Hugmyndafræði Sjávarklasans víða eftirsótt

„Skilaboðin okkar alls staðar eru að það sé hægt að …
„Skilaboðin okkar alls staðar eru að það sé hægt að gera miklu betur í þessari grein ef við bara sýnum henni áhuga,“ segir hugsjónamaðurinn Þór Sigfússon. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ekki verður annað séð en að hugmyndafræðin að baki Íslenska sjávarklasanum sé tekin að dreifast um heiminn en klasarnir eru nú orðnir níu á heimsvísu. Markmiðið með klasastarfinu er að tengja saman fræðimenn, sprotafyrirtæki og útgerðir og þannig mynda samskiptamenningu sem skilar auknum verðmætum, minni sóun og bættri umgengni við auðlindina.

Í viðtali í síðasta blaði 200 mílna rifjar Þór Sigfússon, stofnandi Íslenska sjávarklasans, upp hvernig klasastarfsemin hófst.

Aðeins tíu sprotafyrirtæki voru með aðsetur í Húsi sjávarklasans í fyrstu og voru þau flest einsmannsfyrirtæki þannig að aðeins voru um fimmtán manns í húsinu. „Núna eru þau fyrirtæki komin með á fimmta hundrað starfsmanna. Í gegnum okkar kerfi hafa farið um 200 sprotafyrirtæki og margir þeirra orðnir gríðarlega flottir.“

sjávarklasar orðnir níu í fjórum heimsálfum
sjávarklasar orðnir níu í fjórum heimsálfum Mynd/mbl.is

Árangur klasans fór fljótt að fréttast og fóru að mæta erlendir gestir og segir Þór marga hverja hafa sannfærst um að klasastarfsemi af þessum toga væri eitthvað sem þá vantaði á sínum heimaslóðum.

„Þá vantaði betri tengingu milli rannsóknarstofnana, útgerða, nemenda og ekki síst þessa heims sprotafyrirtækja. Upp úr þessu ákváðum við að prófa hvort þetta væri eitthvað sem myndi ganga í öðrum löndum,“ útskýrir Þór.

Hann bendir þó á að Íslenski sjávarklasinn hefur aðeins ráðgefandi hlutverk gagnvart öðrum klösum því þessir erlendu sjávarklasar eru allir sjálfstætt reknir óháð hinum íslenska. Útrás sjávarklasans er fyrst og fremst hugmyndafræðilegs eðlis.

Nýjasti klasinn var stofnaður nýverið í Namibíu.

Umfjöllunina um útrás hugmyndafræði Sjávarklasans má lesa í síðasta blaði 200 mílna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 15.5.24 425,22 kr/kg
Þorskur, slægður 15.5.24 559,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 15.5.24 273,64 kr/kg
Ýsa, slægð 15.5.24 314,52 kr/kg
Ufsi, óslægður 15.5.24 137,19 kr/kg
Ufsi, slægður 15.5.24 157,45 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 15.5.24 212,73 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

15.5.24 Marín SF 27 Handfæri
Þorskur 791 kg
Ufsi 74 kg
Samtals 865 kg
15.5.24 Ingunn ÍS 193 Handfæri
Þorskur 326 kg
Samtals 326 kg
15.5.24 Jón Kristinn SI 52 Handfæri
Þorskur 516 kg
Ýsa 16 kg
Ufsi 2 kg
Samtals 534 kg
15.5.24 Rabbý SI 37 Handfæri
Þorskur 746 kg
Samtals 746 kg
15.5.24 Hreinn EA 75 Handfæri
Þorskur 826 kg
Samtals 826 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 15.5.24 425,22 kr/kg
Þorskur, slægður 15.5.24 559,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 15.5.24 273,64 kr/kg
Ýsa, slægð 15.5.24 314,52 kr/kg
Ufsi, óslægður 15.5.24 137,19 kr/kg
Ufsi, slægður 15.5.24 157,45 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 15.5.24 212,73 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

15.5.24 Marín SF 27 Handfæri
Þorskur 791 kg
Ufsi 74 kg
Samtals 865 kg
15.5.24 Ingunn ÍS 193 Handfæri
Þorskur 326 kg
Samtals 326 kg
15.5.24 Jón Kristinn SI 52 Handfæri
Þorskur 516 kg
Ýsa 16 kg
Ufsi 2 kg
Samtals 534 kg
15.5.24 Rabbý SI 37 Handfæri
Þorskur 746 kg
Samtals 746 kg
15.5.24 Hreinn EA 75 Handfæri
Þorskur 826 kg
Samtals 826 kg

Skoða allar landanir »