Gamlir sjómenn sem mynda kjarnann í Hollvinasamtökum Óðins, gamla varðskipsins, gera nú sjóklárt fyrir leiðangur á morgun, föstudag.
Lagt verður af stað í morgunsárið frá Reykjavík út Faxaflóann, fyrir Garðskaga og að Stafnesi. Þar verður um borð helgistund þar sem sjóslysa sem orðið hafa á þeim slóðum verður minnst. Séra Sigurður Kr. Sigurðsson prestur sér um athöfnina.
Fjórtán menn eru í áhöfn Óðins og hver verður á sínum fasta pósti í siglingu dagsins. Skipherra nú líkt og í sambærilegum ferðum á síðustu árum verður Vilbergur Magni Óskarsson, kennari við Skipstjórnarskólann og áður sjómaður hjá Landhelgisgæslunni. Þá verður með í för í dag Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands, sem hefur á vettvangi sagnfræðinnar sinnt landhelgismálum og sjómannasögum.
„Skipið er í góðu standi, eins og við reyndum í stuttri siglingu hér út á sundin fyrr í vikunni,“ segir Egill Þórðarson, einn Óðinsmanna. Skipið, sem nú hefur skráningu sem safnaskip í gögnum yfirvalda, liggur við Grandagarð í Reykjavíkurhöfn. Þangað mætir fastur kjarni manna nokkrum sinnum í viku og dyttar að Óðni og verk þeirra í fyrra var alls 6.000 klukkustundir.
Nánari umfjöllun er að finna í Morgunblaðinu í dag.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 28.6.24 | 391,85 kr/kg |
Þorskur, slægður | 28.6.24 | 416,18 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 28.6.24 | 243,61 kr/kg |
Ýsa, slægð | 28.6.24 | 190,90 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 28.6.24 | 79,71 kr/kg |
Ufsi, slægður | 27.6.24 | 190,37 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.6.24 | 304,40 kr/kg |
Gullkarfi | 28.6.24 | 360,81 kr/kg |
Litli karfi | 20.6.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 20.6.24 | 318,00 kr/kg |
29.6.24 Ás SH 130 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.148 kg |
Samtals | 1.148 kg |
29.6.24 Jökull SH 339 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 939 kg |
Samtals | 939 kg |
29.6.24 Himbrimi BA 415 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 6 kg |
Samtals | 6 kg |
29.6.24 Álka ÍS 409 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 234 kg |
Steinbítur | 47 kg |
Ýsa | 18 kg |
Ufsi | 4 kg |
Samtals | 303 kg |
29.6.24 Sendlingur ÍS 415 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 254 kg |
Samtals | 254 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 28.6.24 | 391,85 kr/kg |
Þorskur, slægður | 28.6.24 | 416,18 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 28.6.24 | 243,61 kr/kg |
Ýsa, slægð | 28.6.24 | 190,90 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 28.6.24 | 79,71 kr/kg |
Ufsi, slægður | 27.6.24 | 190,37 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.6.24 | 304,40 kr/kg |
Gullkarfi | 28.6.24 | 360,81 kr/kg |
Litli karfi | 20.6.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 20.6.24 | 318,00 kr/kg |
29.6.24 Ás SH 130 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.148 kg |
Samtals | 1.148 kg |
29.6.24 Jökull SH 339 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 939 kg |
Samtals | 939 kg |
29.6.24 Himbrimi BA 415 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 6 kg |
Samtals | 6 kg |
29.6.24 Álka ÍS 409 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 234 kg |
Steinbítur | 47 kg |
Ýsa | 18 kg |
Ufsi | 4 kg |
Samtals | 303 kg |
29.6.24 Sendlingur ÍS 415 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 254 kg |
Samtals | 254 kg |