Veruleg aukning útflutningsverðmæta

Fiskeldið skilaði mun meiri útflutningsverðmætum í maí síðastliðnum en í …
Fiskeldið skilaði mun meiri útflutningsverðmætum í maí síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra. Um er að ræða rúma þrjá milljarða króna. mbl.is/Helgi Bjarnason

Útflutningur eldisafurða var á miklu flugi í maí og náði útflutningsverðmætið 3,2 milljörðum króna í mánuðinum sem er 80% aukning frá sama mánuði á síðasta ári. Þá er útflutningsverðmæti eldisafurða á fyrstu fimm mánuðum komið í rúmlega 22 milljarða króna, sem er 18% aukning frá sama tímabili 2023 og hefur verðmæti þessara afurða aldrei verið meira á þessum árshluta.

Fjallað er um þetta í nýlegri greiningu Radarsins og er vísað í bráðabirgðatölur Hagstofu Íslands sem birtar voru í síðustu viku.

Mynd/Radarinn

Þá var útflutningsverðmæti eldisafurða ígildi 15% af útflutningsverðmæti sjávarafurða á fyrstu fimm mánuðum ársins og um 6% af vöruútflutnings alls. Þessi hlutföll hafa aldrei verið hærri en nú.

„Í fyrstu bráðabirgðatölum Hagstofunnar er útflutningsverðmæti eldisafurða í heild einungis birt og því liggur ekki fyrir sundurliðun verðmæta niður á einstaka tegundir í maímánuði. Vafalaust má rekja þessa myndarlegu aukningu í maí til laxeldis, líkt og mánuðina á undan. Þannig var útflutningsverðmæti eldislax komið í tæpa 17 milljarða króna á fyrstu 4 mánuðum ársins, sem er um 20% aukning frá sama tímabili í fyrra á föstu gengi. Hlutdeild lax af útflutningsverðmæti eldisafurða í heild var rúm 87% á fyrstu 4 mánuðunum samanborið við rúm 81% á sama tímabili í fyrra,“ segir í greiningu Radarsins.

Mynd/Radarinn

Bent er á að það var verulegur samdráttur í útflutningsverðmæti silungs á tímabilinu og er þar að mestu um að ræða bleikju.

„Þannig nam útflutningsverðmæti silungs tæplega 1,5 milljarði króna á fyrstu 4 mánuðum ársins samanborið við 2,1 milljarð á sama tíma í fyrra. Svipaða sögu er að segja um frjóvguð hrogn, sem er verðmæt hátækniframleiðsla. Útflutningsverðmæti þeirra var komið í tæpar 400 milljónir króna á fyrstu 4 mánuðum ársins, sem er 43% samdráttur á milli ára. Á móti hafa útflutningstekjur af Senegal flúru, sem er einn verðmætasti matfiskur í heimi, aldrei verið meiri á fyrstu 4 mánuðunum og nú í ár. Þannig var útflutningsverðmæti Senegal flúru komið í rúmar 500 milljónir á tilgreindu tímabili, sem er 150% aukning á milli ára á föstu gengi.“

Einnig aukning í sjávarafurðum

ýverið var greint frá því að út­flutn­ings­verðmæti sjáv­ar­af­urða í maí hafi náð 35 millj­örðum króna dem er 3,5% meira en í sama mánuði á síðasta ári í krón­um talið en þar sem lít­il breyt­ing hef­ur verið á gengi krón­unn­ar er aukn­ing­in í er­lendri mynt 4%.

Útflutn­ings­verðmæti sjáv­ar­af­urða á fyrstu fimm mánuðum árs­ins 2024 námu 146 millj­örðum króna sem er 1,5% minna en á sama tíma­bili á síðasta ári að teknu til­liti til geng­is­breyt­inga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.7.24 394,61 kr/kg
Þorskur, slægður 16.7.24 428,30 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.7.24 367,38 kr/kg
Ýsa, slægð 16.7.24 309,23 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.7.24 152,50 kr/kg
Ufsi, slægður 16.7.24 164,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 16.7.24 346,00 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.7.24 Halla Sæm SF 23 Handfæri
Þorskur 856 kg
Samtals 856 kg
17.7.24 Snjólfur SF 65 Handfæri
Þorskur 184 kg
Ýsa 7 kg
Samtals 191 kg
17.7.24 Glær KÓ 9 Handfæri
Þorskur 756 kg
Ufsi 49 kg
Samtals 805 kg
17.7.24 Bliki ÍS 66 Handfæri
Ufsi 10 kg
Samtals 10 kg
17.7.24 Bobby 11 ÍS 371 Sjóstöng
Þorskur 146 kg
Samtals 146 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.7.24 394,61 kr/kg
Þorskur, slægður 16.7.24 428,30 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.7.24 367,38 kr/kg
Ýsa, slægð 16.7.24 309,23 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.7.24 152,50 kr/kg
Ufsi, slægður 16.7.24 164,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 16.7.24 346,00 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.7.24 Halla Sæm SF 23 Handfæri
Þorskur 856 kg
Samtals 856 kg
17.7.24 Snjólfur SF 65 Handfæri
Þorskur 184 kg
Ýsa 7 kg
Samtals 191 kg
17.7.24 Glær KÓ 9 Handfæri
Þorskur 756 kg
Ufsi 49 kg
Samtals 805 kg
17.7.24 Bliki ÍS 66 Handfæri
Ufsi 10 kg
Samtals 10 kg
17.7.24 Bobby 11 ÍS 371 Sjóstöng
Þorskur 146 kg
Samtals 146 kg

Skoða allar landanir »