Umfangsmikið verkefni fyrir vinnslu í Kanada

DNG snyrtilína. Starfsmenn Slippsins DNG hafa unnið að framleiðslu búnaðar …
DNG snyrtilína. Starfsmenn Slippsins DNG hafa unnið að framleiðslu búnaðar fyrir fiskvinnslu á Nýfundnalandi. Ljósmynd/Slippurinn DNG

Slippurinn DNG hefur unnið hörðum höndum við að ljúka framleiðslu á ýmsum búnaði í saltfiskvinnslu Labrador Fishermen's Union á Nýfundnalandi, að því er fram kemur í tilkynnigu á vef félagsins. Um er að ræða umfagsmikið verkefni og fellur undir það meðal annars snyrtilína, snigill, afsöltunarkerfi og forritun á allri vinnslunni.

„Við höfum heimsótt og kortlagt vinnsluna tvisvar á síðustu mánuðum. Slippurinn DNG framleiðir fjölbreytt úrval af tækjabúnaði fyrir fiskvinnslur. Við bjóðum einnig lausnir og þekkingu í forritun og hugbúnaði til viðskiptavinarins. Við sjáum um að forrita allan stýringar fyrir vinnslulínuna í verksmiðjunni, ásamt því að framleiðsluhugbúnaðurinn PROMAS frá Slippnum DNG er notaður til að halda um öll framleiðslugögn,“ segir Orri Fannar Jónsson verkefnastjóri hjá Slippnum DNG.

Orri Fannar Jónsson verkefnastjóri hjá Slippnum DNG.
Orri Fannar Jónsson verkefnastjóri hjá Slippnum DNG. Ljósmynd/Slippurinn DNG

Gert er ráð fyrir að uppsetningu á verksmiðjunni sé lokið seinni hluta júní. Vertíðin byrjar svo um miðjan júlí.

„Í gegnum árin hefur Slippurinn DNG hannað og framleitt vinnsludekk fyrir skipaiðnaðinn og gríðarleg reynsla er innan fyrirtækisins á því sviði. Undanfarin misseri höfum við verið að færa út kvíarnar með hönnun og framleiðslu á heildarlausnum fyrir landvinnslur og er að opnast nýr markaður fyrir okkur með ótal tækifærum,“ segir Orri Fannar.

DNG Kerakerfi frá Slippnum DNG.
DNG Kerakerfi frá Slippnum DNG. Ljósmynd/Slippurinn DNG
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 12.7.24 360,64 kr/kg
Þorskur, slægður 12.7.24 172,00 kr/kg
Ýsa, óslægð 12.7.24 309,77 kr/kg
Ýsa, slægð 12.7.24 117,00 kr/kg
Ufsi, óslægður 12.7.24 179,89 kr/kg
Ufsi, slægður 12.7.24 22,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 12.7.24 415,86 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

13.7.24 Hávella ÍS 426 Sjóstöng
Þorskur 123 kg
Samtals 123 kg
13.7.24 Sendlingur ÍS 415 Sjóstöng
Þorskur 124 kg
Samtals 124 kg
13.7.24 Himbrimi BA 415 Sjóstöng
Þorskur 48 kg
Samtals 48 kg
13.7.24 Álft ÍS 413 Sjóstöng
Þorskur 307 kg
Samtals 307 kg
13.7.24 Hafdís SK 4 Dragnót
Þorskur 3.706 kg
Steinbítur 3.510 kg
Ýsa 1.403 kg
Skarkoli 527 kg
Þykkvalúra 102 kg
Sandkoli 83 kg
Samtals 9.331 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 12.7.24 360,64 kr/kg
Þorskur, slægður 12.7.24 172,00 kr/kg
Ýsa, óslægð 12.7.24 309,77 kr/kg
Ýsa, slægð 12.7.24 117,00 kr/kg
Ufsi, óslægður 12.7.24 179,89 kr/kg
Ufsi, slægður 12.7.24 22,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 12.7.24 415,86 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

13.7.24 Hávella ÍS 426 Sjóstöng
Þorskur 123 kg
Samtals 123 kg
13.7.24 Sendlingur ÍS 415 Sjóstöng
Þorskur 124 kg
Samtals 124 kg
13.7.24 Himbrimi BA 415 Sjóstöng
Þorskur 48 kg
Samtals 48 kg
13.7.24 Álft ÍS 413 Sjóstöng
Þorskur 307 kg
Samtals 307 kg
13.7.24 Hafdís SK 4 Dragnót
Þorskur 3.706 kg
Steinbítur 3.510 kg
Ýsa 1.403 kg
Skarkoli 527 kg
Þykkvalúra 102 kg
Sandkoli 83 kg
Samtals 9.331 kg

Skoða allar landanir »