Rauðátan er undirstaða alls lífs í hafinu og nú eru hafnar rannsóknir á því hvernig nýta má betur þessa dýrmætu afurð á Íslandi, að því er segir í umfjöllun Morgunblaðsins. Astaxanthin sem unnið er úr rauðátunni er bæði notað í fæðubótarefni og lyf gegn sykursýki 2.
Hörður Baldvinsson, framkvæmdastjóri Þekkingarseturs Vestmannaeyja, er nýkominn úr tveimur leiðöngrum þar sem kannaðar voru hentugar togslóðir til veiða á rauðátu.
„Við erum ánægð með útkomuna úr þessum tveimur leiðöngrum. Í fyrri leiðangrinum náðum við einu tonni af rauðátu og í þeim seinni hálfu tonni. Markmiðið var ekki að veiða, heldur fyrst og fremst að kanna togslóðir. Bæði hvar við getum ekki veitt vegna mikils meðafla og svo hvar við getum veitt þar sem ekki er meðafli. Lykillinn er að sleppa við meðaflann.“
Hörður segir að mikið sé af rauðátu við suðurströndina og togslóðir við Selvogsbanka, Grindavíkurdýpi og austur með ströndinni hafi verið kannaðar.
Calanus finmarchicus
Rauðáta er krabbadýr. Hún er um 4 mm að stærð. Hún er rauðleit og stafar liturinn af næringarforða sem hún safnar í líkamann.
Ljósmynd/Calanus AS
Góð viðbót fyrir uppsjávarflotann
„Það er mikilvægt að frysta aflann alveg ferskan, því átan brotnar hratt niður og gæðin rýrna. Við þurftum að bíða í 6-8 klst., en Ísfélagið og Vinnslustöðin frystu fyrir okkur, þar sem ekki er hægt að frysta um borð í Bjarna Sæm.“
Hörður segir að ef vel takist til sé þetta gott tækifæri fyrir Íslendinga, sem geti stuðlað að betri nýtingu fyrir flotann.
Nánar má lesa um málið í Morgunblaðinu í dag.