Skrá Ice Fish Farm í íslensku kauphöllina

Lang stærsta fiskeldisfyrirtækið á Austfjörðum, Ice Fish Farm, stenfir á …
Lang stærsta fiskeldisfyrirtækið á Austfjörðum, Ice Fish Farm, stenfir á skráningu í íslensku kauphöllina. mbl.is/Gunnlaugur

Fiskeldisfyrirtækið Ice Fish Farm hefur ákveðið að skrá bréf félagsins á First North markað kauphallarinnar hér á landi og með því verður félagið með tvöfalda skráningu þar sem það er einnig skráð í Kauphöllina í Osló í Noregi.

Í tilkynningu til norsku kauphallarinnar kemur fram að gert sé ráð fyrir að skráningin verði samþykkt sama dag og haldin er fjárfestadagur 28. maí. Gert er ráð fyrir að viðskipti með bréfin hefjist í íslensku kauphöllinni 29. maí.

Ekki verða gefin út ný eða seld hlutabréf núverandi hluthafa í tengslum við skráninguna og mun hún því ekki hafa áhrif á stöðu hluthafa.

„Þar sem starfsemi Ice Fish Farms fer eingöngu fram á Íslandi er tvöföld skráning á First North á Íslandi eðlilegt og rökrétt næsta skref fyrir félagið. Frá skráningu á Euronext Growth í Osló árið 2020 hefur átt sér stað verulegur vöxtur í rekstrinum og félagið orðið leiðandi fiskeldisfyrirtæki á Austfjörðum. Samhliða höfum við fundið fyrir auknum áhuga íslenskra fjárfesta á Ice Fish Farm og umtalsverður hluti hlutafjár félagsins er í eigu íslenskra fjárfesta, teljum við því að nú sé rétti tíminn til að fara í tvöfalda skráningu á Íslandi,“ er haft eftir Guðmundi Gíslasyni, forstjóra félagsins.

Skráningin er unnin í samstarfi við fyrirtækjaráðgjöf Arion banka.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.7.24 394,61 kr/kg
Þorskur, slægður 16.7.24 428,30 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.7.24 367,38 kr/kg
Ýsa, slægð 16.7.24 309,23 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.7.24 152,50 kr/kg
Ufsi, slægður 16.7.24 164,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 16.7.24 346,00 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.7.24 Halla Sæm SF 23 Handfæri
Þorskur 856 kg
Samtals 856 kg
17.7.24 Snjólfur SF 65 Handfæri
Þorskur 184 kg
Ýsa 7 kg
Samtals 191 kg
17.7.24 Glær KÓ 9 Handfæri
Þorskur 756 kg
Ufsi 49 kg
Samtals 805 kg
17.7.24 Bliki ÍS 66 Handfæri
Ufsi 10 kg
Samtals 10 kg
17.7.24 Bobby 11 ÍS 371 Sjóstöng
Þorskur 146 kg
Samtals 146 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.7.24 394,61 kr/kg
Þorskur, slægður 16.7.24 428,30 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.7.24 367,38 kr/kg
Ýsa, slægð 16.7.24 309,23 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.7.24 152,50 kr/kg
Ufsi, slægður 16.7.24 164,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 16.7.24 346,00 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.7.24 Halla Sæm SF 23 Handfæri
Þorskur 856 kg
Samtals 856 kg
17.7.24 Snjólfur SF 65 Handfæri
Þorskur 184 kg
Ýsa 7 kg
Samtals 191 kg
17.7.24 Glær KÓ 9 Handfæri
Þorskur 756 kg
Ufsi 49 kg
Samtals 805 kg
17.7.24 Bliki ÍS 66 Handfæri
Ufsi 10 kg
Samtals 10 kg
17.7.24 Bobby 11 ÍS 371 Sjóstöng
Þorskur 146 kg
Samtals 146 kg

Skoða allar landanir »