Vetrarmæling loðnu hefst í dag

Skip Hafrannsóknastofnunar leggja frá bryggju í dag.
Skip Hafrannsóknastofnunar leggja frá bryggju í dag. mbl.is/Árni Sæberg

Vetrarmæling Hafrannsóknastofnunar á loðnu hefst í dag og taka að þessu sinni fjögur skip þátt í mælingunum; rannsóknaskipin Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson auk uppsjávarskipanna Ásgríms Halldórssonar SF-250 sem Skinney-Þinganes gerir út og grænlenska skipsins Polar Ammassak.

„Aðkoma veiðiskipanna er fjármögnuð af loðnuútgerðum innan SFS (Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi). Stefnt verður að því að mæla á hefðbundnum útbreiðslu- og göngusvæðum loðnunnar á þessum árstíma utan við og meðfram landgrunnsbrúnum út af Vestfjörðum, Norður- og Austurlandi,“ segir Birkir Bárðarson, verkefnisstjóri hjá Hafrannsóknastofnun, í samtali við Morgunblaðið í dag.

Birkir Bárðarson verkefnisstjóri hjá Hafrannsóknastofnun.
Birkir Bárðarson verkefnisstjóri hjá Hafrannsóknastofnun. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Spurningu um tilhögun leiðangursins svarar hann: „Árni, Bjarni og Ammassak fara frá Hafnarfirði seinnipartinn [í dag] og hefja mælingar út af Vestfjörðum og mæla þaðan til austurs út af Norðurlandi. Vegna veðurs verður ekki hægt að hefja mælingar strax fyrir austan land en Ásgrímur mun leggja af stað frá Höfn í Hornafirði á miðvikudagskvöld og kvarða bergmálsmæli inni á einhverjum skjólgóðum firði áður en mælingar hans hefjast út af Austfjörðum.“

Fréttina má lesa í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.7.24 399,08 kr/kg
Þorskur, slægður 16.7.24 409,38 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.7.24 365,23 kr/kg
Ýsa, slægð 16.7.24 309,23 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.7.24 151,41 kr/kg
Ufsi, slægður 16.7.24 164,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 16.7.24 349,15 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.7.24 Rósin ST 54 Handfæri
Þorskur 659 kg
Samtals 659 kg
16.7.24 Stefnir KÓ 24 Handfæri
Þorskur 366 kg
Ufsi 10 kg
Samtals 376 kg
16.7.24 Þórður Ólafsson BA 96 Handfæri
Þorskur 421 kg
Samtals 421 kg
16.7.24 Barðstrendingur ST 31 Handfæri
Þorskur 446 kg
Samtals 446 kg
16.7.24 Vinur ÁR 60 Handfæri
Þorskur 275 kg
Karfi 3 kg
Ýsa 2 kg
Ufsi 1 kg
Samtals 281 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.7.24 399,08 kr/kg
Þorskur, slægður 16.7.24 409,38 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.7.24 365,23 kr/kg
Ýsa, slægð 16.7.24 309,23 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.7.24 151,41 kr/kg
Ufsi, slægður 16.7.24 164,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 16.7.24 349,15 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.7.24 Rósin ST 54 Handfæri
Þorskur 659 kg
Samtals 659 kg
16.7.24 Stefnir KÓ 24 Handfæri
Þorskur 366 kg
Ufsi 10 kg
Samtals 376 kg
16.7.24 Þórður Ólafsson BA 96 Handfæri
Þorskur 421 kg
Samtals 421 kg
16.7.24 Barðstrendingur ST 31 Handfæri
Þorskur 446 kg
Samtals 446 kg
16.7.24 Vinur ÁR 60 Handfæri
Þorskur 275 kg
Karfi 3 kg
Ýsa 2 kg
Ufsi 1 kg
Samtals 281 kg

Skoða allar landanir »