Sjómannaskólinn er eign sjómannastéttarinnar

Árni Sverrisson, formaður Félags skipstjórnarmanna.
Árni Sverrisson, formaður Félags skipstjórnarmanna. mbl.is/Eyþór Árnason

Vegna vaxandi óánægju með skipstjórnarnám Tækniskólans meðal nemenda, kennara og útgerða leggur Félag skipstjórnarmanna til að stofnaður verði nýr skóli sjávarútvegs og siglinga.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í pistli Árna Sverrissonar, formanns Félags skipstjórnarmanna, í sjómannadagsblaði 200 mílna sem dreift var með Morgunblaðinu í gær

Pistill Árna í heild sinni:

Sjómannaskólinn í Reykjavík er eign sjómannastéttarinnar

Frá árinu 1891 til ársins 2003, í 112 ár, var skipstjórnarnámið í sjálfstæðum skóla, þar sem dugmiklir menn völdust til forystu og mikil festa ríkti í starfi skólans. Það sama átti við um kennarana, fámennur hópur bar uppi kennsluna. Skólastjórar þessi 112 ár voru einungis fimm, þeir Markús F. Bjarnason 1891-1900, Páll Halldórsson 1900-1937, Friðrik V. Ólafsson 1937-1962, Jónas Sigurðsson 1962-1981 og Guðjón Ármann Eyjólfsson 1981-2003.

Stýrimannaskólinn í Reykjavík var stofnaður með lögum hinn 22. maí 1890, en skólinn tók til starfa haustið 1891 í eigin húsnæði við Öldugötu í Reykjavík. Fyrsti skólastjóri og einn helsti hvatamaður að stofnun Stýrimannaskólans var Markús F. Bjarnason skipstjóri.

Lagður var hornsteinn að núverandi húsnæði Sjómannaskólans í Reykjavík á sjómannadaginn 4. júní 1944, að viðstöddum fyrsta forseta lýðveldisins og þáverandi ríkisstjóra, Sveini Björnssyni, og öllum helstu ráðamönnum landsins og miklum mannfjölda. Í blýhólki þeim sem lagður var í hornsteininn liggja uppdrættir hússins og meginatriði að byggingarsögu skólans, skráð á skinn.

Sjálfstæði skólans lauk haustið 2003 þegar Menntafélagið ehf. tók við rekstri Stýrimannaskólans og Vélskóla Íslands. Tækniskólinn var svo stofnaður árið 2008 þar sem Stýrimannaskólinn er einn af átta undirskólum.

Við hjá Félagi skipstjórnarmanna höfum á undanförnum árum orðið varir við vaxandi óánægju með námið í skipstjórn meðal starfandi skipstjórnarmanna, nemenda, kennara og útgerða. Við höfum bent á það í ræðu og riti, við höfum talað við stjórnendur Tækniskólans, stjórnmálamenn og stjórnendur í sjávarútvegi og samtökum þeirra, við höfum einnig rætt við fólk í menntakerfinu um til hvaða ráða hægt er að grípa því þetta getur ekki gengið svona.

Niðurstaða okkar er að skora á stórnvöld og alla hlutaðeigandi að efla nám í skipstjórn og sjávarútvegstengdum greinum. Félag skipstjórnarmanna leggur til að nú þegar verði hafinn undirbúningur að nýjum skóla sem við höfum gefið vinnuheitið „Skóli sjávarútvegs og siglinga“. Skólinn verði í húsnæði okkar, Sjómannaskólanum á Rauðarárholti sem var gefinn sjómannastéttinni árið 1945.

Lítið minnir á upprunann

Skóli sjávarútvegs og siglinga í húsi Sjómannaskólans yrði mennta- og þekkingarsetur sjávarútvegs á Íslandi, þar yrði nám, námsstýring og utanumhald um nám í skipstjórn, vélstjórn, fisktækni, fiskeldi, slysavörnum, veiðarfæragerð og þróun veiðarfæra í samvinnu við fyrirtæki og starfsmenn í greininni. Skólinn yrði í náinni samvinnu við aðrar menntastofnanir, innanlands og erlendis, kennd yrði sjávarútvegsfræði í samvinnu við Háskólann á Akureyri, Háskólasetur Vestfjarða, kennd yrði útgerðartækni/shipping, alþjóðleg námskeið fyrir hafnsögu, leiðsögu, meðferð sjávarfangs ofl. Haftengd nýsköpun í samvinnu við aðra, svo sem Sjávarklasann og sambærileg fyrirtæki. Skólinn stæði fyrir alþjóðlegum ráðstefnum og kynningum á því sem við erum að gera í sjávarútvegi. Síðast en ekki síst yrði haldið utan um söguna á einum stað, í húsinu okkar, hugsanlega með sjóminjasafni í hluta hússins, en skipstjórnarmönnum sárnar það virðingarleysi sem sjómönnum er sýnt. Stærstur hluti gjafa sem hagsmunasamtök sjómanna og vinir færðu skólanum er horfinn úr húsinu í geymslur úti í bæ, lítið minnir á upprunann.

