Ólöf til liðs við Hampiðjuna

Ólöf Snæhólm Baldursdóttir er nýr samskipta- og kynningarfulltrúi Hampiðjunnar.
Ólöf Snæhólm Baldursdóttir er nýr samskipta- og kynningarfulltrúi Hampiðjunnar. Ljósmynd/Hampiðjan

Hampiðjan hefur ráðið Ólöfu Snæhólm Baldursdóttur í starf samskipta- og kynningarfulltrúa. Ólöf var ein 63 umsækjenda um starfið og hefur hún hafið störf, að því er fram kemur í tilkynningu fra Hampiðjunni.

Fram kemur að Ólöf starfaði sem sérfræðingur í samskiptum og markaðsmálum hjá Orkuveitu Reykjavíkur í ríflega sex ár þar sem hún sá m.a. um upplýsingamál dótturfyrirtækisins Veitna. Þar áður var hún upplýsinga- og kynningarfulltrúi hjá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg í áratug. Ólöf lauk prófi í fjölmiðlafræði við Ohio University í Bandaríkjunum og las til meistaraprófs í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands.

„Hampiðjan er öflugt, alþjóðlegt fyrirtæki sem stendur á ákveðnum tímamótum um þessar mundir vegna aukinna umsvifa og skráningar á aðalmarkað Nasdaq Iceland. Það kallar á nýjar áherslur í samskiptum við hluthafa, viðskiptavini og aðra hagaðila.  Ég hlakka til að takast á við þær áskoranir sem því fylgja með öflugum hópi samstarfsfólks,“ er haft eftir Ólöfu í tilkynningunni.

Hjörtur Erlendsson forstjóri Hampiðjunnar
Hjörtur Erlendsson forstjóri Hampiðjunnar mbl.is/Kristinn

„Það er mikill fengur fyrir Hampiðjuna að fá Ólöfu til starfa, hún býr að mikilli reynslu, færni og þekkingu sem eiga eftir að nýtast okkur vel í framtíðinni. Okkar bíða aðkallandi verkefni í hinum stafræna heimi ásamt miðlun upplýsinga og áframhaldandi mótun markaðsstarfs Hampiðjunnar, bæði hér heima og sem erlendis og þar kemur Ólöf sterk inn,” segir Hjörtur Erlendsson, forstjóri Hampiðjunnar.

Ráðandi á markaði

Rekstur Hampiðjusamstæðunnar er umfangsmikill og hefur fyrirtækið og dafnað frá stofnun árið 1934 og er það nú stærsta veiðarfærafyrirtæki heims með 51 dótturfyrirtæki innan sinna vébanda. Samstæðan er með starfsstöðvar á 76 stöðum í 21 landi og ríflega 2.000 starfsmenn og teygir starfsemin sig frá ysta odda í Alaska í vestri og til Nýja-Sjálands í austri.

Framleiðsla á netum og köðlum hefur ætíð verið kjarnastarfsemi fyrirtækisins sem síðustu tvo áratugina hefur orðið ráðandi á markaði með byltingarkenndum vörum og lausnum fyrir fiskveiðar og olíuiðnað. Hampiðjan var skráð á aðalmarkað Nasdaq Iceland í júní 2023.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.12.24 710,33 kr/kg
Þorskur, slægður 22.12.24 707,99 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.12.24 401,74 kr/kg
Ýsa, slægð 22.12.24 174,32 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.12.24 211,11 kr/kg
Ufsi, slægður 22.12.24 62,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 18.12.24 42,00 kr/kg
Djúpkarfi 8.11.24 179,00 kr/kg
Gullkarfi 22.12.24 140,85 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.12.24 Kristrún RE 177 Grálúðunet
Grálúða 192.678 kg
Þorskur 6.879 kg
Samtals 199.557 kg
22.12.24 Júlíus Geirmundsson ÍS 270 Botnvarpa
Þorskur 186.991 kg
Ýsa 154.221 kg
Karfi 48.438 kg
Ufsi 9.809 kg
Steinbítur 1.935 kg
Skarkoli 206 kg
Þykkvalúra 151 kg
Langa 92 kg
Samtals 401.843 kg
22.12.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Skarkoli 108 kg
Ýsa 35 kg
Steinbítur 26 kg
Sandkoli 14 kg
Samtals 183 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.12.24 710,33 kr/kg
Þorskur, slægður 22.12.24 707,99 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.12.24 401,74 kr/kg
Ýsa, slægð 22.12.24 174,32 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.12.24 211,11 kr/kg
Ufsi, slægður 22.12.24 62,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 18.12.24 42,00 kr/kg
Djúpkarfi 8.11.24 179,00 kr/kg
Gullkarfi 22.12.24 140,85 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.12.24 Kristrún RE 177 Grálúðunet
Grálúða 192.678 kg
Þorskur 6.879 kg
Samtals 199.557 kg
22.12.24 Júlíus Geirmundsson ÍS 270 Botnvarpa
Þorskur 186.991 kg
Ýsa 154.221 kg
Karfi 48.438 kg
Ufsi 9.809 kg
Steinbítur 1.935 kg
Skarkoli 206 kg
Þykkvalúra 151 kg
Langa 92 kg
Samtals 401.843 kg
22.12.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Skarkoli 108 kg
Ýsa 35 kg
Steinbítur 26 kg
Sandkoli 14 kg
Samtals 183 kg

Skoða allar landanir »