Bindur vonir við að vinnsluhúsið sé ekki ónýtt

Hermann segir vinnsluhús Stakkavíkur ekki líta vel út eftir jarðhræringarnar, …
Hermann segir vinnsluhús Stakkavíkur ekki líta vel út eftir jarðhræringarnar, en vonast til að geta hafist handa við viðgerðir. mbl.is/RAX

Ástand vinnsluhúss Stakkavíkur eftir jarðhræringarnar sem herjað hafa á Grindavík er ekki gott að sögn Hermanns Ólafssonar framkvæmdastjóra útgerðarinnar. Nýlega hafi verið fjárfest fyrir um 100 milljónir til að gera upp aðstöðu til að sýna ferðamönnum íslenskar línuveiðar og vinnslu, en nú bíða um hundrað starfsmenn Stakkavíkur eftir því að vita hvort húsið verði dæmt ónýtt.

„Staðan á húsnæðinu er ekki góð. Þetta lítur ekki vel út. Ég bíð bara eftir svari frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands. Þeir komu og tóku þetta út og nú er bara spurning hvað þeir vilja gera – hvort þeir dæmi húsið ónýtt,“ segir Hermann í viðtali í blaði 200 mílna sem fylgdi Morgunblaðinu á Laugardag.

„Húsið er á sprungu og ég veit ekkert hvernig þeir meta það. Þetta lítur mjög illa út en þetta er fljótt að taka á sig aðra mynd ef byrjað er að laga. Þetta eru aðallega gólf og veggir sem hafa orðið fyrir skemmdum. Það er örugglega hægt að laga þetta en maður bíður bara eftir niðurstöðunni svo maður geti byrjað. Það er það sem er verst, að bíða.“

Hann kveðst hafa óskað eftir að málið fái flýtimeðferð hjá Náttúruhamfaratryggingu Íslands sökum þess að þetta er stór vinnustaður í Grindavík þar sem starfa um hundrað manns og skiptir miklu máli að hefja lagfæringar sem fyrst svo hægt verði að koma vinnslu í gang þegar vetrarvertíðin hefst. „Ef við fengjum svar strax um að húsið væri nothæft væri hægt að byrja um leið, ef það væri á morgun gæti húsið verið tilbúið kannski um 20. janúar.“

Hermann segist ekki vilja hugsa til þess hvað verður ef ekki verður mögulegt að lagfæra húsið. „Ég bara veit ekkert hvað við gerum ef þetta verður dæmt ónýtt. Ég er bara bjartsýnn og trúi því að við fáum að gera við.“

Viðtalið við Hermann má lesa í blaði 200 mílna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 4.10.24 453,42 kr/kg
Þorskur, slægður 4.10.24 461,60 kr/kg
Ýsa, óslægð 4.10.24 232,47 kr/kg
Ýsa, slægð 4.10.24 188,59 kr/kg
Ufsi, óslægður 4.10.24 215,68 kr/kg
Ufsi, slægður 4.10.24 238,63 kr/kg
Djúpkarfi 3.10.24 196,31 kr/kg
Gullkarfi 4.10.24 185,92 kr/kg
Litli karfi 25.9.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 4.10.24 19,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

5.10.24 Aðalsteinn Jónsson SU 11 Flotvarpa
Kolmunni 2.185.810 kg
Samtals 2.185.810 kg
5.10.24 Óli Á Stað GK 99 Línutrekt
Þorskur 578 kg
Keila 354 kg
Steinbítur 127 kg
Ýsa 21 kg
Hlýri 15 kg
Karfi 12 kg
Ufsi 5 kg
Skarkoli 1 kg
Samtals 1.113 kg
5.10.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Ýsa 4.374 kg
Þorskur 3.798 kg
Steinbítur 442 kg
Langa 157 kg
Hlýri 157 kg
Skarkoli 90 kg
Karfi 9 kg
Samtals 9.027 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 4.10.24 453,42 kr/kg
Þorskur, slægður 4.10.24 461,60 kr/kg
Ýsa, óslægð 4.10.24 232,47 kr/kg
Ýsa, slægð 4.10.24 188,59 kr/kg
Ufsi, óslægður 4.10.24 215,68 kr/kg
Ufsi, slægður 4.10.24 238,63 kr/kg
Djúpkarfi 3.10.24 196,31 kr/kg
Gullkarfi 4.10.24 185,92 kr/kg
Litli karfi 25.9.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 4.10.24 19,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

5.10.24 Aðalsteinn Jónsson SU 11 Flotvarpa
Kolmunni 2.185.810 kg
Samtals 2.185.810 kg
5.10.24 Óli Á Stað GK 99 Línutrekt
Þorskur 578 kg
Keila 354 kg
Steinbítur 127 kg
Ýsa 21 kg
Hlýri 15 kg
Karfi 12 kg
Ufsi 5 kg
Skarkoli 1 kg
Samtals 1.113 kg
5.10.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Ýsa 4.374 kg
Þorskur 3.798 kg
Steinbítur 442 kg
Langa 157 kg
Hlýri 157 kg
Skarkoli 90 kg
Karfi 9 kg
Samtals 9.027 kg

Skoða allar landanir »