Smíði á vetnisskipum Samskipa hafin

Ný vetnisskip Samskipa munu sigla milli Noregs og Hollands.
Ný vetnisskip Samskipa munu sigla milli Noregs og Hollands. Mynd/Samskip

Smíði á tveimur nýjum vetnisskipum Samskipa er hafin og hefur fyrsta stálið í skipin hefur verið skorið á Indlandi. Stefnt er að því að að skipin flytji vörur milli Noregs og Hollands og var tímamótunum var fagnað í fjölmennri athöfn í Rotterdam í Hollandi.

Stálskurðarathöfn, sem markar formlegt upphaf smíði skipa með því að byrjað er að sníða stál til skipagerðarinnar, fór fram í gærmorgun í Cochin skipasmíðastöðinni, að því er segir í fréttatilkynningu.

Fram kemur að „þegar fyrsta stálið er skorið til smíði nýrra skipa markar upphafið að skipasmíðinni og er alla jafna fagnað því þá er loks komið að verkinu sjálfu eftir langan undirbúning. Líkja má athöfninni við það þegar hornsteinn bygginga er lagður. Gert er ráð fyrir að smíði skipanna taki tvö ár.“

Streymt var frá athöfninni í fjölmennum viðburði í Rotterdam þar sem tímamótunum var fagnað, en þar er stærsta höfn Evrópu og ein af stærstu flutningaskipahöfnum heims.

„Þau tímamót að smíði skipanna sé nú hafin eftir langt hönnunarferli er Samskipum sérstakt fagnaðarefni. Samskip leggja sig fram um að laga sig að breyttum tímum og áherslum í málum tengdum umhverfi og sjálfbærni og stefna að algjöru kolefnishlutleysi í rekstri sínum. Notkun sjálfbærra orkugjafa er nauðsynlegur áfangi á þeirri leið,“ segir í fréttatilkynnignunni.

Haft er eftir Ágústu Hrund Steinarsdóttur forstöðumanni markaðs- og samskiptadeildar Samskipa: „Sjálfbærni er samofin kjarnastefnu Samskipa sem hefur markmið sín í þeim efnum að leiðarljósi hvarvetna í starfseminni. Með smíði Seashuttle flutningaskipanna færa Samskip sig í átt að útblásturlausum skipaflutningum, en Samskip hafa sett markið á kolefnishlutleysi fyrir árið 2040. Samskip hófu þessa vegferð með skipum sem ganga fyrir náttúrugasi, eða LNG. Á lengri siglingaleiðum, eins og til Íslands, ætla Samskip líka að vera í fararbroddi og stefna að upptöku nýjustu og bestu tækni um leið og hægt er.“

Meðal fyrstu skipa sinnar tegundar

Vetnisknúnu flutningaskipin Seashuttle koma til með að flytja vörur milli Noregs og Hollands og verða meðal fyrstu gámaflutningaskipa heims á skemmri flutningsleiðum sem ganga á grænu vetni án mengandi útblásturs. Áætlað er að með notkun vetnisins sparist hjá hvoru skipi útblástur sem nemur um 25.000 tonnum CO2. Þá verða skipin útblásturslaus í viðkomuhöfn með notkun grænnar landorku.

Smíði vetnisknúinna flutningaskipa Samskipa er hluti af brautryðjendaverkefninu Seashuttle. Smíðin er eitt metnaðarfullra umhverfisverkefna Samskipa og unnið í samstarfi við græna fjármögnunaráætlun norskra stjórnvalda sem miða að útblásturslausum flutningum með notkun nýrra sjálfbærra tæknilausna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.7.24 Sendlingur ÍS 415 Sjóstöng
Þorskur 372 kg
Samtals 372 kg
27.7.24 Álft ÍS 413 Sjóstöng
Þorskur 239 kg
Samtals 239 kg
26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.7.24 Sendlingur ÍS 415 Sjóstöng
Þorskur 372 kg
Samtals 372 kg
27.7.24 Álft ÍS 413 Sjóstöng
Þorskur 239 kg
Samtals 239 kg
26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg

Skoða allar landanir »