NAMMCO mun funda í Reykjavík

Á fundi NAMMCO verður meðal annars rætt um dýraverndunarsjónarmið í …
Á fundi NAMMCO verður meðal annars rætt um dýraverndunarsjónarmið í tengslum við veiði sjávarspendýra. mbl.is/Þorgeir

Í næstu viku mun 31. fundur Norður-Atlanshafssjávarspendýraráðið (NAMMCO) fara fram á Grand hóteli í Reykjavík. „Á fundinum verður fjallað um þær áskoranir og tækifæri sem standa frammi fyrir verndun og stjórnun sjávarspendýra á Norður-Atlantshafssvæðinu, í dag og í framtíðinni,“ segir í fréttatilkynningu frá ráðinu.

Þá verður við upphaf fundarins haldin sérstök málstofa þar sem fjallað verður um dýravelferðarsjónarmið í tengslum við veiði sjávarspendýra sem og lagaramma slíkra veiða.

NAMMCO eru alþjóðasamtök stofnuð af Íslandi, Noregi, Færeyjum og Grænlandi árið 1992 vegna óánægju með nálgun Alþjóðahvalveiðiráðsins (IWC) til stjórnun nýtingar á sjávarspendýrum. Telur NAMMCO að ákvarðanir varðandi hvalveiðar eiga að byggjast á vísindalegri nálgun sem taki tillit til bæði margbreytileika og viðkvæmni vistkerfis sjávar og réttinda og þarfa strandsamfélaga til að lifa sjálfbært af því sem hafið getur veitt.

Kristján Loftsson (t.v.) og Jóhann Guðmundsson á fundi Alþjóða hvalveiðiráðsins …
Kristján Loftsson (t.v.) og Jóhann Guðmundsson á fundi Alþjóða hvalveiðiráðsins (IWC) í Slóveníu árið 2016. Íslendingar sem og aðrar þjóðir hafa gagnrýnt aðferðir IWC. AFP

Gögn forsenda nýtingar

Á fundinum verða einnig umræður um verkefnin MINTAG og NASS-2024. MINTAG-verkefnið hófst árið 2023 og snýr að því að þróa og setja upp langtíma gervihnattamerki sem miða á ákveðnar hvalategundir (þ.e. langreyðar, hrefnur og grindhval) til að safna mikilvægum upplýsingum um hreyfingar þeirra og stofnuppbyggingu.

NASS-2024 er mæling og framhald af 30 ára röð mælinga á Norður-Atlantshafshvölum sem snýr að því að safna yfirgripsmikil gögn um fjölda og þróun hvala á Norður-Atlantshafssvæðinu. Slíkar upplýsingar eru sagðar forsenda sjálfbærrar nýtingar hvalastofna og er í fréttatilkynningunni sérstakelga vakin athuygli á mikilvægi þess í ljósi örra umhverfisbreytinga.

Fundinn munu sitja fulltrúar frá aðildarríkjum Færeyja, Grænlands, Íslands og Noregs auk áheyrnarfulltrúa frá Kanada, Danmörku, Japan og Bandaríkjunum. Að auki, fulltrúar frá Makivvik Corporation frá Québec og nokkrum alþjóðastofnunum, þar á meðal IWC, Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðiráðið (NEAFC) og náttúruverndarsamtökin IWMC.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.7.24 398,89 kr/kg
Þorskur, slægður 17.7.24 352,70 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.7.24 352,11 kr/kg
Ýsa, slægð 17.7.24 154,86 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.7.24 161,27 kr/kg
Ufsi, slægður 17.7.24 214,63 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 17.7.24 262,52 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.7.24 Sandfell SU 75 Lína
Ýsa 1.773 kg
Þorskur 876 kg
Steinbítur 273 kg
Skarkoli 28 kg
Ufsi 5 kg
Samtals 2.955 kg
17.7.24 Grímsey ST 2 Dragnót
Ýsa 5.054 kg
Þorskur 3.492 kg
Skarkoli 1.236 kg
Skrápflúra 192 kg
Steinbítur 27 kg
Þykkvalúra 18 kg
Samtals 10.019 kg
17.7.24 Þura AK 79 Handfæri
Þorskur 129 kg
Ufsi 10 kg
Samtals 139 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.7.24 398,89 kr/kg
Þorskur, slægður 17.7.24 352,70 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.7.24 352,11 kr/kg
Ýsa, slægð 17.7.24 154,86 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.7.24 161,27 kr/kg
Ufsi, slægður 17.7.24 214,63 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 17.7.24 262,52 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.7.24 Sandfell SU 75 Lína
Ýsa 1.773 kg
Þorskur 876 kg
Steinbítur 273 kg
Skarkoli 28 kg
Ufsi 5 kg
Samtals 2.955 kg
17.7.24 Grímsey ST 2 Dragnót
Ýsa 5.054 kg
Þorskur 3.492 kg
Skarkoli 1.236 kg
Skrápflúra 192 kg
Steinbítur 27 kg
Þykkvalúra 18 kg
Samtals 10.019 kg
17.7.24 Þura AK 79 Handfæri
Þorskur 129 kg
Ufsi 10 kg
Samtals 139 kg

Skoða allar landanir »