Frumvarpi Bjarkeyjar Olsen Gunnardóttur matvælaráðherra um lagareldi verður frestað fram á haust vegna þess að ríkisstjórnin nær ekki saman um málið í atvinnuveganefnd. Upphaflega stóð til að klára málið fyrir þinglok.
Þetta staðfestir Þórarinn Ingi Pétursson, formaður atvinnuveganefndar, í samtali við mbl.is.
„Í gær þá sagði ég að við verðum að fresta þessu fram á næsta þing,“ segir hann um fund atvinnuveganefndar í gærkvöldi og útskýrir að málið verði því ekki klárað á þessu þingi.
Eru það þá stjórnarliðarnir sem ná ekki saman?
„Fyrst og fremst er það meirihluti nefndarinnar sem þarf að komast að sameiginlegri niðurstöðu svo að hægt sé að halda áfram. Þar erum við stödd, við erum ekki búin að ná saman um alla þætti málsins og meðan það er þannig þá getum við ekki haldið áfram með málið.“
Hann segir að þó frumvarpið sé gott í grunninn þá sé það gríðarlega stórt, 137. greinar, og ekki auðvelt að ná sátt um þær allar með þann tíma sem er fyrir hendi.
„Ég get tínt til alveg helling af því en fyrst og fremst er þetta það sem kemur að skattheimtu og gjaldheimtu og hvernig við eigum að haga því. Þar þurfum við bara meiri tíma til að geta farið ofan í það, til að ná utan um það almennilega,“ segir Þórarinn Ingi.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 30.3.25 | 536,76 kr/kg |
Þorskur, slægður | 30.3.25 | 621,48 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 30.3.25 | 341,11 kr/kg |
Ýsa, slægð | 30.3.25 | 265,50 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 30.3.25 | 170,00 kr/kg |
Ufsi, slægður | 30.3.25 | 234,10 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 19.3.25 | 11,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 17.3.25 | 188,00 kr/kg |
Gullkarfi | 30.3.25 | 254,95 kr/kg |
29.3.25 Huld SH 76 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 1.026 kg |
Samtals | 1.026 kg |
29.3.25 Stakkhamar SH 220 Lína | |
---|---|
Ýsa | 3.277 kg |
Langa | 1.098 kg |
Keila | 252 kg |
Karfi | 214 kg |
Ufsi | 155 kg |
Þorskur | 16 kg |
Steinbítur | 15 kg |
Hlýri | 10 kg |
Samtals | 5.037 kg |
29.3.25 Eskey ÓF 80 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 4.957 kg |
Ýsa | 2.035 kg |
Langa | 362 kg |
Steinbítur | 24 kg |
Keila | 24 kg |
Ufsi | 15 kg |
Karfi | 8 kg |
Samtals | 7.425 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 30.3.25 | 536,76 kr/kg |
Þorskur, slægður | 30.3.25 | 621,48 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 30.3.25 | 341,11 kr/kg |
Ýsa, slægð | 30.3.25 | 265,50 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 30.3.25 | 170,00 kr/kg |
Ufsi, slægður | 30.3.25 | 234,10 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 19.3.25 | 11,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 17.3.25 | 188,00 kr/kg |
Gullkarfi | 30.3.25 | 254,95 kr/kg |
29.3.25 Huld SH 76 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 1.026 kg |
Samtals | 1.026 kg |
29.3.25 Stakkhamar SH 220 Lína | |
---|---|
Ýsa | 3.277 kg |
Langa | 1.098 kg |
Keila | 252 kg |
Karfi | 214 kg |
Ufsi | 155 kg |
Þorskur | 16 kg |
Steinbítur | 15 kg |
Hlýri | 10 kg |
Samtals | 5.037 kg |
29.3.25 Eskey ÓF 80 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 4.957 kg |
Ýsa | 2.035 kg |
Langa | 362 kg |
Steinbítur | 24 kg |
Keila | 24 kg |
Ufsi | 15 kg |
Karfi | 8 kg |
Samtals | 7.425 kg |