Vilhjálmur Árnason, varaþingflokksformaður og ritari Sjálfstæðisflokksins, segir að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins muni fara yfir og ræða niðurstöðu umboðsmanns Alþingis.
Eins og greint var frá fyrr í dag er það álit umboðsmanns Alþingis að útgáfa reglugerðar Svandísar Svavarsdóttur, sem bannaði tímabundið hvalveiðar í sumar, hafi ekki samræmst kröfum um meðalhóf og hafi ekki átt sér nægilega skýra stoð í lögum.
„Við sáum aldrei neina aðra mögulega niðurstöðu í þessu máli en þetta,“ segir Vilhjálmur í samtali við mbl.is.
Vilhjálmur segir að þingflokkurinn muni ræða málið í síðasta lagi á næsta þingflokksfundi en hann kveðst ekki vita að svo stöddu hvort að boðað verði til aukafundar til að ræða þetta.
„Að sjálfsögðu munum við fara betur yfir álitið og sjá nákvæmlega hvernig er komist að þessari niðurstöðu og hversu alvarlegt brotið gegn þessum grundvallarreglum íslensks réttarríkis þetta er - sjá hverjar mögulegar afleiðingar af slíku ættu að vera, eða ábyrgð,“ segir hann og bætir við:
„Við getum ekki liðið það að atvinnulífið eða önnur starfsemi, lögleg í landinu, þurfi að sæta svona ákvörðunum.“
Hann segir að atvinnulífið verði að geta treyst því að fá að starfa í friði og að stjórnsýslan fari að lögum.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 28.6.24 | 391,85 kr/kg |
Þorskur, slægður | 28.6.24 | 416,18 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 28.6.24 | 243,61 kr/kg |
Ýsa, slægð | 28.6.24 | 190,90 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 28.6.24 | 79,71 kr/kg |
Ufsi, slægður | 27.6.24 | 190,37 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.6.24 | 304,40 kr/kg |
Gullkarfi | 28.6.24 | 360,81 kr/kg |
Litli karfi | 20.6.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 20.6.24 | 318,00 kr/kg |
29.6.24 Ás SH 130 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.148 kg |
Samtals | 1.148 kg |
29.6.24 Jökull SH 339 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 939 kg |
Samtals | 939 kg |
29.6.24 Himbrimi BA 415 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 6 kg |
Samtals | 6 kg |
29.6.24 Álka ÍS 409 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 234 kg |
Steinbítur | 47 kg |
Ýsa | 18 kg |
Ufsi | 4 kg |
Samtals | 303 kg |
29.6.24 Sendlingur ÍS 415 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 254 kg |
Samtals | 254 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 28.6.24 | 391,85 kr/kg |
Þorskur, slægður | 28.6.24 | 416,18 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 28.6.24 | 243,61 kr/kg |
Ýsa, slægð | 28.6.24 | 190,90 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 28.6.24 | 79,71 kr/kg |
Ufsi, slægður | 27.6.24 | 190,37 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.6.24 | 304,40 kr/kg |
Gullkarfi | 28.6.24 | 360,81 kr/kg |
Litli karfi | 20.6.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 20.6.24 | 318,00 kr/kg |
29.6.24 Ás SH 130 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.148 kg |
Samtals | 1.148 kg |
29.6.24 Jökull SH 339 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 939 kg |
Samtals | 939 kg |
29.6.24 Himbrimi BA 415 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 6 kg |
Samtals | 6 kg |
29.6.24 Álka ÍS 409 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 234 kg |
Steinbítur | 47 kg |
Ýsa | 18 kg |
Ufsi | 4 kg |
Samtals | 303 kg |
29.6.24 Sendlingur ÍS 415 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 254 kg |
Samtals | 254 kg |