Telur nauðsynlegt að kalla saman þing

Bergþór kveðst þeirrar skoðunar að Svandís eigi að segja af …
Bergþór kveðst þeirrar skoðunar að Svandís eigi að segja af sér. Samsett mynd

Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, segir nauðsynlegt að kalla saman Alþingi strax eftir helgi til að fara yfir álit umboðsmanns um vinnubrögð Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra. 

„Það er ótækt að þetta liggi órætt til 22. janúar í ljósi alvarleika málsins,“ segir Bergþór sem hyggst fara fram á það að Alþingi verði kallað saman fyrr en áætlað var. 

„Ákúrur umboðsmanns eru mjög alvarlegar, bæði er varðar það að meðalhófs hafi ekki verið gætt og að þarna hafi beinlínis verið brotið gegn lögum. Það verður auðvitað að hafa í huga í því samhengi hvort að ráðherrann var í góðri trú eða ekki þegar það var gert. Það var augljóslega ekki, það sást á gögnum málsins strax í byrjun þegar ráðherrann hafði verið varaður við þessu af ráðuneyti sínu,“ segir hann. 

Áhugavert að rifja upp orð Svandísar í sambærilegum málum

Í samtali við mbl.is fyrr í dag sagðist Svandís telja skýrt að álit umboðsmanns kalli ekki á að hún íhugi stöðu sína sem ráðherra. Sagði hún jafnframt að mál hennar og Bjarna Bene­dikts­son­ar ut­an­rík­is­ráðherra, sem hætti sem fjár­málaráðherra eft­ir álit umboðsmanns, væru ólíkt vax­in.  

Bergþór segir það mjög „selektívt“ af Svandísi að nálgast málið með þessum hætti. Í því samhengi segir hann það geta orðið áhugavert að rifja upp orð Svandísar í sambærilegum málum á fyrri stigum. Tekur hann sem dæmi að Svandís hafi haft sig töluvert í frammi þegar Hanna Birna Kristjánsdóttir sagði af sér sínu embætti árið 2014. 

Forherðing í yfirlýsingu Svandísar

Því til viðbótar segir hann ekki mikla iðrun að sjá í yfirlýsingu Svandísar sem hún birti á Facebook fyrr í dag. „Þar er bara að sjá meiri forherðingu,“ segir hann. 

Spurður hvort hann sé þeirrar skoðunar að Svandís ætti að segja af sér vegna málsins segir hann: 

„Mér hefur alla tíð þótt, margra hluta vegna, að Svandís ætti að segja af sér af því að hún er ekki góður matvælaráðherra. Sú afstaða mín hefur verið skýr lengi.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.7.24 399,16 kr/kg
Þorskur, slægður 16.7.24 406,84 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.7.24 367,05 kr/kg
Ýsa, slægð 16.7.24 309,23 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.7.24 151,84 kr/kg
Ufsi, slægður 16.7.24 164,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 16.7.24 349,26 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.7.24 Kristbjörg SH 84 Grásleppunet
Grásleppa 2.708 kg
Samtals 2.708 kg
16.7.24 Lára VI ÍS 112 Handfæri
Þorskur 430 kg
Ufsi 21 kg
Samtals 451 kg
16.7.24 Mar AK 74 Handfæri
Þorskur 752 kg
Karfi 20 kg
Samtals 772 kg
16.7.24 Ingi Rúnar AK 35 Handfæri
Þorskur 770 kg
Samtals 770 kg
16.7.24 Stapavík AK 8 Handfæri
Þorskur 685 kg
Karfi 36 kg
Ufsi 19 kg
Ýsa 16 kg
Samtals 756 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.7.24 399,16 kr/kg
Þorskur, slægður 16.7.24 406,84 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.7.24 367,05 kr/kg
Ýsa, slægð 16.7.24 309,23 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.7.24 151,84 kr/kg
Ufsi, slægður 16.7.24 164,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 16.7.24 349,26 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.7.24 Kristbjörg SH 84 Grásleppunet
Grásleppa 2.708 kg
Samtals 2.708 kg
16.7.24 Lára VI ÍS 112 Handfæri
Þorskur 430 kg
Ufsi 21 kg
Samtals 451 kg
16.7.24 Mar AK 74 Handfæri
Þorskur 752 kg
Karfi 20 kg
Samtals 772 kg
16.7.24 Ingi Rúnar AK 35 Handfæri
Þorskur 770 kg
Samtals 770 kg
16.7.24 Stapavík AK 8 Handfæri
Þorskur 685 kg
Karfi 36 kg
Ufsi 19 kg
Ýsa 16 kg
Samtals 756 kg

Skoða allar landanir »