Selja 14,5% í Ísfélaginu

Boðnir verða til sölu í almennu útboði 118.923.851 þegar útgefnir …
Boðnir verða til sölu í almennu útboði 118.923.851 þegar útgefnir hlutir í félaginu, sem jafngildir 14,53% af heildarhlutafé félagsins. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Almennt hlutafjárútboð í Ísfélagi, elsta starfandi hlutafélagi landsins, hefst á morgun. Boðnir verða til sölu í almennu útboði 118.923.851 þegar útgefnir hlutir í félaginu, sem jafngildir 14,53% af heildarhlutafé félagsins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Almenna útboðið skiptist í tvær áskriftarbækur, áskriftarbók A þar sem 23.784.770 hlutir verða boðnir til sölu á föstu verði 135 kr. á hlut og áskriftarbók B þar sem 95.139.081 hlutur verður boðinn til sölu á lágmarksverði 135 kr. á hlut.

Hefst útboðið klukkan 10 í fyrramálið, 23. nóvember, og stendur yfir til klukkan 14 þann 1. desember.

Af þessum 14,53% er um 11,6% áætlað til fagfjárfesta.

Á aðalmarkaði 8. desember

„Félagið er leiðandi í veiðum og vinnslu gæðaafurða úr uppsjávar- og bolfiski. Skráning hlutabréfa Ísfélags á Aðalmarkað gerir áhugasömum fjárfestum kleift að taka þátt í vexti félagsins og styðja það til frekari sóknar,“ segir í tilkynningunni.

Fram kemur að sótt hefur verið um að hlutabréf félagsins verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Gert er ráð fyrir að fyrsti viðskiptadagur á Aðalmarkaði verði þann 8. desember næstkomandi, að því gefnu að umsókn félagsins verði samþykkt af Nasdaq Iceland fyrir þann tíma.

Markmiðið að efla grundvöll vaxtar

„Skráning Ísfélags á Aðalmarkað hefur það að markmiði að efla grundvöll fyrir frekari vöxt fyrirtækisins. Við teljum að fjölbreyttari hópur fjárfesta styrki framtíðarsýn og rekstur félagsins til lengri tíma. Saman getum við sótt fram og nýtt fjölmörg tækifæri sem við stöndum frammi fyrir.

Fjölbreytt og góð samsetning á aflaheimildum mun auka stöðugleika í veiðum og vinnslu og ábata í rekstri. Traust fjárhagsstaða Ísfélags skapar svigrúm til sóknar og styður við spennandi tækifæri í dóttur- og hlutdeildarfélögum,“ er haft eftir Stefáni Friðrikssyni, forstjóra Ísfélags.

Arion Banki, Íslandsbanki og Landsbankinn hafa umsjón með almenna útboðinu og töku hlutabréfa félagsins til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.7.24 399,16 kr/kg
Þorskur, slægður 16.7.24 406,84 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.7.24 367,05 kr/kg
Ýsa, slægð 16.7.24 309,23 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.7.24 151,84 kr/kg
Ufsi, slægður 16.7.24 164,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 16.7.24 349,26 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.7.24 Kristbjörg SH 84 Grásleppunet
Grásleppa 2.708 kg
Samtals 2.708 kg
16.7.24 Lára VI ÍS 112 Handfæri
Þorskur 430 kg
Ufsi 21 kg
Samtals 451 kg
16.7.24 Mar AK 74 Handfæri
Þorskur 752 kg
Karfi 20 kg
Samtals 772 kg
16.7.24 Ingi Rúnar AK 35 Handfæri
Þorskur 770 kg
Samtals 770 kg
16.7.24 Stapavík AK 8 Handfæri
Þorskur 685 kg
Karfi 36 kg
Ufsi 19 kg
Ýsa 16 kg
Samtals 756 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.7.24 399,16 kr/kg
Þorskur, slægður 16.7.24 406,84 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.7.24 367,05 kr/kg
Ýsa, slægð 16.7.24 309,23 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.7.24 151,84 kr/kg
Ufsi, slægður 16.7.24 164,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 16.7.24 349,26 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.7.24 Kristbjörg SH 84 Grásleppunet
Grásleppa 2.708 kg
Samtals 2.708 kg
16.7.24 Lára VI ÍS 112 Handfæri
Þorskur 430 kg
Ufsi 21 kg
Samtals 451 kg
16.7.24 Mar AK 74 Handfæri
Þorskur 752 kg
Karfi 20 kg
Samtals 772 kg
16.7.24 Ingi Rúnar AK 35 Handfæri
Þorskur 770 kg
Samtals 770 kg
16.7.24 Stapavík AK 8 Handfæri
Þorskur 685 kg
Karfi 36 kg
Ufsi 19 kg
Ýsa 16 kg
Samtals 756 kg

Skoða allar landanir »