Innviðaráðuneytið segist í svari við fyrirspurn Morgunblaðsins hafa þrjá mánuði til að gera grein fyrir því hvernig það hyggst bregðast við tilmælum rannsóknarnefndar samgönguslysa um að setja reglur um hafn- og leiðsöguskyldu skipa í samræmi við ákvæði gildandi laga.
Í skýrslu nefndarinnar um strand flutningaskipsins Wilson Skaw á Húnaflóa á síðasta ári beinir hún því til innviðaráðuneytisins að setja umrædda reglugerð, en slysið er sagt hafa átt sér stað vegna ónákvæmra rafrænna siglingakorta og að ekki hafi verið nýttur leiðsögumaður með þekkingu á svæðinu.
„Innviðaráðuneytið hefur fengið lokaskýrslu RNSA með umræddum tilmælum. Ráðuneytið mun, í samvinnu við Samgöngustofu, skoða tilmælin nánar og meta hvort og hvaða breytinga er þörf á gildandi lögum og reglugerðum,“ segir í svari ráðuneytisins.
Í skýrslunni var Samgöngustofa hvött til að uppfæra rafræna útgáfu siglingakorta, auk þess sem stofnuninni var bent á að henni ber að halda skrá yfir löggilta hafnar- og leiðsögumenn og hafa slíkan lista aðgengilegan. Ekki hefur borist svar frá Samgöngustofu vegna fyrirspurnar um þessa þætti.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 2.7.24 | 409,00 kr/kg |
Þorskur, slægður | 2.7.24 | 485,84 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 2.7.24 | 415,58 kr/kg |
Ýsa, slægð | 2.7.24 | 435,77 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 2.7.24 | 161,52 kr/kg |
Ufsi, slægður | 1.7.24 | 199,56 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.6.24 | 304,40 kr/kg |
Gullkarfi | 2.7.24 | 320,63 kr/kg |
Litli karfi | 1.7.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 1.7.24 | 106,00 kr/kg |
2.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Þorskur | 5.766 kg |
Langa | 967 kg |
Keila | 545 kg |
Ýsa | 482 kg |
Hlýri | 385 kg |
Steinbítur | 119 kg |
Ufsi | 82 kg |
Karfi | 33 kg |
Samtals | 8.379 kg |
2.7.24 Júlía Rán RE 747 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 778 kg |
Ufsi | 8 kg |
Ýsa | 1 kg |
Samtals | 787 kg |
2.7.24 Snarfari II AK 117 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 785 kg |
Ufsi | 47 kg |
Samtals | 832 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 2.7.24 | 409,00 kr/kg |
Þorskur, slægður | 2.7.24 | 485,84 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 2.7.24 | 415,58 kr/kg |
Ýsa, slægð | 2.7.24 | 435,77 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 2.7.24 | 161,52 kr/kg |
Ufsi, slægður | 1.7.24 | 199,56 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.6.24 | 304,40 kr/kg |
Gullkarfi | 2.7.24 | 320,63 kr/kg |
Litli karfi | 1.7.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 1.7.24 | 106,00 kr/kg |
2.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Þorskur | 5.766 kg |
Langa | 967 kg |
Keila | 545 kg |
Ýsa | 482 kg |
Hlýri | 385 kg |
Steinbítur | 119 kg |
Ufsi | 82 kg |
Karfi | 33 kg |
Samtals | 8.379 kg |
2.7.24 Júlía Rán RE 747 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 778 kg |
Ufsi | 8 kg |
Ýsa | 1 kg |
Samtals | 787 kg |
2.7.24 Snarfari II AK 117 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 785 kg |
Ufsi | 47 kg |
Samtals | 832 kg |