Erfitt að koma afurðum til Úkraínu

Röð vörubíla við landamærin að Úkráinu er um 50 kílómetrar.
Röð vörubíla við landamærin að Úkráinu er um 50 kílómetrar. Ljósmynd/Samherji

Um fimmtíu flutningabílar hafa verið í fastir í biðröð með sjávarafurðir til helsta kaupanda Ice Fresh Seafood í Úkraínu og eru í þeim samtals um eitt þúsund tonn af afurðum. Ice Fresh Seafood selur afurðir Samherja, Síldarvinnslunnar og fleiri sjávarútvegsfyrirtækja, að því er fram kemur á vef Samherja.

Margra kílómetra löng röð flutningabíla hefur verið við landamæri Póllands og Úkraínu undanfarnar vikur vegna aðgerða að undirlagi pólskra bílstjóra. Áætlað er að röðin hafi síðustu daga verið um 50 kílómetra löng og bílarnir í röðinni séu hátt í þrjú þúsund.

Jóhannes Már Jóhannesson sölustjóri hjá Ice Fresh Seafood segir í færsluá vef Smaherja ástandið mjög svo bagalegt og ómögulegt að segja til um framvindu mála.

„Staðan í þessu máli er á margan hátt flókin og auk þess pólitísk, þar sem ný ríkisstjórn er að taka við völdum í Póllandi. Þegar svona ástand skapast hækkar verð á flutningum upp úr öllu valdi, kostnaðurinn hefur líklega fimmfaldast síðan þetta ástand skapaðist við landamærin.“

Jóhannes Már Jóhannesson sölustjóri Ice Fresh Seafood.
Jóhannes Már Jóhannesson sölustjóri Ice Fresh Seafood. Ljósmynd/Samherji

Jóhannes segir Úkraínu stærsta makaðssvæði fyrir uppsjávarafurðirnar síld, loðnu og makríl. „Innrás Rússa í Úkraínu gjörbreytti öllum aðstæðum varðandi sölu og afhendingu afurða þar, hafnir við Svartahaf lokuðust og því ekki hægt að senda flutningaskip þangað eins og áður.

Jóhannes seir stöðuna á landamærunum við Úkraínu fyrst og fremst bitna á fólkinu í Úkraínu. „Maður vonar sannarlega að biðraðirnar verði úr sögunni sem fyrst. Við erum í þéttu og góðu sambandi við viðskiptavini okkar í Úkraínu, sem hafa auðvitað miklar áhyggjur af ástandinu. Það eru gríðarleg verðmæti í húfi, ég býst við að matvæli séu í stórum hluta þessarar fimmtíu kílómetra löngu biðraðar.“

Ljósmynd/Samherji
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.1.25 591,78 kr/kg
Þorskur, slægður 17.1.25 609,46 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.1.25 380,76 kr/kg
Ýsa, slægð 17.1.25 302,45 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.1.25 189,00 kr/kg
Ufsi, slægður 17.1.25 253,81 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.7.23 10,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 14.1.25 21,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 17.1.25 184,16 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.1.25 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Ýsa 1.064 kg
Þorskur 298 kg
Steinbítur 47 kg
Keila 17 kg
Hlýri 15 kg
Samtals 1.441 kg
17.1.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 8.767 kg
Ýsa 5.091 kg
Steinbítur 294 kg
Langa 219 kg
Keila 78 kg
Karfi 20 kg
Samtals 14.469 kg
17.1.25 Eskey ÓF 80 Línutrekt
Þorskur 10.232 kg
Ýsa 1.981 kg
Langa 354 kg
Karfi 37 kg
Steinbítur 26 kg
Samtals 12.630 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.1.25 591,78 kr/kg
Þorskur, slægður 17.1.25 609,46 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.1.25 380,76 kr/kg
Ýsa, slægð 17.1.25 302,45 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.1.25 189,00 kr/kg
Ufsi, slægður 17.1.25 253,81 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.7.23 10,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 14.1.25 21,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 17.1.25 184,16 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.1.25 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Ýsa 1.064 kg
Þorskur 298 kg
Steinbítur 47 kg
Keila 17 kg
Hlýri 15 kg
Samtals 1.441 kg
17.1.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 8.767 kg
Ýsa 5.091 kg
Steinbítur 294 kg
Langa 219 kg
Keila 78 kg
Karfi 20 kg
Samtals 14.469 kg
17.1.25 Eskey ÓF 80 Línutrekt
Þorskur 10.232 kg
Ýsa 1.981 kg
Langa 354 kg
Karfi 37 kg
Steinbítur 26 kg
Samtals 12.630 kg

Skoða allar landanir »

Loka