Landbeitt lína | |
---|---|
Ýsa | 1.655 kg |
Þorskur | 1.017 kg |
Hlýri | 138 kg |
Steinbítur | 123 kg |
Keila | 51 kg |
Samtals | 2.984 kg |
11.2.25 Toni NS 20 Landbeitt lína | |
---|---|
Ýsa | 1.613 kg |
Þorskur | 1.094 kg |
Keila | 51 kg |
Hlýri | 28 kg |
Steinbítur | 25 kg |
Samtals | 2.811 kg |
11.2.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Þorskur | 12.585 kg |
Ýsa | 4.268 kg |
Steinbítur | 766 kg |
Keila | 60 kg |
Hlýri | 52 kg |
Langa | 35 kg |
Karfi | 10 kg |
Samtals | 17.776 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 11.2.25 | 593,81 kr/kg |
Þorskur, slægður | 11.2.25 | 546,56 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 11.2.25 | 381,53 kr/kg |
Ýsa, slægð | 11.2.25 | 356,00 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 11.2.25 | 227,70 kr/kg |
Ufsi, slægður | 11.2.25 | 264,97 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 30.1.25 | 16,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Gullkarfi | 11.2.25 | 407,29 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
11.2.25 Emil NS 5 Landbeitt lína | |
---|---|
Ýsa | 1.655 kg |
Þorskur | 1.017 kg |
Hlýri | 138 kg |
Steinbítur | 123 kg |
Keila | 51 kg |
Samtals | 2.984 kg |
11.2.25 Toni NS 20 Landbeitt lína | |
---|---|
Ýsa | 1.613 kg |
Þorskur | 1.094 kg |
Keila | 51 kg |
Hlýri | 28 kg |
Steinbítur | 25 kg |
Samtals | 2.811 kg |
11.2.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Þorskur | 12.585 kg |
Ýsa | 4.268 kg |
Steinbítur | 766 kg |
Keila | 60 kg |
Hlýri | 52 kg |
Langa | 35 kg |
Karfi | 10 kg |
Samtals | 17.776 kg |