Tæp 70% andvíg sjókvíaeldi

Tæplega 70% segjast mótfallin sjókvíaeldi við Ísland.
Tæplega 70% segjast mótfallin sjókvíaeldi við Ísland. mbl.is/Helgi Bjarnason

Alls sögðust 69% svarenda í skoðanakönnun Maskínu í nóvember sögðust vera andvígir sjókvíaeldi við Ísland og aðeins 10% hlynntir. Hefur hlutfall þeirra sem eru andvígir sjókvíaeldi aukist um tólf prósentustig frá könnun Maskínu í mars og hlutfall hlynntra dregist saman um þriðjung eða fimm prósentustig.

Frá árinu 2021 hefur hlutfall hlynntra meira en helmingast og hlutfall andvígra aukist um meira en 20 prósentustig.

Þetta rímar vel við þá þróun sem hefur átt sér stað undanfarin misseri ekki síst í kjöfar þess að nokkur þúsund laxar sluppu úr sjókví Arctic Fish í Patreksfirði í ágúst. Niðurstöður könnunar Gallup sem kynntar voru í byrjun október gáfu til kynna að meira en helmingur landsmanna vilja banna laxeldi í opnum sjókvíum.

Samkvæmt könnun Maskínu virðast Íslendingar vera mun jákvæðari gagnvart landeldi þó stuðningurinn hafi dvínað á undanförnum tveimur árum og sögðust 47% svarenda hlynntir slíku laxeldi í síðustu könnun Maskínu á móti 55% sem sögðu hið sama í ágúst 2021. Þá segjast 26% andvígir landeldi nú og er það næstum því tvöfalt fleiri en fyrir tveimur árum.

Fram kemur á vef Maskínu að könnunin fór fram 3. til 7. nóvember og voru svarendur 937. „Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e.panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Svarendur eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Svör voru vegin samkvæmt mannfjöldatölum Hagstofunnar um kyn, aldur, búsetu og menntun, þannig að þau endurspegla þjóðina prýðilega.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 471,71 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 396,54 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 366,25 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 235,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,94 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,72 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Ýsa 3.160 kg
Þorskur 1.817 kg
Skarkoli 867 kg
Skrápflúra 307 kg
Sandkoli 48 kg
Steinbítur 31 kg
Þykkvalúra 9 kg
Karfi 6 kg
Ufsi 5 kg
Langlúra 3 kg
Samtals 6.253 kg
22.7.24 Bárður SH 81 Dragnót
Ýsa 6.738 kg
Þorskur 873 kg
Steinbítur 217 kg
Skarkoli 101 kg
Hlýri 3 kg
Samtals 7.932 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 471,71 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 396,54 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 366,25 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 235,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,94 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,72 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Ýsa 3.160 kg
Þorskur 1.817 kg
Skarkoli 867 kg
Skrápflúra 307 kg
Sandkoli 48 kg
Steinbítur 31 kg
Þykkvalúra 9 kg
Karfi 6 kg
Ufsi 5 kg
Langlúra 3 kg
Samtals 6.253 kg
22.7.24 Bárður SH 81 Dragnót
Ýsa 6.738 kg
Þorskur 873 kg
Steinbítur 217 kg
Skarkoli 101 kg
Hlýri 3 kg
Samtals 7.932 kg

Skoða allar landanir »