Álit SFS beri keim af hroka og yfirgangi

Arnar Atlason, formaður Samtaka fiskframleiðenda og -útflytjenda, telur SFS á …
Arnar Atlason, formaður Samtaka fiskframleiðenda og -útflytjenda, telur SFS á villigötum í gagnrýni sinni á strandveiðikerfið. mbl.is/Hari

Arnar Atlason, formaður Samtaka fiskframleiðenda og útflytjenda (SFÚ), segir í samtali við Morgunblaðið í dag yfirlýsingu Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) um strandveiðar sem birt var á vef samtakanna síðastliðinn mánudag bera keim af hroka og yfirgangi. Jafnframt sé yfirlýsingin full af staðreyndavillum að mati Arnars sem sakar SFS um hræsni. 

Í yfirlýsingunni er Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra sögð hafa látið undan græðgi strandveiðisjómanna er hún bætti tvö þúsund tonna þorskkvóta við aflaheimildir strandveiðanna.

Með viðbótinni er hlutfall aflaheimilda sem er ráðstafað til strandveiða hærra en nokkru sinni fyrr, en rúmlega fimmtungs skerðing hefur verið í þorskkvóta annarra útgerða á sama tíma. Fullyrtu SFS að strandveiðar væru óskynsamlegar og óarðbærar og lýstu þeirri skoðun að betra væri að ráðstafa aflaheimildum í veiðar sem skila þjóðarbúinu meiri verðmætum.

„Ég vil nota tækifærið til að hrósa matvælaráðherra fyrir framsýnina. Að mínu viti er það ekki bara skynsamlegt heldur einnig nauðsynlegt að styrkja þann hluta veiða Íslendinga sem standa utan við aflamarkskerfið okkar. Þær veiðar geta að mínu mati veitt aflamarkskerfinu aðhald og styrkt það til lengri tíma,“ segir Arnar. 

Hann gagnrýnir fullyrðingu SFS um að verðmætasköpun sé tryggð með samþættum rekstri útgerðar og vinnslu. „Samkeppniseftirlitið hefur ítrekað bent á að með lóðréttri samþættingu aukist hætta á undirverðlagningu sem geti haft neikvæð áhrif á tekjur hafnarsjóða og ekki síður á tekjur ríkissjóðs. Þetta stemmir að sama skapi við alþjóðlega skattaumræðu sem álítur lóðrétt samþætt fyrirtæki geta skapað hættu á undirverðlagningu í innri viðskiptum.“

Þá efast Arnar um meintan árangur samþætts rekstrar. „Sérstaklega þegar horft er til niðurlags yfirlýsingarinnar þar sem talað er um byggðafestu, en allir sem það vilja sjá að kerfi lóðrétt samþættrar vinnslu og veiði fyrirtækja hefur algjörlega brugðist þegar kemur að því að viðhalda byggðafestu. Að halda öðru fram er skrumskæling.“

Viðtalið við Arnar má lesa í heild sinni Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.7.24 637,25 kr/kg
Þorskur, slægður 24.7.24 539,60 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.7.24 396,55 kr/kg
Ýsa, slægð 24.7.24 292,98 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.7.24 203,63 kr/kg
Ufsi, slægður 24.7.24 286,75 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 24.7.24 633,84 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.7.24 Gulltoppur GK 24 Landbeitt lína
Steinbítur 1.366 kg
Ýsa 517 kg
Þorskur 86 kg
Hlýri 6 kg
Skarkoli 6 kg
Samtals 1.981 kg
24.7.24 Hilmir ST 1 Handfæri
Þorskur 660 kg
Ufsi 121 kg
Ýsa 98 kg
Samtals 879 kg
24.7.24 Sæbyr ST 25 Handfæri
Þorskur 1.161 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 1.164 kg
24.7.24 Margrét GK 33 Lína
Ýsa 4.567 kg
Þorskur 1.786 kg
Steinbítur 270 kg
Langa 7 kg
Hlýri 5 kg
Samtals 6.635 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.7.24 637,25 kr/kg
Þorskur, slægður 24.7.24 539,60 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.7.24 396,55 kr/kg
Ýsa, slægð 24.7.24 292,98 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.7.24 203,63 kr/kg
Ufsi, slægður 24.7.24 286,75 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 24.7.24 633,84 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.7.24 Gulltoppur GK 24 Landbeitt lína
Steinbítur 1.366 kg
Ýsa 517 kg
Þorskur 86 kg
Hlýri 6 kg
Skarkoli 6 kg
Samtals 1.981 kg
24.7.24 Hilmir ST 1 Handfæri
Þorskur 660 kg
Ufsi 121 kg
Ýsa 98 kg
Samtals 879 kg
24.7.24 Sæbyr ST 25 Handfæri
Þorskur 1.161 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 1.164 kg
24.7.24 Margrét GK 33 Lína
Ýsa 4.567 kg
Þorskur 1.786 kg
Steinbítur 270 kg
Langa 7 kg
Hlýri 5 kg
Samtals 6.635 kg

Skoða allar landanir »