Sláturhús Arctic Fish í Bolungarvík tók nýverið í notkun nýja frárennslislausn Dystia, fyrst laxeldisfyrirtækja. Um er að ræða heildarlausn á frárennslisvanda í laxeldi, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.
„Með því að taka í notkun þetta nýja vatnshreinsikerfi erum við að innleiða kröfur framtíðarinnar. Allt frárennsli úr nýju vinnslunni okkar í Bolungarvík fer í gegnum kerfið og því fullhreinsað frá okkur. Í stuttu máli hefur lausnin frá Dystia staðist allar væntingar og við hlökkum til að taka forystu á þessu sviði,“ segir Kristján Rúnar Kristjánsson, framkvæmdastjóri laxavinnslu Arctic Fish.
Guðjón Ingi Guðjónsson framkvæmdastjóri Dystia er sannfærður um ágæti kerfisins og segir að líklega sé ekkert fyrirtæki á landinu, óháð starfsemi, með betri hreinsun á frárennsli en Arctic Fish.
„Kerfið framleiðir klór í lágum styrk úr sjó með rafmagni til þess að hreinsa úrganginn. Með því að framleiða klórinn á staðnum með hráefni úr nærumhverfinu, í stað þess að nota innfluttan klór, er komið í veg fyrir óþarfa kolefnisspor og hættu á umhverfisslysi í flutningi eða á staðnum. Dystia-klórkerfið er lokað þannig að starfsfólk þarf ekki að meðhöndla efnið sjálft á neinu stigi. Efnið er því 100% vistvænt og leysist upp í náttúrunni eftir að hafa gert sitt gagn.“
Nánar má lesa um málið í Morgunblaðinu í dag.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.10.24 | 497,07 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.10.24 | 570,02 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.10.24 | 259,27 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.10.24 | 222,79 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.10.24 | 233,08 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.10.24 | 232,43 kr/kg |
Djúpkarfi | 17.10.24 | 124,11 kr/kg |
Gullkarfi | 18.10.24 | 160,45 kr/kg |
Litli karfi | 25.9.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 16.10.24 | 127,54 kr/kg |
18.10.24 Bárður SH 81 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 6.964 kg |
Þorskur | 1.488 kg |
Skarkoli | 380 kg |
Langlúra | 177 kg |
Sandkoli | 73 kg |
Skrápflúra | 16 kg |
Karfi | 12 kg |
Steinbítur | 10 kg |
Hlýri | 10 kg |
Þykkvalúra | 7 kg |
Samtals | 9.137 kg |
18.10.24 Fanney EA 48 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 2.147 kg |
Ýsa | 463 kg |
Hlýri | 21 kg |
Steinbítur | 11 kg |
Samtals | 2.642 kg |
18.10.24 Hafrafell SU 65 Lína | |
---|---|
Ýsa | 627 kg |
Þorskur | 495 kg |
Keila | 115 kg |
Hlýri | 6 kg |
Steinbítur | 4 kg |
Karfi | 2 kg |
Samtals | 1.249 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.10.24 | 497,07 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.10.24 | 570,02 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.10.24 | 259,27 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.10.24 | 222,79 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.10.24 | 233,08 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.10.24 | 232,43 kr/kg |
Djúpkarfi | 17.10.24 | 124,11 kr/kg |
Gullkarfi | 18.10.24 | 160,45 kr/kg |
Litli karfi | 25.9.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 16.10.24 | 127,54 kr/kg |
18.10.24 Bárður SH 81 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 6.964 kg |
Þorskur | 1.488 kg |
Skarkoli | 380 kg |
Langlúra | 177 kg |
Sandkoli | 73 kg |
Skrápflúra | 16 kg |
Karfi | 12 kg |
Steinbítur | 10 kg |
Hlýri | 10 kg |
Þykkvalúra | 7 kg |
Samtals | 9.137 kg |
18.10.24 Fanney EA 48 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 2.147 kg |
Ýsa | 463 kg |
Hlýri | 21 kg |
Steinbítur | 11 kg |
Samtals | 2.642 kg |
18.10.24 Hafrafell SU 65 Lína | |
---|---|
Ýsa | 627 kg |
Þorskur | 495 kg |
Keila | 115 kg |
Hlýri | 6 kg |
Steinbítur | 4 kg |
Karfi | 2 kg |
Samtals | 1.249 kg |