Mikilvægt er að þátttakendur í sjávarútvegi og menntastofnanir komi að borðinu með opnum huga, markmiðið er að sækja fram, efla menntun, gera hana skilvirkari og betri. Nám í skipstjórn og mögulega vélstjórn verði aðskilið frá Tækniskólanum, við teljum í ljósi reynslu undanfarinna ára að skipstjórnarnámið eigi ekki heima í þeim skóla, það sé fullreynt. Skynsamlegra væri að efla nám í greinum sjávarútvegs og siglinga í einum og sama skólanum.

Í stjórn skólans sætu hagaðilar í sjávarútvegi, námið yrði miðað að þörfum greinarinnar, þar sem leitast yrði við að efla nám til skilnings á öllum greinum er lúta að sjávarútvegi, skipstjórn, hafrannsóknum, fiskeldi og fleiru. Með öðrum orðum menntasetur með hagsmuni sjávarútvegs og siglinga að leiðarljósi.

Áhersla á samvinnu

Í Skóla sjávarútvegs og siglinga yrði lögð rík áhersla á samvinnu skólans við sjávarútveginn og stéttarfélög. Sparnaður hlytist af með samstarfi á milli fyrirtækja og skólans þar sem kennt yrði á tæki og vélbúnað um borð í skipum, meðal annars þeim sem eru í eigu ríkisins, hafrannsókna- og varðskipum. Eins og málum er háttað nú er nám um borð í skipi ekki hluti af námi til skipstjórnar. Við leggjum til að nemendum í skipstjórn verði gert skylt að fara á sjó til náms um borð í skipum undir leiðsögn reyndra starfandi skipstjórnarmanna (kadettanám) eins og tíðkast hefur í nágrannalöndunum um árabil, það yrði hluti af náminu.

Það vantar skipstjórnarmenn á Íslandi, stéttin er að eldast, það þarf að spýta í lófana og láta hendur standa fram úr ermum, störf í sjávarútvegi til sjós og lands eru góð störf, þar er gott að starfa.

Góðir Íslendingar, gleymum ekki uppruna okkar, hefjum nám í sjávarútvegi til vegs og virðingar. Stöndum vörð um að hin glæsilega bygging okkar, Sjómannaskólinn, verði um aldur og ævi tákn sjómannamenntunar og sjávarútvegs á Íslandi, þar verði miðstöð menntunar, þekkingar og þjálfunar sjómanna og nemenda í sjávarútvegstengdum greinum.

Ég óska sjómönnum, fjölskyldum þeirra og landsmönnum öllum gleðilegs sjómannadags.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 15.7.24 417,32 kr/kg
Þorskur, slægður 15.7.24 347,37 kr/kg
Ýsa, óslægð 15.7.24 359,92 kr/kg
Ýsa, slægð 15.7.24 309,87 kr/kg
Ufsi, óslægður 15.7.24 152,94 kr/kg
Ufsi, slægður 15.7.24 197,68 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 15.7.24 301,58 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

15.7.24 Eyrarröst ÍS 201 Handfæri
Þorskur 2.436 kg
Samtals 2.436 kg
15.7.24 Draupnir ÍS 485 Handfæri
Þorskur 613 kg
Samtals 613 kg
15.7.24 Mardís ÍS 400 Handfæri
Þorskur 655 kg
Samtals 655 kg
15.7.24 Draupnir ÍS 717 Handfæri
Þorskur 747 kg
Samtals 747 kg
15.7.24 Kristbjörg SH 84 Grásleppunet
Grásleppa 1.422 kg
Samtals 1.422 kg
15.7.24 Viðvík SH 119 Handfæri
Þorskur 314 kg
Ufsi 3 kg
Samtals 317 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 15.7.24 417,32 kr/kg
Þorskur, slægður 15.7.24 347,37 kr/kg
Ýsa, óslægð 15.7.24 359,92 kr/kg
Ýsa, slægð 15.7.24 309,87 kr/kg
Ufsi, óslægður 15.7.24 152,94 kr/kg
Ufsi, slægður 15.7.24 197,68 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 15.7.24 301,58 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

15.7.24 Eyrarröst ÍS 201 Handfæri
Þorskur 2.436 kg
Samtals 2.436 kg
15.7.24 Draupnir ÍS 485 Handfæri
Þorskur 613 kg
Samtals 613 kg
15.7.24 Mardís ÍS 400 Handfæri
Þorskur 655 kg
Samtals 655 kg
15.7.24 Draupnir ÍS 717 Handfæri
Þorskur 747 kg
Samtals 747 kg
15.7.24 Kristbjörg SH 84 Grásleppunet
Grásleppa 1.422 kg
Samtals 1.422 kg
15.7.24 Viðvík SH 119 Handfæri
Þorskur 314 kg
Ufsi 3 kg
Samtals 317 kg

Skoða allar landanir »