Hermann Nökkvi Gunnarsson
Það er óvenjulegt fyrir áhöfnina á varðskipinu Þór að vakta Grindavík á meðan lítið sem ekkert líf er í bænum. Varðskipið er fyrir utan höfnina og er til taks ef þörf er á.
Þetta segir Páll Geirdal, skipherra á varðskipinu Þór, í samtali við mbl.is.
„Þetta er pínu skrýtið. Sérstaklega eins og það var í gær, ekkert ljós heldur og við sáum ekkert,“ segir Páll og vísar í það að bærinn var rafmagnslaus á sunnudaginn. Síðdegis í gær kom þó rafmagn á vesturhlutann.
Páll segir að þetta sé nánast eins og að vakta draugabæ en að meira líf hafi þó verið í bænum í gær.
„Það er auðvitað núna búið að vera svolítið af viðbragðsaðilum og fólki að athuga og skoða bæinn – leita að sprungum – þannig að það er búið að vera dálítið líf í dag,“ segir Páll.
Varðskipið Þór er til halds og trausts fyrir utan Grindavík ef óskað er eftir þjónustu varðskipsmanna. Skipið er í 400 metra fjarlægð frá höfninni ef kallið kemur.
„[Á sunnudaginn] fórum við í land og þá var óskað eftir því af Grindavíkurbæ að opna fyrir brunahana og við fórum í það mál. Við fengum ekki að fara alveg í það strax, það var kvika farin að koma í einhvern gang þarna undir bænum,“ segir hann en útskýrir að nokkrum tímum seinna hafi þeir fengið að fara í land og opna fyrir brunahanann.
Seinna um daginn var áhöfnin send í annað verkefni við að flytja hafnarbát Grindavíkur úr höfninni til að fara með til Þorlákshafnar. Hafnarstjóri bæjarins, skipstjóri og vélstjóri hafnarbátsins komu þá með þyrlu á Þór og Landhelgisgæslan fór með þá í höfnina.
„Við vorum hjá þeim á meðan þeir voru að koma bátnum út,“ segir Páll.
Það eru 18 í áhöfninni um borð á Þór um þessar mundir og hafa þeir fengið þau skilaboð að vera fyrir utan Grindavík næstu daga.
„Ef við erum beðnir um að gera eitthvað þá gerum við okkar besta til að leysa það,“ segir hann og bætir við:
„Við verðum til taks þangað til að annað breytist.“
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 30.1.25 | 610,59 kr/kg |
Þorskur, slægður | 30.1.25 | 740,19 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 30.1.25 | 405,87 kr/kg |
Ýsa, slægð | 30.1.25 | 312,87 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 30.1.25 | 226,54 kr/kg |
Ufsi, slægður | 30.1.25 | 286,62 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 30.1.25 | 10,67 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 6.1.25 | 90,00 kr/kg |
Gullkarfi | 30.1.25 | 251,67 kr/kg |
30.1.25 Litlanes ÞH 3 Línutrekt | |
---|---|
Ýsa | 2.247 kg |
Þorskur | 802 kg |
Hlýri | 254 kg |
Keila | 68 kg |
Steinbítur | 9 kg |
Karfi | 4 kg |
Samtals | 3.384 kg |
30.1.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Þorskur | 10.295 kg |
Ýsa | 7.661 kg |
Steinbítur | 441 kg |
Langa | 15 kg |
Hlýri | 8 kg |
Samtals | 18.420 kg |
30.1.25 Haförn ÞH 26 Dragnót | |
---|---|
Þorskur | 1.227 kg |
Ýsa | 787 kg |
Skarkoli | 426 kg |
Steinbítur | 213 kg |
Sandkoli | 26 kg |
Ufsi | 8 kg |
Samtals | 2.687 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 30.1.25 | 610,59 kr/kg |
Þorskur, slægður | 30.1.25 | 740,19 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 30.1.25 | 405,87 kr/kg |
Ýsa, slægð | 30.1.25 | 312,87 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 30.1.25 | 226,54 kr/kg |
Ufsi, slægður | 30.1.25 | 286,62 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 30.1.25 | 10,67 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 6.1.25 | 90,00 kr/kg |
Gullkarfi | 30.1.25 | 251,67 kr/kg |
30.1.25 Litlanes ÞH 3 Línutrekt | |
---|---|
Ýsa | 2.247 kg |
Þorskur | 802 kg |
Hlýri | 254 kg |
Keila | 68 kg |
Steinbítur | 9 kg |
Karfi | 4 kg |
Samtals | 3.384 kg |
30.1.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Þorskur | 10.295 kg |
Ýsa | 7.661 kg |
Steinbítur | 441 kg |
Langa | 15 kg |
Hlýri | 8 kg |
Samtals | 18.420 kg |
30.1.25 Haförn ÞH 26 Dragnót | |
---|---|
Þorskur | 1.227 kg |
Ýsa | 787 kg |
Skarkoli | 426 kg |
Steinbítur | 213 kg |
Sandkoli | 26 kg |
Ufsi | 8 kg |
Samtals | 2.687 kg |